Fréttablaðið - 08.11.2007, Síða 16

Fréttablaðið - 08.11.2007, Síða 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Meinarðu Öryrkja- bandið? Eins og þruma úr heiðskíru? Undirbýr barnvæna viðburði Listamenn bregðast við Hegningarhúsið við Skóla- vörðustíg á sér langa og merka sögu enda elsta fang- elsi landsins. Þar hefur þó önnur merkileg starfsemi líka farið fram. Húsið hýsti um skeið Landsyfirrétt og Hæstarétt og þjónaði í raun hlutverki ráð- og dómhúss Reykjavíkur um nokkurt skeið. Gamli dómsalurinn var í notkun allt fram á síðasta áratug. Hann er nú friðaður og setur mikinn svip á húsið. „Dómsalurinn í Hegningarhús- inu er mjög merkilegur,“ segir Guðjón Friðriksson sagnfræð- ingur. Hegningarhúsið var tekið í notkun árið 1874 en tveir salir á efri hæð hússins voru notaðir fyrir bæjarþingið og fyrir dóm- hald. „Annar var upphaflega salur Landsyfirréttar, sem var æðsti dómstóll innanlands til 1919. Þá tók Hæstiréttur við og var þarna í húsinu allt til ársins 1947 þegar honum var reist nýtt hús við Lindargötu. Hinn salurinn var svokallaður borgarasalur. Þar fóru fram bæjarstjórnarfundir frá 1873 til 1903, sem og kosningar og bæjarþing Reykjavíkur.“ Margir vita ekki af dómsaln- um á efri hæð Hegningarhúss- ins, þar sem húsið hefur fyrst og fremst gegnt hlutverki fangelsis um nokkurt skeið. Að sögn Guð- mundar Gíslasonar yfirfanga- varðar voru þó kveðnir upp dómar þar allt fram á síðasta áratug. „Reyndar eingöngu í undan- tekningartilfellum. Til dæmis gátu dómarar úti á landi haft þar aðstöðu þegar þeir áttu leið í bæinn til að lesa dóm yfir eða yfir- heyra sakborning sem var kannski vistaður í fangelsinu, í stað þess að flytja hann út á land. Ég man eftir slíkum málum þegar ég var að byrja hér sem starfsmaður. En það var ekki reglulegt þinghald eða neitt slíkt.“ Fangavarðaskólinn var til húsa í dómsalnum á níunda og tíunda áratugnum en nú er hann friðaður og ekki má breyta neinum búnaði í honum. „Við höfum notað salinn undir fundi og styttri námskeið fyrir fangaverði,“ segir Guð- mundur, „en þessi hluti hússins verður ekki tekinn undir neina aðra starfsemi. En hann setur mikinn svip á daglegt líf hjá okkur sem vinnum hér: þetta er gamalt hús og virðulegt og við erum minntir á það á hverjum degi að þetta er vinnustaður með mikla sögu.“ Friðaður dómsalur við Skólavörðustíg
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.