Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 6
Telur þú að verðsamráð við- gangist milli matvöruverslana? Var rétt af borgarráði að hafna samruna Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy? „Reglulega berast okkur erindi frá forsvarsmönnum húsfélaga vegna alvarlegra brota eigenda og íbúa í fjölbýlishúsum. Um er að ræða dópgreni þar sem eiturlyf, brennivín og ofbeldis- hneigð mynda háskalega blöndu og skapa neyðarástand,“ segir Sigurður Helgi Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og formað- ur Húseigendafélagsins. Sigurður segir að umvöndunum nágranna sé iðulega svarað með hótunum og ofbeldi. „Dæmi er um að kveikt hafi verið í sameign í hefndar- skyni.“ Sigurður segir mál sem berast Húseigendafélaginu vissulega misalvarleg. „Málin byrja gjarn- an sem fyrirspurnir um réttar- stöðu, ýmist í síma eða í viðtölum hjá okkur við starfsmenn og lög- menn. Síðan er spurt um úrræði. Okkar aðkoma er fyrst að svara munnlegum fyrirspurnum, síðan að aðstoða við bréfaskriftir og húsfundi.“ Aðspurður hver réttarstaða íbúa í fjölbýlishúsum sé segir Sig- urður að í 55. grein laga um fjöl- eignarhús séu mjög afgerandi úrræði þegar um gróf eða ítrekuð brot eigenda eða annarra íbúa er að ræða. „Lögin segja að ef hinn brotlegi lætur ekki segjast við aðvörun geti húsfélagið bannað búsetu og dvöl hans í húsinu. Hægt er að gera viðkomandi að flytja og jafnvel selja íbúðina. Afleiðingar þessarar hegðunar geta því verið mjög alvarlegar fyrir viðkomandi.“ Sigurður segir jafnframt að gæta þurfi að því að rétt sé að málum staðið og lögfræðileg aðstoð sé æskileg til að koma í veg fyrir afdrifaríkar veilur í málatil- búnaðinum á síðari stigum máls- ins. Fréttablaðið greindi frá því í gær að lögreglan á höfuðborgar- svæðinu telur ekki ofáætlað að tuttugu hús og íbúðir á höfuðborg- arsvæðinu séu undir stöðugu eft- irliti vegna alvarlegra brota, flest tengd mikilli fíkniefnaneyslu. Geir Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn lýsti ástandinu svo að fólki væri haldið í gíslingu þessa vanda sem engum væri bjóðandi. Sigurður segir erindi sem bor- ist hafa félaginu beri þess vitni að aðstæður fólks eru á stundum martraðarkenndar. „Líf íbúanna umturnast. Hávaði daga og nætur og ráp af drukknu og dópuðu fólki. Umgengni er herfileg og skemmd- arverk daglegt brauð. Dæmi eru um sífelldar uppákomur; slags- mál, húsleitir lögreglu vegna fíkniefna og þýfis. Notaðar spraut- ur liggja líka í sameignum og á leiksvæðum barna,“ segir Sigurð- ur. Kveikja í sameignum húsa í hefndarskyni Formaður Húseigendafélagsins segir erindi frá forsvarsmönnum húsfélaga tíð vegna brota eigenda og íbúa. Hann segir íbúðir verða miðstöðvar ofbeldis- manna og ógæfufólks sem svífst einskis. Íbúar oft of hræddir til að kvarta. Um er að ræða dópgreni þar sem eiturlyf, brennivín og ofbeldishneigð mynda háskalega blöndu og skapa neyð- arástand. Ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti um 0,45 pró- sent er ekki heppileg, og getur gert samningsaðilum erfiðara fyrir að ná saman í komandi kjarasamning- um. Þetta sagði Geir H. Haarde for- sætisráðherra í umræðum á Alþingi í gær. Geir sagði ákvörðun Seðlabank- ans frá því á fimmtudag hafa komið á óvart, en bankinn hefði sjálfstæð- ar heimildir til að beita þessari aðferð þegar honum þætti ástæða til. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra sagði að ekki yrði betur séð en að forsvarsmenn Seðla- bankans væru með augun á baksýn- isspeglinum þegar þeir færðu rök fyrir hækkuninni. Réttara hefði verið að horfa fram á veginn. Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra sagði rangt í rökstuðningi Seðlabankans að framkvæmdir rík- isins væru að aukast umfram það sem fyrirsjáanlegt hefði verið. Bankinn hefði átt að geta séð aukn- ar framkvæmdir vegna mótvægis- aðgerða og samgöngumála fyrir. Stjórnarandstæðingum kom hækkun stýrivaxta ekki á óvart. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, kallaði eftir afstöðu stjórnvalda: „Má búast við því áfram að við horfum á það ástand að Seðlabankinn botnstígi brems- urnar en ríkisstjórnin sé á bensín- gjöfinni?“ Hækkun stýrivaxta óheppileg Samtök iðnaðar- ins gagnrýna bankastjórn Seðlabanka Íslands harðlega fyrir vaxtahækkunina sem tilkynnt var fyrir helgi og telja hana mis- ráðna. „Hækkunin ýtir undir flótta fyrirtækja frá háum vöxtum, sterku og óstöðugu gengi. Vaxtahækkunin mun enn auka umsvif erlendra spákaupmanna sem hafa fært mikið fé inn í hagkerfið, þó ekki til að fjárfesta í íslenskum atvinnurekstri heldur til að hirða auðfenginn vaxtamun. Þeir geta horfið án fyrirvara,“ segir í grein á vef Samtaka iðnaðarins. Hvetur til flótta fyrirtækjanna T Ó N L E I K A R Á ALLRA HEILAGRA MESSU 4. NÓVEMBER 2007 KL. 17.00 Í HALLGRÍMSKIRKJU Marta Guðrún Halldórsdóttir SÓPRAN Benedikt Ingólfsson BARITÓN Mótettukór Hallgrímskirkju Elísabet Waage HARPA Björn Steinar Sólbergsson ORGEL STJÓRNANDI: Hörður Áskelsson MIÐASALA Í HALLGRÍMSKIRKJU VERÐ: 2.000/1.500 K R. Ökumaður fólksbíls liggur mikið slasaður á Landspítalanum eftir harðan árekstur á Selfossi í gærmorgun. Slysið varð á Suðurlandsvegi til móts við Hrísmýri. Ökumaður fólksbíls hugðist beygja til vinstri af veginum þegar vörubíl var ekið aftan á hann. Fólksbíllinn kastaðist yfir á öfugan vegarhelming og lenti framan á sendiferðabíl. Ökumaður fólksbílsins var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans. Ekki fengust nánari upplýsingar um líðan hans áður en blaðið fór í prentun í gærkvöld. Ökumenn sendiferðabílsins og vörubílsins voru sendir til athugunar á sjúkrahúsið á Selfossi en sam- kvæmt lögreglu voru meiðsl þeirra ekki talin alvar- leg. Fólksbíllinn gjöreyðilagðist við áreksturinn og sendiferðabíllinn skemmdist einnig mikið. Þá voru fjórir fluttir á slysadeild Landspítalans eftir árekstur á mótum Miklubrautar og Grensás- vegar um þrjúleytið í gærdag. Meiðsl fólksins voru ekki talin alvarleg. Nokkrar tafir urðu á umferð um gatnamótin en kalla þurfti út kranabíla til að fjarlægja bílana. Mikið slasaður eftir árekstur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.