Fréttablaðið - 03.11.2007, Síða 10
Færeyingar fá
ekki fulla aðild að Norðurlanda-
ráði, eins og þeir hafa sóst eftir
síðan árið 2003. En á grundvelli
svonefndrar Álandseyjayfirlýs-
ingar samstarfsráðherra Norður-
landanna fá norrænu sjálfstjórn-
arsvæðin rétt til aukinnar þátttöku
í hinu opinbera norræna sam-
starfi með seturétti í stofnunum
og vinnuhópum. Þetta varð niður-
staða umræðu um stöðu sjálf-
stjórnarsvæðanna á þingi Norður-
landaráðs í Ósló.
Þingfulltrúar Íslands og Dan-
merkur – að meðtöldum færeysku
og grænlensku fulltrúunum –
lögðu fram tillögu um að stofn-
sáttmála Norðurlandaráðs, Hels-
ingforssáttmálanum, yrði breytt
þannig að sjálfstjórnarsvæðin
gætu átt sínar eigin sendinefndir
hjá ráðinu, eins og reyndin er nú
þegar þótt ekki sé gert ráð fyrir
því í sáttmálanum. Tillagan var
felld með 37 atkvæðum gegn 20.
Árni Páll Árnason, formaður
Íslandsdeildar Norðurlandaráðs,
segir það hafa verið viðbúið að ti
llagan yrði felld. „En ég vona að
þetta sé fyrsti dropinn sem holar
steininn,“ segir hann. Það sé veik
afstaða til lengri tíma litið „að
hengja sig í að það sé flókið
úrlausnarefni að breyta samn-
ingi“. Íslendingar myndu áfram
styðja málstað Færeyinga.
Færeyski samstarfsráðherrann
Jógvan á Lakjuni sagði Færey-
inga þakkláta fyrir hvert skref
sem stigið væri í átt að því að
bæta möguleika þeirra á að taka
þátt í norrænu samstarfi. Hann
sagðist vonast til að áfram yrði
unnið að því að koma til móts við
óskir þeirra og að einn góðan veð-
urdag fengju þeir fulla aðild bæði
að Norðurlandaráði og Norrænu
ráðherranefndinni.
Fá ekki sjálf-
stæða aðild
Fulltrúar Íslands í Norðurlandaráði áttu þátt í til-
lögu um að breyta stofnsáttmála ráðsins þannig að
hann gerði ráð fyrir sjálfstæðri þátttöku fulltrúa frá
stjálfstjórnarsvæðunum. Tillagan var felld en aukin
þátttaka fulltrúa sjálfstjórnarsvæðanna samþykkt.
Flóttamaður frá
Írak, sem fyllti leyniþjónustuna í
Þýskalandi af lygum um efnavopn
í Írak, heitir Rafid Ahmed Alwan,
en er enginn efnaverkfræðingur
eins og hann þóttist vera.
Þetta kemur fram í bandaríska
fréttaskýringaþættinum 60 mín-
útur, sem sendur verður út á morg-
un.
Bandaríkjastjórn rökstuddi
ákvörðun sína um að fara í stríð
gegn Írak að stórum hluta með
upplýsingum frá Alwan, sem til
þessa hefur aðeins verið þekktur
undir dulnefninu „Curveball“.
Þýskir leyniþjónustumenn létu
bandarískum stjórnvöldum í té
upplýsingar frá Alwan, en skýrðu
jafnframt frá alvarlegum efa-
semdum sínum um áreiðanleika
þeirra.
Laug til um efnavopn
Salmonella hefur
greinst í óinnpökkuðum svínseyr-
um og nagbeinum úr nautgripum
sem voru til sölu í gæludýraversl-
uninni Tokyo, Hjallabraut 4 í
Hafnarfirði. Nagdótið er innflutt
og frá sama framleiðanda og svína-
nagbein sem salmonella greindist
í snemma í október síðastliðnum.
Það hefur nú verið tekið úr sölu og
fargað.
Landbúnaðarstofnun hvetur
gæludýraeigendur sem hafa undir
höndum umrætt nagdót til að skila
þeim í verslunina eða farga þeim
með öruggum hætti.
kl.
08
:00
Á FÖSTUDAGINN