Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 24
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, Jóhanna Sigurðardótt- ir félagsmálaráðherra lagði fram frumvarp um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla á Alþingi á fimmtudag. Fulltrúar allra flokka unnu að gerð þess, en þingmenn stjórnarflokk- anna deila um einstök atriði sín á milli. „Ég get ekki tekið undir það að hér sé allt í ólagi í jafnréttismálum,“ sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Í ræðu sinni sagðist hún styðja frumvarpið, en vera ósammála einstaka efnisatriðum þess. Í frumvarpinu kveður á um að fyrirtæki og stofnanir með fleiri en 25 starfsmenn setji sér jafn- réttisáætlun. „Ég óttast að þetta verði mjög íþyngjandi fyrir minni fyrirtæki og muni þannig skapa neikvætt viðhorf til jafnréttis- mála,“ sagði Ragnheiður. „Ég er ekki sannfærð um að það að skikka fyrirtæki til að gera jafnréttisáætlun sé leiðin að jafn- rétti,“ sagði Ragnheiður. Hún vill jafnframt kanna hvort frumvarp- ið sé of kvennamiðað. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, sagði mikilvægara að fyrirtæki fengju hvatningu til góðra verka, til dæmis sérstaka jafnréttisvottun, í stað þess að þau settu sér jafnréttisáætlanir. Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingar, var á öndverðum meiði. „Á að verðlauna fyrirtæki fyrir jafn sjálfsagðan hlut og að brjóta ekki mannréttindi og virða stjórnarskrána?“ spurði Róbert. Vinstri græn telja frumvarpið ganga of skammt. „Af hverju eru Jafnréttisstofu ekki veittar jafn góðar heimildir og Samkeppnis- stofnun?“ spurði Atli Gíslason, þingmaður VG. „Kynbundinn launamunur er brot á jafnræðis- reglu stjórnarskrárinnar, sam- keppnisbrot eru það ekki.“ Nefnd skipuð fulltrúum allra þingflokka og framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu skilaði drögum að frumvarpinu í mars síðastliðnum. Fyrir nefndinni fór Guðrún Erlendsdóttir, fyrrverandi hæsta- réttardómari. Félagsmálaráð- herra gerir ráð fyrir að frum- varpið leiði til 33 til 37 milljón króna útgjaldaauka fyrir ríkis- sjóð á ári. Stjórnarliðar deila um jafnréttisfrumvarpið Mannréttindaleysi? Litlir Landsímamenn Keisarinn nakinn í pontunni Varaþingmenn hafa látið ljós sitt skína á Alþingi í vikunni, enda tóku óvenjumargir sæti þessa vik- una. Sumir mæltu fyrir eigin frumvörpum, enda gjarnan reynt að koma málum þeirra á dagskrá þingsins áður en þeir hverfa þaðan brott á nýjan leik. Valgerður Bjarnadóttir, varaþingmaður Samfylk- ingarinnar, flutti frumvarp um breytingar á umdeildum lögum um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara. „Frumvarpið er nokkuð sem ég hef verið að tala um í mörg ár. Ég var staðráðin í að bera það upp ef ég færi inn, svo að því leyti til var ég undirbúin,“ segir Valgerður. Dögg Pálsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins, segist hafa ákveðið að leggja fram frum- varp um breytingar á barnalögum um leið og hún varð varaþingmaður. Hún mælti fyrir frumvarpi sínu í gær, og sagðist ánægð með viðtökurnar. Málið fór í hefðbundinn farveg til nefndar, sem fær svo það hlutverk að vinna málinu brautargengi í fjar- veru flutningsmanns þess. Erla Ósk Ásgeirsdóttir, varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins, segist hafa ákveðið að leggja fram frumvarp um afnám lágmarksútsvars þegar hún var beðin um að setjast á þing. Málið hafi verið eitt þeirra sem ungliðahreyfing flokksins hafi barist fyrir, og því eðlilegt að hún sem einn forystumanna ungliða berðist fyrir málinu á Alþingi þegar tæki- færi gafst til þess. Stundum langur fyrirvari Þrjú sveitarfélög með útsvar í lágmarki SMS LEIKUR Vi nn in ga rv er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 9 9 kr /s ke yt ið .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.