Fréttablaðið - 08.11.2007, Síða 10

Fréttablaðið - 08.11.2007, Síða 10
 Benazir Bhutto og Nawaz Sharif, sem bæði eru fyrr- verandi forsetar í Pakistan, hafa hvatt stuðningsmenn sína til að mótmæla neyðarlögum Pervez Musharraf forseta. Sharif biður jafnframt erlend ríki um að hætta stuðningi við forsetann. Í gær kom til harðra átaka í höfuðborginni Islamabad milli lögreglu og stuðningsmanna Bhutto, sem er nýkomin til lands- ins úr útlegð. Sharif er enn í útlegð. Á mánudag hafði Iftikar Muham- med Chaudry, hinn handtekni for- seti hæstaréttar Pakistans, hvatt lögfræðinga landsins til þess að sýna lögreglunni mótþróa og mót- mæla neyðarlögum Musharraf. „Farið út í hvern afkima Paki- stans og flytjið þann boðskap að í þetta sinn sé nauðsynlegt að færa fórnir,“ sagði Chaudry í símaá- varpi sínu. Þriggja daga mótmæli lögfræðinga hafa þó verið bæld niður og þúsundir manna verið hnepptir í fangelsi. Miklar óeirðir hafa brotist út víða í Pakistan síðustu daga, eftir að Musharraf forseti tók síðast- liðinn laugardag úr gildi stjórnar- skrá landsins. Gagnrýnendur segja hann aðeins vilja tryggja sér áframhaldandi völd, en sjálfur segist hann vilja koma í veg fyrir að öfgamúslimar hleypi öllu í bál og brand. Þúsundir hafa verið hnepptar í fangelsi „Fólk ræður hvort það vinnur yfirvinnu eða ekki,“ segir Guðmundur Gunnarsson, for- maður Rafiðnaðarsambandsins, en heimildir Fréttablaðsins herma að tæknimenn Ríkisútvarpsins (RÚV) íhugi að hætta að vinna yfirvinnu hjá stofuninni. Hyggj- ast þeir funda í dag og ræða launa- mál sín. Meðalgrunnlaun tæknimanna hjá RÚV eru 212 þúsund krónur og segir Guðmundur það um það bil hundrað þúsund krónum lægri upphæð en tíðkist á almennum vinnumarkaði. Starfsfólki er óleyfilegt að hafa samráð um yfirvinnubann en Jan Murtomaa, hljóðtæknimaður hjá RÚV, segir að um slíkt sé síður en svo að ræða. Hver og einn starfs- maður íhugi fyrir sig hvort hann hyggist halda áfram að vinna yfir- vinnu. „Það er slæmt að vita að tækni- menn sem hafa alið upp kynslóðir fjölmiðlafólks og gegna mikilli ábyrgð séu langt undir þeim laun- um sem tíðkast annar staðar í sam- félaginu. Enda fáum við varla lengur fólk hingað, það vill skilj- anlega enginn vera á þessum laun- um,“ segir Páll Guðmundsson, trúnaðarmaður tæknimanna RÚV. „Við fögnum launahækkun útvarpsstjóra en finnst undarlegt að hann vilji miða laun sín við það sem hann segir eðlilegt miðað við almennan vinnumarkað en laun undirmanna sinna við allra lægstu taxta,“ segir Guðmundur að lokum. Hyggjast neita yfirvinnu kr. aðra leiðina til Evrópu + Nánari upplýsingar og bókanir á www.icelandair.is Sölutímabil: 8. til og með 11. nóvember Ferðatímabil: 1. til og með 17. desember Takmarkað sætaframboð. Tilboðsverð frá www.hi.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /H S K 3 98 05 1 1/ 07 Spennandi kostir í framhaldsnámi Gott nám og rétt val þess er farsæl leið til lífsgæða og aukinna möguleika í starfi. Við félagsvísindadeild Háskóla Íslands bjóðast margir spennandi kostir í námi hjá hæfum og reyndum kennurum. Góðar aðstæður til náms • Fjölbreytni og sveigjanleiki • Starfstengt rannsóknarnám Nám með starfi • Nám stutt rannsóknum kennara Félagsvísindadeild Háskóla Íslands Odda v/Sturlugötu, 101 Reykjavík Sími 525 4502, felvisd@hi.is FÉLAGSVÍSINDI – Í ÞÁGU FRAMFARA FÉLAGSVÍSINDADEILD Doktorsnám í öllum greinum. Allar upplýsingar á www.felags.hi.is Umsóknarfrestur um meistara- og doktorsnám er til 15. nóvember • MLIS-nám í bókasafns- og upplýsingafræði • MA-nám og diplómanám í uppeldis- og menntunarfræði • MA-nám í kennslufræði (seinni hluti) • MA-nám og diplómanám í fötlunarfræði • MA-nám og diplómanám í félagsfræði • MA-nám og diplómanám í kynjafræði • MSW-nám í félagsráðgjöf • MA-nám og diplómanám í félagsráðgjöf • MA-nám í öldrunarfræðum • MA-nám í mannfræði • MA-nám og diplómanám í þróunarfræðum • MA-nám í þjóðfræði • MA-nám í hagnýtri þjóðfræði • MPA-nám og diplómanám í opinberri stjórnsýslu • MA-nám og diplómanám í alþjóðasamskiptum Auglýsingasími – Mest lesið Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp þess efnis að lög um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra verði afnumin. Samkvæmt lögunum á lögregla að tilkynna nafn ölvaðs manns, sem tekinn er tvisvar fyrir ölvun með skömmu millibili, til áfengis- varnaráðunauts eða áfengisvarna- nefndar. Þau fyrirbæri eru ekki til lengur, heldur fer Lýðheilsustöð með vímuvarnamál. Í athugasemdum við frumvarpið kemur fram að virða verði sjálfsákvörðunarrétt drykkju- sjúkra, líkt og annarra sjúklinga. Lög um ölvaða verði afnumin
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.