Fréttablaðið - 03.11.2007, Page 11
Ríki við Persaflóa eru
tilbúin að stofna með sér samtök
til að útvega Írönum auðgað úran.
Þetta kom fram á fréttavef BBC.
Prins frá Sádi-Arabíu, Saud al-
Faisal, segir að slíkt tilboð gæti
stöðvað þá spennu sem ríkir milli
Írans og Bandaríkjanna vegna
kröfu Íransstjórnar um að fá að
framleiða kjarnorku.
Rússar lögðu fram svipað tilboð
í desember árið 2005, en viðræð-
um lauk án nokkurs samkomu-
lags. Í þetta sinn munu Barein,
Kúvæt, Óman, Katar, Sádi-Arabía
og Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin leggja fram tilboð, að því
er Saud segir.
Vilja útvega
Írönum úran
Þriðjungur af upphæð
námslána breytist í styrk ljúki
námi á tilskildum tíma, verði
frumvarp þingmanna Framsókn-
arflokksins að lögum. Frumvarpið
er líkt frumvarpi sem þingmenn
Samfylkingarinnar hafa mælt
fyrir á Alþingi á fyrri þingum en
ekki náð fram að ganga.
Birkir J. Jónsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, mælti fyrir
frumvarpinu á Alþingi í gær. Hann
benti á að mikill kostnaður hlytist
af miklu brottfalli nemenda. Yrði
frumvarpið að lögum myndi það
kosta um 1,6 milljarða á ári. Styrk-
urinn yrði nemendum hvatning til
að ljúka námi á tilsettum tíma sem
drægi úr kostnaði í menntakerf-
inu.
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, benti á að
frumvarpið væri afar líkt frum-
varpi sem Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra hefði lagt fram
sem óbreyttur þingmaður á und-
anförnum þingum. Samfylkingin
hefði þó viljað ganga lengra.
Katrín fagnaði því að þingmenn
Framsóknarflokks hefðu tekið
upp þetta mál, en spurði jafnframt
hvort flokkurinn hefði beitt sér
fyrir því að þessi leið yrði farin
þegar flokkurinn átti sæti í ríkis-
stjórn.
Birkir svaraði því þannig að
margt hefði unnist í menntamál-
um á þeim árum sem flokkurinn
sat í ríkisstjórn, og frábað hann
sér sandkassaleik um þetta mál,
enda um annað frumvarp að ræða
en Samfylkingin hafi lagt fram.
Deilt um frumleika frumvarps
Bifreiðastöð Hreyfils-Bæj-
arleiða mun halda áfram söfn-
un bleiku slaufunnar til styrktar
Krabbameinsfélagi Íslands. Nið-
urstaða söfnunarinnar fyrir okt-
óbermánuð liggur ekki fyrir en
markmið Hreyfils er að safna um
1,5 til 2 milljónum króna á tveim-
ur mánuðum.
Hreyfill kemur til með að
borga 10 krónur fyrir hverja ferð
og áætlar Vignir Þröstur Hjálm-
arsson deildarstjóri að leigubílar
fyrirtækisins fari allt að 70.000
ferðir mánaðarlega. Þá hafa
leigubílstjórar selt bleiku slauf-
una, einkennismerki átaksins.
Átak bifreiðastöðvarinnar
er það fyrsta sinnar tegundar í
heiminum og hefur vakið athygli
víða erlendis, að sögn Vignis
Þrastar.
Hreyfill stefnir
á tvær milljónir
Sævar Guðmunds-
son, umdæmisstjóri lögreglunnar
í Hafnarfirði, segir hegningar-
lagabrot í umdæmi lögreglunnar í
Hafnarfirði færri á hvern íbúa en
í öðrum umdæmum höfuðborgar-
svæðisins. Þetta kom fram á
fundi forvarnarnefndar Hafnar-
fjarðar á miðvikudag.
Hin lága glæpatíðni í Hafnar-
firði er aðallega þökkuð „hafn-
firska módelinu“ svokallaða sem
snýst að hluta til um að auka allt
samráð við aðila innan sveitarfé-
lagsins og góða samvinnu við íbúa
og stofnanir Hafnarfjarðar, að því
er segir í fundargerð forvarnar-
nefndarinnar.
Hafnfirska
módelið virkar
10
0%
lá
n
No
ta
ði
r b
íla
r
Sími 590 5040
Opið á Kletthálsi 11
mánudaga til föstudaga kl. 10–18 og laugardaga kl. 10–14
Nú býðst þér
Golf Variant
árgerð 2006 á frábærum kjörum
18.990 kr. á mánuði*
Vetrardekk fylgja
Verð 1.340.000 kr.
*
M
ið
að
v
ið
1
00
%
lá
n
fr
á
SP
F
já
rm
ög
nu
n
í 8
4
m
án
uð
i.
Á
rl
eg
h
lu
tf
al
ls
ta
la
k
os
tn
að
ar
: 6
,0
1%
.