Fréttablaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 1
Elísabet Cochran á ljósbláa rúskinnskápu sem
móðir hennar keypti í sólarlandaferð árið 1964.Elísabet A. Cochran er grafískur hönnuður og eig-
andi fyrirtækisins Klingenberg & Cochran ehf Hún
á ljósbláa rúskinnskápu sem hún h ld
og hefur hú b
úr antilópuskinni. Hún er í sixtís-stíl og þótti mjög
sérstök á sínum tíma. Ég man eftir því í uppvextinum
hversu spes og falleg mér fannst móðir í
þegar hún klæddist káfi
Umbo›s- og sölua›iliBirkiaska ehf.sími: 551 9239www.birkiaska.is
Birkiaska
Auglýsingasími
– Mest lesið
farið á fjöllFIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 Aflmikil glæsikerraReynsluakstur Range Rover Sport SE TDV8 BLS. 4
Galvaskir
Gemlingar
EKTA ÍTALSKUR SKYNDIBITI!
NÝR STAÐUR Í FAXAFENI
Stjörnutorgi Kringlunni • Bláu húsunum Faxafeni • www.sbarro.is
Frábærir pastaréttir, ljúffengar pizzur og fersk salöt
Skilið verður á
milli kaupenda og seljenda í heil-
brigðiskerfinu og til verður ný
innkaupastofnun, nái hugmyndir
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heil-
brigðisráðherra fram að ganga.
Hann segir markmiðið að auka
gegnsæi og hagkvæmni. Notendur
þjónustunnar muni ekki finna mun
en þeir fái ef til vill fleiri valkosti.
Breytingin tengist ekki breyttu
greiðslufyrirkomulagi eða öðru
slíku hjá þeim sem njóta þjónust-
unnar.
Kaupandinn er í nær öllum til-
vikum ríkið sem greiðir fyrir
aðgerðir og aðra þjónustu. Selj-
endur þjónustunnar eru svo að
miklum hluta ríkisstofnanir á borð
við Landspítalann og aðrar heil-
brigðisstofnanir. Við breytingarn-
ar verður til stofnun þarna á milli
sem semur um kaup á þjónustu.
„Það hefur mikið verið kallað
eftir þessu, til dæmis á Landspítal-
anum og fleiri stofnunum, að það
verði betur skilgreint hvað er
verið að borga fyrir, og hvernig,“
segir Guðlaugur Þór.
Miðað er við að innkaupa-
stofnunin taki til starfa seint á
næsta ári. Hún hefur ekki hlotið
nafn en gengur í ráðuneytinu undir
vinnuheitinu Sjúkratryggingar.
„Undirliggjandi markmið er að
vera með enn betri heilbrigðis-
þjónustu en við erum með nú. Það
er í sjálfu sér ekki mikil róttækni í
þessu. Við erum að líta til þeirra
landa sem við berum okkur saman
við, Norðurlandanna og þá sér-
staklega Svíþjóðar, og læra af
þeim,“ segir Guðlaugur Þór.
Fyrirkomulagið mun virka
þannig að innkaupastofnunin, eða
Sjúkratryggingarnar, munu kaupa
tiltekinn fjölda aðgerða af heil-
brigðisstofnunum og semja um
greiðslur. Notaðar verða ákveðnar
mælieiningar til að meta afköst
kerfisins. Faglegt eftirlit í heil-
brigðiskerfinu verður að stærst-
um hluta hjá Landlækni en fjár-
hagslegt eftirlit verður hjá
innkaupastofnuninni og hjá Ríkis-
endurskoðun, segir Guðlaugur
Þór.
Þessum breytingum er ekki
ætlað einum og sér að leysa úr
rekstrarvanda heilbrigðisstofn-
ana. Þeim er þó ætlað að auka hag-
kvæmni kerfisins og skýra mark-
mið hverrar stofnunar fyrir sig
betur en verið hefur.
Breyta á heilbrigðiskerfinu
að norrænni fyrirmynd
Innkaupastofnun mun skilja á milli kaupenda og seljenda í heilbrigðiskerfinu. Hlutverk stofnunarinnar
verður að kaupa einstök verk af heilbrigðisstofnunum. Á að gera reksturinn hagkvæmari segir ráðherra.
Á kápu sem gengur
frá móður til dóttur
„Ég hef unnið hér í um 25 ár og séð
almennan sóðaskap aukast og þrifum á götunum fara
hnignandi,“ segir Magnús Örn Óskarsson, viðgerðar-
maður á reiðhjólaverkstæðinu Borgarhjól á Hverfis-
götu 50. Hann segist vart hafa undan í starfi sínu, svo
títt springi á dekkjum barnavagna og reiðhjóla vegna
glerbrota á götum miðborgarinnar.
„Fólk heldur hreinlega að dekkin séu gölluð vegna
þess hve oft springur á barnavögnunum en svo er
ekki. Sóðaskapurinn er bara orðinn svo mikill í
borginni og þrifum greinilega ábótavant,“ segir
Sigríður Arngrímsdóttir í fjölskyldufyrirtækinu
Vörðunni á Grettisgötu, sem hefur selt barnavagna í
meira en fjörutíu ár. Hún segir suma foreldra íhuga
að skipta yfir í gamaldags dekk sem ekki eru loftfyllt.
„Þau eru samt ekki eins góð og loftdekkin, það er svo
ægilega góð og mikil mýkt í þeim og synd að fólk
neyðist til að skipta,“ segir Sigríður.
Magnús segir að vissulega hafi þetta í för með sér
aukin viðskipti. „Þegar fólk kemur með börn í
vögnum sem sprungið er á verður maður auðvitað að
sinna því og ýta öðrum verkum frá,“ segir Magnús,
sem segist hneykslaður á sinnuleysi borgarinnar í
þrifum sem bitni svo á saklausu fólki.
Minnisvarði um kvenrétt-
indakonuna Bríeti Bjarnhéðins-
dóttur var afhjúpaður í gær.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri afhjúpaði minnisvarð-
ann, sem stendur á horni
Þingholtsstrætis og Amt-
mannsstígs. Bríet átti heima í
Þingholtsstræti 18 og þar var
Kvenréttindafélag Íslands
stofnað fyrir 100 árum.
Verkið er eftir Ólöfu Nordal
listakonu. „Hugmyndin að
verkinu er að það myndi stað
þar sem fólk getur komið
saman og átt samræður,“ segir
Ólöf. Hún segir verkið vera
flatt en utan um það séu
brekkur. Það sé hugsað þannig
að gengið sé í nærveru og
faðm Bríetar þegar komið sé
að því.
Minnisvarði
reistur um
merka konu