Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 31
Elísabet Cochran á ljósbláa rúskinnskápu sem
móðir hennar keypti í sólarlandaferð árið 1964.
Elísabet A. Cochran er grafískur hönnuður og eig-
andi fyrirtækisins Klingenberg & Cochran ehf. Hún
á ljósbláa rúskinnskápu sem hún heldur mikið upp á
og hefur hún bæði tilfinningalegt gildi og á sér tals-
verða sögu. „Móðir mín, Sonja Helena Thorstensen,
fór alein í sólarlandaferð til Mallorca árið 1964 með
ferðaskrifstofunni Sunnu. Hún var þá um 26 ára
gömul og var tiltölulega nýbyrjað að fara í skipulegar
sólarlandaferðir frá Íslandi. Flogið var frá Reykja-
víkurflugvelli með skrúfuflugvél og þurfti að milli-
lenda í Kaupmannahöfn og gista í tvær nætur enda
dreif vélin ekki alla leið,“ segir Elísabet. Hún segir
að á þessum tíma hafi ekki verið algengt að fólk legði
upp í slíka langferð og þá sérstaklega ekki ungar
konur en þarna var Elísabet um fimm ára gömul.
„Á Mallorca keypti mamma ljósbláa rúskinnskápu
úr antilópuskinni. Hún er í sixtís-stíl og þótti mjög
sérstök á sínum tíma. Ég man eftir því í uppvextinum
hversu spes og falleg mér fannst móðir mín vera
þegar hún klæddist kápunni. Fyrir um það bil
fimmtán árum fékk ég svo að eiga hana og nota ég
hana mest spari, enda er bæði liturinn og skinnið við-
kvæmt. Ég passa vel upp á hana ef ske kynni að
dóttur mína langaði einhvern tímann til að eiga hana,“
segir Elísabet.
Hún segir að á kápunni séu frekar stuttar ermar og
að þær nái rétt niður fyrir olnboga. „Ef maður er í
einhverju innan undir sést það vel en oftast er ég
með armband, sem móðir mín fékk í fermingargjöf
árið 1952, við. Þetta er breitt silfurarmband sem var
sérsmíðað fyrir hana og er með nafninu hennar á.
Það má segja að ég klæði mig stundum í móður mína
en bæði kápunni og armbandinu fylgir ákveðin
nostalgía,“ segir Elísabet.
Í sixtískápu
móður sinnar
Ertu starfandi í greininni og hefur áhuga á a› ljúka
flví námi sem flú hófst?
Bættu um betur – Málarai›n er tilraunaverkefni sem mi›ar a›
flví a› meta færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›, óhá›
flví hvernig hennar hefur veri› afla›. Markmi›i› er a› flátttakendur
í verkefninu ljúki sveinsprófi.
Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA – fræ›slu-
setur í síma 590-6400 og fá frekari uppl‡singar um verkefni›.
Nánari uppl‡singar er a› finna á www.idan.is. Einnig er hægt
a› senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is.
Hófst flú nám í málarai›n
en laukst flví ekki?
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
4
26
.0
0
4
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska
Auglýsingasími
– Mest lesið