Fréttablaðið - 08.11.2007, Page 42
fréttablaðið farið á fjöll 8. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR6
Bergur Pálsson fór í nýliðaferð
4x4 klúbbsins í fyrra og sér
ekki eftir því. Þar læra nýliðar
hvernig eigi að bera sig að á
fjöllum og kynnast skemmti-
legu fólki.
Bergur Pálsson bjó lengi í Dan-
mörku, þar sem lítil þörf er á
jeppum og stórum dekkjum. Þó
blundaði alltaf í honum draumur
um góðan fjallabíl og þegar heim
var komið var stefnan sett á jeppa-
kaup. Fyrir þremur árum eign-
aðist hann svo jeppa af gerðinni
Benz G, 23 ára gamlan, fullbreytt-
an og áreiðanlegan á fjöllum.
Bergur hafði sjálfur ferðast eitt-
hvað um hálendið í rúmt ár þegar
hann ákvað að skella sér með í ný-
liðaferð 4x4. „Þetta var tækifæri
til að komast á fjöll, hitta fleiri
sama sinnis og njóta góðs félags-
skapar,“ segir Bergur um ástæðu
fararinnar en Ferðaklúbburinn
4x4 býður upp á nokkrar nýliða-
ferðir á hverju hausti sem Bergur
segir að mikið sé að græða á fyrir
nýgræðinga. Mismunandi nýliða-
ferðir eru í boði, bæði fyrir mikið
og minna breytta bíla og getur
því hver fundið það sem honum
hentar.
Í ferðinni sem Bergur fór í fyrra
var stefnan sett á Jökulheima,
sem eru í Tungnaárbotnum nærri
jaðri Tungnaárjökuls. Hópurinn
lagði af stað á föstudegi. „Myrkur
var á leiðinni og því þurfti að
keyra eftir GPS,“ útskýrir Bergur.
Allir komust heilir í hús um mið-
nætti enda leiðangursstjóri ávallt
fremstur og annar vel útbúinn bíll
aftastur sem gat aðstoðað þá sem
lentu í vandræðum.
Sólin skein á ferðalangana á
laugardagsmorgni þegar haldið
var af stað í Grímsvötn. „Við jökul-
rönd er farið yfir Tungnaá á ís.
Ísinn hélt okkur þannig að fyrsta
raunverulega brekkan var nokkuð
inni á jöklinum. Hún lætur lítið yfir
sér en vegna lauss snjós reynd-
ist hún farartálmi fyrir nokkra.
Einn var dreginn áleiðis upp og
aðrir hleyptu passlega mikið úr
dekkjum,“ segir Bergur og telur
mikla list liggja að baki því að
hleypa rétt úr dekki. „Sumir kom-
ust reyndar upp með það að láta
farþega bílsins ganga upp brekk-
una til að létta jeppann.“
Einn bílinn varð að skilja eftir
á miðri leið í Grímsvötn, líklega
vegna stíflaðrar olíusíu. „Þá var
okkur sagt að sía ætti að vera til
vara í öllum bílum og vera hluti af
útbúnaðarlista bíls,“ segir Bergur
og líkir ferðinni við hálfgert nám-
skeið í jeppamennsku.
Bílstjóri og farþegar bilaða
bílsins fengu far með öðrum og
áfram var haldið í Grímsvötn.
Bíllinn var síðan sóttur á bakaleið-
inni og dreginn í Jökulheima, þar
sem reynsluboltar komu honum í
gang.
Þegar upp á jökulinn var komið
bilaði demparafesting í öðrum
jeppa. Hófst þá mikil leit að svip-
aðri ró í öðrum bílum. Hún fannst
og fékk nýjan samastað í bilaða
bílnum.
Þegar komið var í Grímsvötn
var alger logn og stilla. Mælar
sýndu 30 stiga frost og aðeins var
stoppað í stutta stund til að olían
á bílunum myndi ekki byrja að
krapa. Haldið var áfram í Þórðar-
hyrnu, þá Pálsfjall og að lokum
komið aftur niður í Jökulheima.
Um kvöldið var sameiginleg-
ur matur þar sem stjórn 4x4 grill-
aði. Mikið var rætt og skrafað og
sagðar jeppa- og reynslusögur
sem nýliðarnir lærðu mikið af.
„Þarna kynnist ég líka fólki sem
ég hef farið í ferðir með síðan,“
segir Bergur og hrósar allri skipu-
lagningu ferðarinnar enda hafi
leiðangursstjórar verið miklir
reynsluboltar og haft frá ótrúleg-
ustu hlutum að segja.
solveig@frettabladid.is
Þegar komið var í Grímsvötn var dúnalogn og mælarnir sýndu 30 stiga frost. Andardrátt ferðalanga hélaði í nösum. MYND/BERGUR PÁLSSON
Margt að læra í nýliðaferð
Bergur ásamt börnum sínum þremur þeim Ingunni Lilju, Steini og Tinnu Björk, sem
raða sér upp á Benz G jeppann góða. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Frá nýliðaferð 4x4 í fyrra. Skálar Jöklarannsóknafélags Íslands á Svíahnjúki
voru kærkomin sjón fyrir þreytta ferðalanga enda útbúnir salerni og sánu.
MYND/THOMAS WERNER
FERÐIR FERÐAFÉLAGS 4X4 Á NÆSTUNNI
Farið verður í tvær ferðir á vegum Ferðafélags 4x4 helgina 24.-25. nóvem-
ber. Önnur er ætluð breyttum jeppum á 38 tommu dekkjum eða stærri.
Farið verður inn í Strút, sem er skáli Útivistar. Skráning er hafin, verð er
4.500 krónur en innifalin er gisting, fararstjórn og sameiginleg kvöldmál-
tíð á laugardeginum.
Hin ferðin er fyrir óbreytta jeppa og einnig þá sem eru á breyttum
jeppum en hafa ekki komið áður í ferð en langar að spreyta sig á jeppan-
um sínum.
Gist verður í Hólaskógi þaðan sem farið verður í skemmtilegan bíltúr. Í
góðum snjóskafli fá menn að leika sér, festa bílana og glíma við að losna.
Hópnum verður eitthvað skipt niður þannig að þeir sem eru á stærri
dekkjum fái einnig að reyna á kunnáttu og getu bíla sinna. Þessi ferð er
opin öllum sem hafa áhuga á að koma með.
Í tengslum við ferðina verður væntanlega boðið upp á námskeið, litið
í heimsókn í bílskúr einhvers og kíkt í húddið. Þessi ferð kostar 4.200
krónur en innifalin er gisting, fararstjórn og sameiginleg máltíð á laugar-
dagskvöldinu.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
19
8
3
ALORKA • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080
Eigum einnig úrval af öðrum stærðum af
heilsársdekkjum fyrir flestar gerðir jeppa og
jepplinga á hagstæðu verði.
Heilsárs- og vetrardekk fyrir jeppa og jepplinga
Við míkróskerum
og neglum dekkin
fyrir þig
Dæmi um gott verð:
31x10.50R15 Maxxis, kr. 12.900
33x12.50R15 Maxxis, kr. 15.900
275/70R16 GT-Radial, kr. 14.900
265/70R17 GT-Radial, kr. 16.900
Líttu vel út!
Snjóskafa fylgir
hverjum dekkjagangi