Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 38
fréttablaðið farið á fjöll 8. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR2
Fjölmargir jeppaeigendur vilja hafa stærri dekk undir
bílunum sínum og breyta þeim þannig að þeir séu stærri
og þar með flottari að margra mati. Hjalti Hjaltason,
þjónustustjóri Arctic Trucks, segir flesta kjósa svokallaðar
minni breytingar, sem einhverjum þættu þó nokkuð
stórar.
„Algengustu breytingarnar hjá okkur eru minni breytingar en
þá er verið að setja 33 til 35 tommu dekk undir bílana sem eru á
28 til 29 tommu dekkjum þegar þeir koma til okkar,“ segir Hjalti
en slíkar stækkanir krefjast þess að skorið sé úr brettunum
til að dekkin rúmist þar. „Bílarnir hækka í heildina í kringum
átta sentímetra við breytinguna. Þá skerum við úr brettum og
skiptum um allt sem til þarf, til dæmis hluta úr grindinni,“ segir
Hjalti. Nýir brettakantar séu settir á bílana þegar það á við,
aurhlífum bætt á og gangbrettum við hurðirnar auk þess sem í
sumum tilfellum þarf að skipta um hluta úr fjöðrunarbúnaði til
að bera stækkunina uppi.
Hjalti segir að fyrirtækið sérhanni og smíði fyrir sig nán-
ast allt sem þarf til breytinganna. „Við höfum alla tíð haft það
að leiðarljósi að fjöldaframleiða sem flesta íhluti til að þeir séu
allir eins því þannig tryggjum við bestu gæðin,“ segir Hjalti og
tekur dæmi: „Við látum til dæmis framleiða fyrir okkur bretta-
kanta erlendis sem eru úr sama efni og bílaframleiðendur nota
á stuðarana og notum þá í flestum tilfellum við breytingarnar.“
Stærri breytingar segir Hjalti felast í því að auk þess sem
stærri dekk eru sett undir bílinn þá eru aftari hásingarnar
færðar aftar og jafnvel skipt um gírhlutföll í hásingum. „Þegar
við tölum um stærri breytingar þá meinum við þegar bílar eru
settir á 38 tommu dekk og þaðan af stærri. Í sumum bílum
höfum við þurft að skipta algjörlega um hásingu því sú sem er
fyrir er ekki nægilega sterk,“ segir Hjalti.
Arctic Trucks er eitt þeirra fyrirtækja sem eru í útrás.
Það hefur rekið fyrirtæki í Noregi í nokkur ár, auk þess sem
fyrirtækið er með skrifstofu í Lettlandi. „Fyrirtækið einkennist
af sérlausnum svo það er frábær viðurkenning fyrir okkur og
íslenska jeppamennsku að við höfum verið að vinna sérverk-
efni fyrir norska herinn,“ segir Hjalti og bætir því við að Arctic
Trucks fái fjölda fyrirspurna að utan um breytingar og jafnvel
sendi sumir bílana sína hingað til lands í breytingu. „Það má
í raun segja að við gerum hvað sem fólki dettur í hug,“ segir
Hjalti. sigridurh@frettabladid.is
Breyta
jeppum í
tryllitæki
Þegar torfærutímabilinu lýkur á vet-
urna skiptir máli að ganga vel frá trylli-
tækjunum og undirbúa þau fyrir næsta
keppnistímabil. Gísli Gunnar Jónsson,
sem hefur oftast orðið Íslandsmeistari í
torfæru, lumar á nokkrum góðum ráð-
um í frágangi og viðhaldi torfærubíla.
„Það er gott að setja bílinn inn á veturna,
helst í upphitað húsnæði, og láta hann síga
niður á búkka svo hann standi ekki á hjól-
unum,“ segir Gísli Gunnar Jónsson, marg-
faldur Íslandsmeistari í torfæru. „Það er
auðvitað allt í lagi að hafa þá úti, ef menn
setja frostlög á bílana og búa þá að öðru
leyti vel undir veturinn,“ segir Gísli. Hann
segir þó vænlegri kost að geyma bílana
innandyra í upphituðu húsi, þar sem króm
og annað þvíumlíkt geti skemmst í frost-
hörkunni sem einkenni oft íslenska vetur.
Eins segir Gísli dæmi þess að menn noti
bílana á veturna þótt keppnistímabilinu sé
lokið. Það fari í sjálfu sér ekki illa með þá
en hins vegar þyki flestum bæði of tíma-
frekt og kostnaðarsamt að leika sér á bílun-
um allt árið um kring, sérstaklega þeir sem
hafa keppt á mótum í Noregi og Finnlandi.
Sjálfur rekur Gísli bílaverkstæði þar
sem hann geymir bifreiðina sína, sem er
verulega endurbættur Jeepster. Hann
lætur hana óafskipta í einu horninu þar til
í febrúar, enda segist hann þá líkt og fleiri
vera búinn að fá nóg eftir sumarið. Aðrir
vilji hins vegar hefjast strax handa við að
yfirfara bifreiðar sínar og gera við þær.
Í raun gildir þó einu hvort menn byrja
fyrr eða seinna á yfirferðinni, þar sem allt-
af þarf að fylgja ákveðinni rútínu að sögn
Gísla. „Flestir taka bílana sína í sundur,
fara yfir mótorinn og annan búnað lið fyrir
lið. Svo sprauta þeir bílana, sem eru margir
illa farnir eftir veltur. Það þarf ekki nema
eina slíka til að skemma skrokkinn.“
Gísli minnist þess þegar hann komst
sjálfur í hann krappan í síðustu keppninni
í Grindavík árið 2001, en þá velti hann bíl
sínum svo illa að bifreiðin varð öll uppá-
snúin eins og hann orðar það og veltubúr-
ið eyðilagðist. Gísli prísaði sig sælan að
sleppa ómeiddur frá hrakningunum, en bif-
reiðin þarfnaðist mikilla viðgerða.
Hann segir ekki óalgengt að menn verði
fyrir óhöppum sem þessum í keppnunum og
í raun séu margir torfærubílanna sprautaðir
reglulega allt keppnistímabilið, en það sé
gert svo að þeir líti sem best út.
Hvað fyrrnefnd ráð varðar segir hann
þau góðan grunn að næsta keppnistíma-
bili. „Ef menn fylgja þessum einföldu
leiðbeiningum, ætti bifreiðin að vera eins
og ný um vorið,“ segir Gísli og með alla
sína reynslu hefur hann sjálfsagt eitthvað
til síns máls.
roald@frettabladid.is
Eins og nýr fyrir næsta vor
Hér fagnar Gísli sigri í keppni í torfærukeppni sem
haldin var í Noregi í fyrra.
Bíll Gísla hefur verið verulega endurbættur.
Hjalti V. Hjaltason, þjónustustjóri hjá Arctic Trucks, segir
minni breytingar á jeppum algengastar hjá fyrirtækinu en
það felur í sér að bíllinn fer á 33 til 35 tommu dekk.
Þessi björgunarsveitarbíll er í breytingu hjá Arctic Trucks.
Dekkið sem var undir bílnum liggur nú upp að hinu nýja
sem er tvöfalt breiðara og mun stærra að öllu leyti.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/VÖ
LU
N
D
U
R
M
YN
D
/JA
K
Hér má glögglega sjá muninn á því
þegar bíll er kominn úr breytingu. Til
hægri er óbreyttur bíll en sá til vinstri er
fullbreyttur á 35 tommu dekkjum.