Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 64
Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr
kemur fram ásamt félögum á tón-
leikum í Fríkirkjunni í Reykjavík
á morgun kl. 17 og flytur tékk-
neska tónlist.
Á efnisskránni er hin fræga
serenaða eftir Antonín Dvorák
fyrir tíu blásara, selló og kontra-
bassa. Einnig verða fluttir slav-
neskir dansar eftir Dvorák og
Oktett-partíta eftir Franz Kromm-
er.
Serenaðan eftir Dvorák er eitt
af fegurstu verkum tónbók-
menntanna fyrir blásara og eitt af
fáum rómantískum verkum fyrir
slíkan hóp. Dvorák sótti innblást-
ur í bæheimskan uppruna sinn við
samningu tónverka og eru dans-
arnir eftir hann óþrjótandi upp-
spretta tónlistarflutnings. Tón-
skáldið Franz Krommer var
samtímamaður Mozarts og má
lýsa honum sem eins konar tékk-
neskri útgáfu af meistaranum.
Krommer starfaði lengst af í
Austurríki og samdi fjölda tón-
verka, þar af yfir 20 blásaraokt-
etta.
Hnúkaþeyr hefur starfað frá
árinu 2003 og ávallt fengið afar
lofsamlega dóma fyrir tónlistar-
flutning sinn. „Markmið okkar
hefur verið að kynna blásaratón-
listina og leika á tvennum til
þrennum tónleikum á ári. Við
höfum nokkrum sinnum spilað í
Dómkirkjunni og einnig spilað
dálítið úti á landi og höfum því
náð til margra,“ segir Kristín
Mjöll Jakobsdóttir, en hún er með-
limur í hópnum.
Tónlistin sem flutt verður á tón-
leikunum einkennist af þjóðlaga-
blæ. „Þetta er allt saman tékknesk
tónlist og þrátt fyrir að hún sé
klassísk má heyra þjóðlagaáhrif í
öllum verkunum. Þessi tónlist er
einkar hressileg og skemmtileg,
en það er nokkuð sem einkennir
gjarnan blásaratónlist. Blásturs-
hljóðfæri voru fyrst og fremst
notuð til að skemmta fólki á fyrri
öldum og því einkennist slík tón-
list gjarnan af fjöri, þótt angur-
værir kaflar leynist inni á milli,“
segir Kristín. Almennt miðaverð
á tónleikana er 1.500 kr.
Tékkneskt fjör
í Fríkirkjunni
Í gærkvöldi var óperufrumsýning
í Iðnó. Þar var frumflutt af nem-
endum Tónlistarskólans í Reykja-
vík óperan Die Verschworenen
sem er gamanópera eftir Franz
Schubert. Hafa reyndar aldrei
verið sýndar óperur eftir hann hér
á landi fyrir utan Meyjarskemm-
una sem var samansafn af lögum
og hefur verið flutt hér nokkrum
sinnum, einmitt fyrst í Iðnó þar
sem hún gekk misserunum
saman.
Þessi ópera fjallar um eiginkon-
ur riddara sem eru orðnar þreytt-
ar á fjarveru þeirra í stríði og
neita þeim um samlíf þar til þeir
sættast á að hætta stríðsbröltinu.
Byggir óperan á sömu hugmynd
og Lýsistrata eftir Aristofanes
sem þekkt er hér á landi. Hún var
síðasta verkið fyrir svið sem Shu-
bert vann að og átti erfitt með að
koma á svið sem leiddi til þess að
hann sneri frá óperusmíðum og
næstu árin á eftir 1922 samdi hann
bæði lagabálkinn sem kenndur er
við Malarastúlkuna og Vetrarferð-
in. Hinar óperur hans tvær,
Alfonso und Estrella, og Fierra-
bras sem samdar voru á undan
Die Verschworenen floppuðu
báðar, og fjórða sviðsverkið, Rosa-
munde hvarf af sviðinu eftir tvær
sýningar. Margt í þessum verkum
þykir í dag bitastætt og Schubert-
aðdáendur ættu að kíkja á krakk-
ana úr Tónlistarskólanum en sýn-
ingar verða í kvöld og annað kvöld.
Hljómsveitin er öll skipuð nem-
endum og allir söngvararnir eru
nemendur og eru flytjendurnir
allt frá tólf ára til þrítugs. Ein af
söngkonunum er nýbúin að fá hlut-
verk þrátt fyrir ungan aldur, er
aðeins 24 ára, hjá Íslensku óper-
unni eftir áramót. Mjór er mikils
vísir.
Schubert í Iðnó
KorpArt-hópurinn á Sjónlistamið-
stöðinni á Korpúlfsstöðum í Graf-
arvogi mun opna vinnustofur sínar
í dag frá kl. 12 til kl. 16. Gestum og
gangandi gefst þar með tækifæri
til að spjalla við listamennina og
hönnuðina sem þar starfa um verk
þeirra. Mikil fjölbreytni ríkir í
þeirri liststarfsemi sem fer fram á
Korpúlfsstöðum og má sem dæmi
nefna að þar er lögð stund á mál-
aralist, leirlist, textíl, fatahönnun,
hreyfimyndagerð, grafíska hönn-
un og landslagsarkitektúr.
Í vetur er opið hús á Korpúlfs-
stöðum fyrsta laugardag í hverj-
um mánuði og verða þar í boði
breytilegar sýningar og ýmsar
uppákomur. Nánari upplýsingar
um þá listamenn og hönnuði sem
þar starfa má sjá á vefsíðunni
www.korpart.is
Listfengur laugardagur
á Korpúlfsstöðum
- Ekkert hlé á góðum myndum
Engin truflun3Minna af auglýsingum2Ekkert hlé1
THIS IS
ENGLAND
MYND EFTIR SHANE MEADOWS