Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 22
Síðasti undirbúningur fyrir utan- landsferðina er að baki. Nú er okkur ekkert að vanbúnaði. Á mánudaginn leggjum við af stað til Suður-Frakklands. Þar ætlum við að vera með fleira fólki þar til á laugardag en þá förum við til Parísar að skemmta okkur og komum ekki heim fyrr en mið- vikudaginn 7. nóvember. Í kvöld hafði ég lambalæri að forníslenskum sið fyrir börnin því að einhvern veginn hef ég á til- finningunni að í fjarveru afa og ömmu muni hlutfall langsoð- inna rétta í fæðuvalinu lækka en skyndipitsum, pylsum og borgurum fjölga að sama skapi. Nú hefur frú Sólveig náð þeim þroska í lífinu að hún er orðin svo mikill minimalisti að okkur hjónum nægir ein ferða- taska í tíu daga ferðalag. Þessi ferðataska er að vísu ívið stærri en tvær litlar. Á skóla- árum mínum starf- aði ég stundum við handlang hjá afkastamiklum og kröfuhörðum múrurum og lærði þá list að aka níðþungum hjólbör- um fullum af steypu svo að það mun ekki vefjast fyrir mér að aka þessari ferðatösku, sem er í raun klæðaskápur á hjólum, suður til Frakklands þangað sem ferðinni er heitið á morgun. Glampandi sólskin og 18 stiga hiti. Núna eru allir ferðafélagarnir samankomnir í litlu húsi þar sem heitir Beaurecueil í námunda við Aix-en-Provence. Ferðalagið var eins notalegt og nútímaferðalag getur orðið. Flugið frá Keflavík til Lundúna fór nefni- lega á siðmenntuðum tíma um hádegisbil og síðan höfðum við góðan tíma til að ná tengifluginu til Marignan-flugvallar í Mars- eille. Í sárabót fyrir þá ömurlegu niðurlægingu sem fylgir flugferð- um hef ég það fyrir reglu þegar ég á leið um Gatwick að koma við á sjávarréttabarnum og borða ostrur sem eru fullar af fjörefn- um. Þarna hittum við samferða- fólkið, Ævar og Guðrúnu, sem voru búin að vera í nokkra daga í London þar sem Ævar var að sinna samstarfi við kollega sína á útvarpinu hjá BBC. Hérna í Beaurecueil búum við úti í sveit í dálitlu húsi sem við leigjum af fornum kunningja Hrafnhildar og Péturs. Pétur bættist svo í hópinn í dag en hann var á einhverju rithöf- undaþingi í Trieste. Morgunkaffið drukkum við utanhúss. Hér er blæja- logn og 18 stiga hiti. Húsið er umlukt skógi á alla vegu og trén halda okkur haust- litasýningu. Rétt fyrir neðan húsið niðar lítill og tær lækur og fyrir ofan húsið er dálítil brekka, þaðan sem sér á Sainte Victo- ire-fjallið en þar mál- aði Cézanne af sama ákafa og Kjarval á Þingvöllum og Ásgrímur í Borgarfirðinum og við rætur Sainte Victoire í Vauven- argues átti Picasso dálítið slot þar sem hann bjó löngum stundum. Leirkennd moldin í brekkunni hérna fyrir ofan okkur er rauð eins og jörðin í Afríku og loftið angar af kryddjurtum. Hér vex bæði nóg rósmarín og blóðberg til að krydda allan íslenska fjárstofn- inn. Aix-en-Provence er fallegur bær, á stærð við Reykjavík en töluvert eldri. Hér stofnaði Caius Sextius Calvinus rómverska her- stöð í Gallíu árið 122 f. Kr. því að hér eru góð vatnsból, Nafnið Aix er orðið til úr Aquae Sextiae, vötn Sextíusar, og það eru mikil hlunn- indi að hér um slóðir getur maður þambað kranavatn sem gefur Gvendarbrunnavatni ekkert eftir. Í Aix búa um 150 þúsund manns og þar er háskóli í tengslum við háskólann í Marseille. Hér hafa heilmargir Íslendingar stund- að nám. Pétur og Hrafnhildur voru hér hagvön þegar við Sólveig komum og eyddum hér vetrinum 1971-72. Nokkr- um árum síðar komu svo Guð- rún og Ævar og nutu hand- leiðslu Péturs og Hrafnhildar eins og við. Ekki hef ég grænan grun um á hverju fólkið í Aix lifir nema ef vera kynni hvert á öðru og svo á þjónustu tengdri háskólanum en hér virðist drjúpa smjör af hverju strái. Við Sólveig höfum ekki komið hingað í 35 ár. Hrafnhildur og Pétur hafa haldið tengslum við staðinn og koma hingað oft, bæði til að vera í fríi og ekki síður til að vinna, því að hér er mikil friðsæld. Núna þarf Hrafnhildur að sinna einhverju verkefni. Pétur er að stússa fyrir rithöfunda. Ævar og Guðrún þurfa líka eitthvað að sýsla en við Sólveig erum áhyggju- laus og komum eingöngu til að skoða okkur um á fornum slóðum og taka okkur frá daglegu amstri. Það var gaman að reika um göt- urnar í Aix. Smátt og smátt fara minningar sem maður hélt að væru löngu gleymdar að seytla inn í hugann. Pétur sem er stálminnugur leiddi okkur á merkilegan sögu- stað þar sem Sólveig vann eitt af sínum frægustu afreksverkum. Þetta var fyrir mína tíð í Aix en Sólveig hafði orðið sér úti um gamlan bílskrjóð til að geta betur skoðað sig um og kíkt niður á Rívíeruna. Á þessum tíma tíðkað- ist bílaumferð um þröngar göturn- ar í miðbænum. Einhverju sinni ætlaði Sólveig að stytta sér leið og ók inn í götu sem er óvenjuþröng, jafnvel á mælikvarða miðalda. Hún taldi sig þó vera á réttri leið eins og ævinlega en gáði ekki að því að gatan þrengdist jafnt og þétt og ók ótrauð áfram þar til hún festi bíl- inn milli húsa. Það varð Sólveigu til bjargar að sólgluggi var á þakinu og ótal hjálpfúsar hendur hífðu hana upp úr bílnum og Pétur heldur því fram að þetta akstursafrek hinnar ljós- hærðu norðanstúlku lifi enn í sögu og ljóði hér suður í Provence. Hann leiddi okkur að götunni en nú hafa þær framfarir orðið að rimlagrind úr járni til koma í veg fyrir að öku- menn villist inn í götuna. Þetta hlið segir Pétur að hafi verið sett upp sem minnisvarði um aksturs- afrek frú Sólveigar árið 1970. Við fórum öll saman út að Júdasarheilkennið og fullkomið aðgerðale Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá ferðalagi til Suður-Frakklands, 18 stiga heitu hausti, ostrum, kryddjurtum, listrænu fjalli og klæðaskáp á hjólum; einnig er komið inn á Bakkynjur, Júdasarheilkennið og franskan minnisvarða um akstursafrek frú Sólveigar á því Herrans ári 1970. Au ka bú na ðu r á m yn d: Ál fe lg ur og þo ku ljó s 1.729.000 XR PEUGEOT Umboðsaðilar:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.