Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 38
hús&heimili
Sigríður Dröfn Tómasdóttir háskólanemi heldur
mikið upp á dagatal sem hún keypti á safninu Tate
Modern í London fyrir nokkrum árum. „Þetta er
svona plastvasi með sjö hólfum sem ég raða alls kyns
póstkortum og ljósmyndum í. Ég nota þetta aðal-
lega sem skraut en aftan á nokkrum póstkortum sem
fylgdu eru mánuðirnir og tölustafir og snýr maður
kortunum eftir því sem við á. Mér finnst gaman að
stinga póstkortum frá ættingjum og vinum í hólfin og
eins kaupi ég yfirleitt einhver falleg póstkort á ferða-
lögum,“ segir Sigríður en hún hefur töluvert ferðast
á undanförnum árum og starfaði meðal annars sem
hjálparstarfsmaður á Indlandi um nokkurra mánaða
skeið.
„Núna er ég til dæmis með kort frá Chicago og
Grikklandi en þar var ég í sumar. Svo er ég með eitt
frá mömmu minni sem var í París og eins nokkrar
ljósmyndir.“
Sigríður segir ýmislegt fleira vera í uppáhaldi
en megnið af því er eitthvað sem hún hefur erft eða
fengið að gjöf frá ættingjum. Hún nefnir í því sam-
bandi rúllupylsulistaverk sem hún fékk frá bróður
sínum þegar hann var þriggja ára. „Hann hafði verið
að myndast við að rúlla saman leir á Barónsborg og
uppástóð að þarna væri komin rúllupylsa. Skömmu
síðar vorum við saman í Landsbankanum að bíða
eftir gjaldkera þegar hann rekur augun í listaverka-
sýningu frá Barónsborg í miðjum bankanum og hljóð-
ar upp yfir sig: „Sigga, sjáðu, rúllupylsan mín tókst!“
Viðskiptavinir bankans hópuðust í kringum hann og
hrósuðu honum í hástert. Honum fannst mikið til sín
koma enda var búið að setja verkið á platta sem á
stóð: Án titils eftir Guðjón Orra. Hann gaf mér svo
rúllupylsuna í jólagjöf og er hún helsta stofustáss-
ið hjá mér. Hann er núna átta ára og verður alltaf
jafn ánægður þegar hann kemur í heimsókn og sér
pylsuna.“ vera@frettabladid.is
Safnar minningum
Sigríður Dröfn Tómasdóttir heldur mikið upp á dagatal með póstkortum og listaverk eftir
bróður sinn.
Rúllupylsulistaverk eftir litla bróður Sigríðar.
Sigríður skiptir reglulega um myndir í dagatalinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
hönnun
LAGSKIPT OG
LITRÍKT Glerhönnuður-
inn Tora Urup er með sýn-
iningu í Epal í Skeifunni 6 í
tengslum við opnun versl-
unarinnar eftir stækkun og
endurbætur. Þar eru glös,
vasar og skálar í vel völdum
línum, meðal annars sería af
lagskiptum skálum sem eru
einstakar í sinni röð og hafa
víða vakið eftirtekt.
Tora býr í Danmörku en
er hálf íslensk. Hún ólst upp
við list og hönnun því for-
eldrar hennar, Guðrún Sig-
urðardóttir og Jens Urup eru
vel þekkt fyrir glerskreyting-
ar í dönskum kirkjum. Tora
lærði sína list bæði í Dan-
mörku og Japan og hefur frá árinu 2001 þróað vörur undir eigin nafni.
Hún sérhæfir sig í borðbúnaði og til að ná þeim vörugæðum sem hún
vill vinnur hún með fagmönnum bæði í Evrópu og Japan.
Glermunir Toru hafa verið á sýningum víða í Skandinavíu, í London,
New York, París og Japan og nú gefst Íslendingum kostur á að kynnast
þeim í Epal. Sjón er sögu ríkari.
Forsíðumynd: Pjetur Sigurðsson tók þessa mynd af
danska hönnuðinum Kasper Salto. Útgáfufélag: 365 miðlar
ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Sól-
veig Gísladóttir solveig@frettabladid.is og Emilía Örlygsdótt-
ir emilia@frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason
s. 517 5724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
FALLEG GJAFAASKJA
Hvað á að gefa þeim sem eiga
allt og vantar ekkert? Besta hug-
myndin er þá oft að gefa eitthvað
sem eyðist. Gott dæmi um það
er þessi fallega gjafaaskja
úr jólalínu Habitat. Í henni
eru þrjú falleg rauð kerti
og reykelsi sem gefa frá sér
góðan jólailm. 1.490 kr.
TINDRANDI KERTALJÓS
Nú þegar rökkva tekur er notalegt að
kveikja á kertum og slaka á. Það er alltaf
gaman að velja sér kerti þar sem úrvalið
er mikið og þau skapa fallega stemningu.
Gaman er að krydda tilveruna og breyta
heimilinu með smáhlutum á borð við kerti
sem sóma sér alltaf vel á vetrarkvöldum.
lýsing
Danfoss X-tra línan
TM
Ný lína af ofnhitastillum sem eru hannaðir
fyrir handklæða- og sérhannaða ofna
Einstök hönnun samstæðar lausnir
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
3. NÓVEMBER 2007 LAUGARDAGUR2