Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 1
KASPER SALTONotagildi ofar fagurfræði
GERSEMARGummi Jóns á mynd úr safni ömmu sinnar
HEIMILIÐ
Þjóðlegtá íslensk heimili
hús&heimiliLAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007
Áhugi íslenskra knatt-
spyrnuáhugamanna á að komast á
leiki helgarinnar í ensku knatt-
spyrnunni var langt umfram það
sem flugfélög og ferðaskrifstofur
gátu annað.
Í London eigast við í dag topplið-
in Arsenal og Manchester United
og Íslendingaliðið West Ham tekur
á móti Bolton á morgun.
„Það hafa lengi verið biðlistar í
þessar ferðir,“ segir Helga
Eysteinsdóttir hjá Iceland Express,
sem ekki vill gefa upp fjöldann
sem fer á leiki helgarinnar á þeirra
vegum.
Þórunn Bjarnadóttir hjá Úrval-
Útsýn segir flesta af þeirra farþeg-
um um þessa helgi hafa farið til að
sjá leik West Ham gegn Bolton.
Ferðaskrifstofan hafi einfaldlega
mjög fáa miða á leiki stórliðanna.
Sumir séu tilbúnir til að borga hátt
verð fyrir aðgöngumiðana eina.
„Það eru um 30 sem fara frá
okkur á Arsenal-leikinn og um 70
á leik West Ham. Við eigum tut-
tugu ársmiða sem alltaf eru upp-
seldir. Svo reynum við að fá
aukamiða en þeir eru mjög dýrir.
Dýrustu aukamiðarnir núna voru
á milli 30 til 40 þúsund krónur
stykkið. Það liggur við að það sé
eins og heil ferð en sumir vilja
borga fyrir þetta.“
Borguðu 40 þúsund á völlinn
Írlandsstjórn hefur lagt
fyrir íslensk, dönsk og bresk
stjórnvöld málamiðlunartillögu í
deilu landanna
um réttinn til
gas- og olíuleit-
ar á Hatton-
Rockall-
svæðinu suður
af Reykjanes-
hrygg í Atlants-
hafi.
Þjóðréttarleg
deila landanna
um landgrunns-
réttindi á svæðinu hafa staðið yfir
í fimm ár. Í kjölfar tveggja daga
samningafundar í Kaupmanna-
höfn lögðu samningamenn Íra
fram málamiðlunartillögu í gær,
en samkvæmt henni yrði svæðinu
deilt upp milli deiluaðila.
Að sögn Dermots Ahern,
utanríkisráðherra Írlands, voru
viðbrögð fulltrúa Færeyja/
Danmerkur jákvæð en Íslands
síður. Írar og Bretar gerðu þegar
árið 1988 með sér samkomulag
um að deila auðlindum sem
finnast kynnu á svæðinu.
Írsk málamiðl-
unartillaga
Hundurinn Toby
og kötturinn Winnie voru í gær
útnefnd „Gæludýr ársins“ af
dýraverndarsamtökum Banda-
ríkjanna. Eigendur beggja dýra
segja þau hafa bjargað lífi sínu.
Debbie Pakhurst frá Maryland
var við að kafna eftir að eplabiti
hrökk ofan í hana þegar hundur-
inn Toby, tveggja og hálfs árs
gamall golden retriever, stökk
ofan á hana svo að bitinn hrökk
upp úr henni.
Keesling-fjölskyldan var að
sofna svefninum langa af
kolmónoxíðeitrun á heimili sínu í
Indiana þegar kötturinn Winnie
hvæsti og klóraði í höfuð húsmóð-
urinnar svo að hún rankaði við sér
og gat hringt í neyðarlínuna.
Hetjudáðir
verðlaunaðar
Hópur félaga vél-
hjólasamtakanna Hell‘s Angels,
eða Vítisengla, var vistaður í
Leifsstöð í nótt undir strangri
öryggisgæslu lögreglu. Vítisengl-
arnir voru handteknir við kom-
una til landsins í gær og yfir-
heyrðir. Til stóð að senda þá til
síns heima í morgun. Rökstuddur
grunur var um að að minnsta
kosti einhverjir þeirra manna
sem komu til landsins í gær hefðu
hlotið dóma vegna afbrota í
heimalandinu.
Tilgangur ferðar þeirra var að
sitja afmælisfagnað vélhjóla-
klúbbsins Fáfnis sem heldur upp
á ellefu ára afmæli sitt í dag.
Gríðarlegur viðbúnaður var í
Leifsstöð í gærdag þegar fyrstu
Vítisenglarnir voru væntanlegir.
Tugir lögreglumanna voru við
öllu búnir í Leifsstöð. Liðið var að
mestu skipað sérsveitarmönnum
ríkislögreglustjóra af höfuðborg-
arsvæðinu og Suðurnesjum, svo
og lögregluliði af Suðurnesjum,
auk nemenda úr Lögregluskólan-
um.
Fyrstu Vítisenglarnir komu til
landsins frá Osló um fjögurleytið
í gær. Mennirnir voru handteknir
við komuna.
Næsti hópur kom um hálfátta-
leytið í gærkvöld, einnig frá Osló.
Samtals voru þá sjö Vítisenglar
komnir inn í Leifsstöð, þar sem
þeir máttu dúsa í nótt. Þriðji hóp-
urinn var talinn væntanlegur frá
Kaupmannahöfn þegar blaðið fór
í prentun í gærkvöld.
Greiningardeild ríkislögreglu-
stjóra fékk fyrir skömmu upplýs-
ingar frá erlendum samstarfsað-
ilum um að til landsins væri
stefnt fjölda Vítisengla vegna
afmælisveislu vélhjólaklúbbsins
Fáfnis. Dómsmálaráðherra ákvað
í gær, að tillögu ríkislögreglu-
stjóra, að taka upp tímabundið
landamæraeftirlit á innri landa-
mærum Schengen-svæðisins og
stendur það fram á sunnudags-
kvöld.
Embætti ríkislögreglustjóra
hefur farið með yfirstjórn
aðgerðanna.
Hópur Vítisengla var
vistaður í Leifsstöð
Hópur Vítisengla frá Osló var handtekinn í Leifsstöð í gærdag við komuna hing-
að til lands. Þeir voru yfirheyrðir og síðan vistaðir í flugstöðinni undir strangri
öryggisgæslu lögreglu í nótt. Sumir voru taldir dæmdir afbrotamenn.
Formlega í raunveruleikanum Með rauða húfu og englahár