Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 4

Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 4
Átta létust og yfir tíu særðust þegar átján ára nemandi hóf skothríð í Jokela-milliskólan- um í Tuusula í Finnlandi sem er í 50 kílómetra fjarlægð frá höfuð- borginni Helsinki. Rektor skólans var meðal þeirra átta sem drengur- inn myrti. Hin voru öll nemendur, fimm drengir og tvær stúlkur. Byssumaðurinn skaut sjálfan sig í höfuðið og liggur alvarlega særður á sjúkrahúsi samkvæmt danska fréttavefnum Politiken. Rétt fyrir hádegi tilkynnti skóla- stjórinn í hátalarakerfi skólans að allir skyldu læsa sig inni í skóla- stofum sínum sagði kennarinn Kim Kiuru í samtali við finnsku útvarpsstöðina YLE. „Síðan sá ég byssumanninn á hlaupum með eitt- hvað í hendinni sem virtist vera lítil skammbyssa gegnum dyrnar í átt til mín. Ég náði að flýja á gang- inn niðri og hljóp í hina áttina ... nemendur mínir kölluðu svo til mín út um gluggann og spurðu hvað þau ættu að gera og ég sagði þeim að stökkva út um gluggana ... og allir nemendur mínir björguð- ust.“ Yfir 400 nemendur á aldrin- um tólf til átján ára eru í Jokela- milliskólanum. Í gærmorgun setti drengurinn myndband inn á myndbandavefinn YouTube sem hann nefndi Blóð- baðið í Jokela-milliskólanum. Á myndbandinu sást mynd af skóla- byggingunni og tvær myndir af ungum manni með skammbyssu í hendi. Á heimasíðu sinni hafði hann útbúið upplýsingapakka fyrir fjölmiðla með myndum og upplýs- ingum um fyrirhugaða skotárás. Auk atriða á borð við staðsetningu, tímasetningu og tegund vopns lýsti drengurinn árásinni svona: „Fjöldamorð, pólitískt hryðjuverk (þótt ég hafi valið skólann sem mitt skotmark eru ástæður árásar- innar miklu, miklu dýpri, og þess vegna vil ég ekki að þetta verði bara kallað „skotárás í skóla“. Drengurinn kemur úr ósköp venjulegri fjölskyldu að sögn Mattis Tohkanen, lögreglustjóra í Tuusula. Hann fékk byssuleyfi 19. október síðastliðinn og hefur hreint sakavottorð. Sagði árásina vera pólitískt hryðjuverk Finnska þjóðin er harmi slegin eftir skotárás í menntaskóla í gær þar sem rektor og sjö nemendur biðu bana. Yfir tíu manns særðust í árásinni. Byssumaðurinn er alvarlega slasaður á sjúkrahúsi eftir að hann skaut sjálfan sig í höfuðið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra upplýsti á þingi í gær að laun útvarpsstjóra RÚV væru 1.530.000 krónur. Það væru grunnlaun auk bifreiðagreiðslna og þóknunar fyrir fréttalestur. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, lagði fram fyrirspurn um málið á Alþingi. Sagði hann þetta sýna að laun útvarps- stjóra hefðu nær tvöfaldast síðan RÚV var breytt í opinbert hlutafélag í vor. Í svari Þorgerðar kom fram að launakostnaður yfirstjórnar RÚV hefði lækkað um þrettán milljónir króna, eða um tíu prósent. Ráðherra sagði sparnaðinn fara í innlenda dagskrárgerð. Útvarpsstjóri fær 1,5 milljónir Hæsta boð í ríkisjörð- ina Kollafjarðarnes í Stranda- sýslu var 67,7 milljónir króna. Tilboðsfrestur Ríkiskaupa rann út í gær. Kollafjarðarnes hefur verið í eyði síðustu fimm ár og húsa- kostur þar er sagður lélegur. Hins vegar er jörðin geysi- landmikil og býr yfir óvenju miklu undirlendi miðað við jarðir á Ströndum. Þar eru hlunnindi á borð við æðarvarp og reka. Auk þess hefur verið útróður frá Kollafjarðarnesi. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkiskaupum reyndist mikill áhugi vera á jörðinni. 67,7 milljónir fyrir ríkisjörð Sinnuleysi ríkisstjórnar- innar í efnahagsmálum er algert, og á því ber forsætisráðherra alla ábyrgð, segir Guðni Ágústsson, for- maður Framsóknarflokksins. Hann gagnrýndi ríkisstjórnina harkalega í utandagskrárumræðum um stýri- vaxtastig Seðlabanka Íslands á Alþingi í gær. Guðni sagði seðlabankastjóra hafa rassskellt ráðherra ríkis- stjórnarinnar á þriðjudag fyrir að sporna ekki við verðbólgunni. Seðlabankinn réði ekki einn við ástandið með endalausum stýri- vaxtahækkunum. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði vissulega hafa hrikt í efna- hagslífinu í uppgangi undanfarinna ára. Ýmsar breytingar hefðu verið gerðar sem eftir á að hyggja hefðu ekki allar verið rétt hugsaðar eða tímasettar, til að mynda hækkun lánshlutfalls Íbúðalánasjóðs, sem hefði ekki orðið til heilla. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, sagði tíma til kominn fyrir ríkisstjórnina að vakna. Afkoma útflutningsfyrir- tækja væri afar slæm og heimilin í landinu fengju slæmar kveðjur frá bankakerfinu sem hækkaði vexti þessa dagana. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra sagði ljóst að fyrri stýrivaxtahækkanir væru farnar að bíta og bankar farnir að hækka vexti. Margt benti til þess að ekki væri sama þenslan fram undan og verið hefði hér á landi. Evrópa má ekki vera „andvaralaus“ gagnvart hætt- unni á nýjum hryðjuverkaárás- um í álfunni. Svo segir Franco Frattini, sem fer með dómsmál í framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins, og vill hertari aðgerðir gegn hryðjuverkum. Fyrr í vikunni vöruðu sérfræðingar við því að líkur væru á frekar árásum öfgaíslamista í Evrópu. Umdeildasta tillaga Frattini er að ESB taki upp svipaðar flugöryggisreglur og eru í Bandaríkjunum, þar sem upplýsingum um flugfarþega er safnað og þær geymdar í mörg ár. ESB feti í spor Bandaríkjanna Fyrirhuguð virkjun í Hverfisfljóti skal sæta umhverfismati, samkvæmt úrskurði umhverfisráðuneytisins. Áður hafði Skipulagsstofnun sagt að virkjunin þyrfti ekki að fara í umhverfismat, en nú hefur umhverfisráðuneytið hnekkt þeirri ákvörðun. Í úrskurðinum segir að ráðu- neytið telji umhverfisáhrif fram- kvæmdanna geta orðið umtals- verð, og rök hnígi að því að hagsmunaaðilum og almenningi gefist færi á að gera athuga- semdir. Því verði ekki komist hjá því að láta framkvæmdina sæta umhverfismati. Virkjun í Hverfisfljóti sæti mati Ungur drengur slapp með ólíkindum vel þegar ekið var á hann um miðjan dag í gær. Drengurinn var að hjóla á mótum Snorrabrautar og Hringbrautar þegar slysið varð. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki upplýsingar um hvort drengurinn var fluttur á slysa- deild, en meiðsli hans voru mjög lítil. Drengur á hjóli varð fyrir bíl

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.