Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.11.2007, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 08.11.2007, Qupperneq 34
Ein af dauðasyndunum sjö er græðgi, en matarfíkn verður æ algengari og ágirnd í það sem sætt er. Íslendingar eiga Norðurlandamet í sykuráti, en hvað annað en sykur og gervi- sætuefni geta sefað nagandi sykurþörf landsmanna? „Vilji fólk sneiða alfarið hjá sykri og tilbúnum sætuefnum en þrái sætt bragð eru ávextir vænlegasti kosturinn,“ segir Hólmfríður Þor- geirsdóttir, næringarfræðingur hjá Lýðheilsustöð, en stofnunin hvetur landsmenn til að forðast öfgar og óhóf í mataræði. „Undanfarið hefur verið mikill áróður gegn sykurneyslu og margir hafa tekið allan hvítan sykur úr sínu mataræði. Við kom- umst auðvitað vel af án viðbætts sykurs en það er ekki endilega nauðsynlegt að útiloka hann alveg. Margir blekkja sjálfa sig með því að velja hrásykur eða önnur sætu- efni í staðinn, en þau eru lítið skárri en hvítur sykur fyrir heil- brigða einstaklinga. Lýðheilsustöð tekur ekki þátt í fanatík, en hvetur til fjölbreytts mataræðis og að fólk borði sem oftast hollan mat, og þar rúmast sykur innan ákveð- inna marka,“ segir Hólmfríður, sem telur ekki að fólk þurfi að úti- loka sykur þótt vandað sé til fæðu- vals að öðru leyti. „Sykurneysla hérlendis hefur verið mest hjá unglingum, en ráð- lagt er að sykur sé ekki meira en tíu prósent af orku dagsins. Þannig ætti manneskja á 2.000 hitaein- inga fæði ekki að innbyrða meira en 200 hitaeiningar úr viðbættum sykri, en það samsvarar 50 grömmum á dag, sem er til dæmis hálfur lítri af sykruðu gosi á dag. Þá er ekki pláss fyrir súkkulaði eða sykraðar vörur eins og morg- unkorn, mjólkurvörur og annað sem í leynist talsvert magn af við- bættum sykri,“ segir Hólmfríður. Með viðbættum sykri er átt við sykur sem bætt er í matvörur í framleiðslu og getur verið allt frá hvítum sykri, sírópi, hunangi, hrá- sykri, púðursykri, mólassa og ávaxtasykri svo eitthvað sé nefnt. „Það getur verið erfitt að átta sig á magni viðbætts sykurs í vörum því það er ekki skylda að gefa það upp á umbúðum. Sykur frá náttúr- unnar hendi finnst auk þess í mörg- um matvælum, eins og mjólkur- sykur í mjólkurvörum og ávaxtasykur í ávöxtum. En hvaða tegund eða nafn sykurinn hefur skiptir ekki öllu og þótt sumir bendi á að hrásykur, hunang og agave-síróp séu betri kostur og innihaldi næringarefni sem ekki séu til staðar í hvítum sykri, er það í svo litlum mæli að þau leggja ekk- ert til næringargildis fæðunnar,“ segir Hólmfríður og tekur fram að sykur í hóflegu magni sé ekki hættulegur heilsu manna. „Hollustugildi sykurs er nær ekkert, en sætt bragð getur veitt manni nautn í mataræði. Þeir sem kjósa að draga úr sykri og gervi- sætum geta notað ferska og þurrk- aða ávexti í staðinn, og þá má vita- skuld nota í bakstur og sælgætisgerð.“ Syndsamlega sykursætt P R O D E R M TM húðvörn gegn kulda og snertiofnæmi Lagar fljótt húðþurrk, roðaflekki, þurrkabletti sviða og kláða í andliti og höndum. Verndar húðina fyrir efnum á pH1 – pH12. Engin fituáferð. Fyrir börn, hlífir húðinni við kulda, munnvatni, tárum og nefrennsli. Proderm er læknavara. Rannsóknir staðfesta virkni. Fæst í apótekum www.celsus.is Þægilegur, saumlaus og fallegur fatnaður. S. Gunnbjörnsson ehf. Nýtt á Íslandi! NO STRESS Meiri gæða- harðfisk! Samkvæmt nýrri rannsóknarskýrslu Matís er harðfiskur enn hollari en áður var talið, prótínríkur og inniheldur mikið af vítamínum og bætiefnum. Okkar kælda framleiðsluaðferð kemur mjög vel út í öllum samanburði. Fæst í flestum matvöruverslunum og á bensínstöðvum um allt land N Æ R I N G O G H O L L U S T A Árlegur jólabasar Hringsins verður haldinn á laugardaginn, 11. nóvember, á Grand Hóteli við Sigtún og hefst kl. 13. Hringurinn er góðgerðafélag sem safnar fé til styrktar veikum börn- um á Íslandi. Undirbúningur jóla- basarsins hefst strax í janúar þegar félagskonur koma saman til hann- yrða. Þær hittast síðan vikulega til að föndra, sauma og prjóna muni til að selja. Síðustu dagana fyrir basarinn er svo bakað, því köku- sala er mikilvægur hluti af basarn- um. Einnig eru jólakort Hringsins þar til sölu. Aðalverkefni Hringsins hefur verið uppbygging Barnaspítala Hringsins. Einnig hafa mörg önnur verkefni sem tengjast veikum börnum verið studd og styrkt, svo sem uppbygging Barna- og ungl- ingageðdeildar Landspítala og rekstur Sjónarhóls, ráðgjafamið- stöðvar barna með sérþarfir. Jólabasar Hringsins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.