Fréttablaðið - 03.11.2007, Qupperneq 75
Yfirmenn hjá McLaren-
liðinu í Formúlu 1 tilkynntu í gær
að ökuþórinn Fernando Alonso,
sem kom til liðsins fyrir nýafstaðið
tímabil, væri frjáls ferða sinna og
að þriggja ára samningi hans við
liðið yrði rift.
„Við viljum óska Alonso hins
besta í framtíðinni og hann er frá-
bær ökumaður þó svo að hann hafi
kannski ekki átt sitt besta tímabil
hjá okkur,“ sagði Ron Dennis, for-
kólfur McLaren-liðsins.
„Ég hef alla tíð frá því að ég var
lítill strákur viljað keyra fyrir
McLaren, en stundum ganga hlut-
irnir ekki eins og maður hefði
viljað. Ég lít ennþá á McLaren
sem frábært lið, þrátt fyrir að
samstarf mitt við liðið hafi gengið
upp og ofan og í sannleika sagt
hafi mér aldrei liðið eins og heima
hjá mér hjá liðinu,“ sagði í yfir-
lýsingu frá Alonso í kjölfar til-
kynningar McLaren-liðsins.
Ekki er vitað fyrir hvaða lið
Alonso keyrir á næsta tímabili, en
hann hefur verið sterklega
orðaður við endurkomu til
Renault-liðsins.
Sögusagnir eru hins vegar á
kreiki að McLaren-liðið ætli
aðeins að sleppa Alonso ef hann
fer í eitthvert af minni liðunum í
Formúlu 1 kappakstrinum.
Farinn frá McLaren
Fabio Cannavaro, 34 ára
varnarmaður Real Madrid, hefur
verið sterklega orðaður við AC
Milan í ítölskum fjölmiðlum
undanfarið og er sjálfur sagður
hvetja félagið til að kaupa sig.
„Ég hef reglulega verið orðaður
við AC Milan síðan Carlo Ance-
lotti tók við liðinu, enda ekkert
launungarmál að við erum góðir
vinir og ég ber mikla virðingu
fyrir honum sem knattspyrnu-
stjóra. Ég neita því heldur ekki að
það væri gaman að spila við hlið
Alessandro Nesta á ný. Við erum
góðir saman eins og sýndi sig í
síðustu úrslitakeppni HM,“ sagði
Cannavaro í viðtali við sjóvarps-
þáttinn Il rosso e il nero, sem er
helgaður AC Milan-liðinu.
Ef af kaupunum verður þarf
Cannavaro í það minnsta ekki að
hafa áhyggjur af aldri sínum því
fyrir hjá AC Milan eru varnar-
jálkarnir Paolo Maldini, 39 ára,
Cafu, 37 ára, Serginho, 36 ára, og
Giuseppe Favalli, 35 ára.
Á leiðinni til
AC Milan?
Tayshaun Prince
skoraði 34 stig í 91-80 sigri
Detroit Pistons á Miami Heat í
fyrsta leik beggja liða á tímabil-
inu. Detroit lék án Richard
Hamilton en það kom ekki að sök
því Prince hitti úr 13 af 23
skotum sínum og setti persónu-
legt met.
„Fyrst Rip var ekki með varð
ég að koma með svar,“ sagði
Prince eftir leikin. Chauncey
Billups, sem skoraði 19 stig og
gaf 11 stoðsendingar, talaði líka
um að Detroit þyrfti að vera
duglegra að nýta sér Prince.
„Hann skapar vandamál því
það er erfitt að finna mann til að
dekka hann og við verðum að
nýta það enn frekar,“ sagði
Billups.
Miami lék án Dwyane Wade
sem er enn að ná sér af meiðslun-
um á öxl og Pistons-liðið hélt
Shaquille O’Neal niðri en hann
tók aðeins sex skot og skoraði
bara 9 stig, sem komu öll í seinni
hálfleik.
Prinsinn lék
eins og kóngur
Grand Spa | Sigtúni 38 | 105 Reykjavík | Sími 578 8200 | grandspa@grandspa.is
Grand Spa | Sigtúni 38 | 105 Reykjavík | Sími 578 8200 | grandspa@grandspa.is