Fréttablaðið - 03.11.2007, Síða 80

Fréttablaðið - 03.11.2007, Síða 80
Umræða um endurútgáfu bók-arinnar Tíu litlir negrastrák- ar með teikningum eftir Mugg er svolítið athyglisverð. Mér finnst sjálfum fullkomlega ástæðulaust að endurútgefa þessa bók, hún má kjurr liggja, einkum og sér í lagi í ljósi þess að hún á sér rætur í dálítið viðurstyggilegri hug- myndafræði, alveg burtséð frá því hvað teikningarnar kunna að vera kjút og rímið snjallt. sem mér hefur fundist athyglisverðast í þessari umræðu eru viðbrögð tiltekinna ofurfrjáls- lyndra hugsuða – og tel ég mig reyndar verulega frjálslyndan sjálfan – við þessari gagnrýni á endurútgáfuna. Menn stökkva upp á nef sér í vörn fyrir prent- og tjáningarfrelsi og spyrja: „Má ekkert gera? Vill fólk bókabrenn- ur?“ er mikilvægt að verja prent- og tjáningarfrelsi með kjafti og klóm. En það er líka mikilvægt að gera sér grein fyrir því að oft snú- ast svona deilumál ekki endilega um réttindi. Í tilviki negrastrák- anna eru held ég fáir sem halda því fram að það megi ekki, út frá lögum og reglum, endurútgefa bókina. Hins vegar eru margir sem telja að það hefði vel mátt sleppa því. Það er margt sem má. En það er ekki þar með sagt að maður eigi endilega að gera allt sem má. bara bókabrennur sem dæmi. Út af fyrir sig get ég ekki ímyndað mér að það sé nokkuð í lögum sem kemur í veg fyrir það að fólk geti brennt bækur. Er það ekki bara athafnafrelsi? Einhverj- um kynni að finnast það beinlínis skynsamlegt að brenna bækur. Þær safnast fyrir innan heimilis. Sumar seljast ekki yfir höfuð. Sumir gætu líka talið – talandi um tjáningarfrelsi - að slíkar brennur væru mjög vel til þess fallnar að tjá andúð á því sem í tilteknum bókum stendur. Kannski telja sumir það beinlínis kósí að ylja sér við slík mótmæli að vetrar- lagi. flestir eru hins vegar mjög ákveðið á móti bókabrennum, skiljanlega. Hinir ofurfrjálslyndu líka. En spurningin er: Af hverju er það? Jú, þær tengjast ákveðinni viðurstyggð í sögunni. En hér blas- ir við klemma: Þeir sem hvað harðast mæla með því að það sé fullkomlega í lagi að gefa út bækur eins og Tíu litla negrastráka hljóta að telja það jafnframt hið sjálf- sagðasta mál að fólk brenni slíkar bækur ef það svo kýs. Þetta eru í stuttu máli ógöngur hinna ofur- frjálslyndu. Bókabrennur © In te r I KE A Sy ste m s B .V .2 00 7 www.IKEA.is Opið virka daga Opið laugardaga Opið sunnudaga 10.00 - 20.00 10.00 - 18.00 12.00 - 18.00 Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.