Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.11.2007, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 08.11.2007, Qupperneq 50
fréttablaðið farið á fjöll 8. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR14 Guðbjörg Tómasdóttir er áhugamanneskja um vélsleða og ætlar að keyra á Vatnajökul næsta vor. Guðbjörg Tómasdóttir er mikil áhugamanneskja um vélsleða. Áhugi eiginmanns hennar, Sveins B. Jóhannessonar, smitaði hana og varð til þess að hún fór í sína fyrstu vélsleðaferð árið 1993. Þá var hún líka búin að fá nóg af því að horfa á eftir Sveini og öðrum körlum þeysast um fjöll og firnindi á meðan hún sat sjálf eftir heima um helgar. „Þegar veðrið er gott og mennirnir eru í þessu helgi eftir helgi vill maður ekki sitja eftir heima,“ segir Guðbjörg. „Þannig byrjaði ég í þessu. Ég var ekkert alveg sátt við að verða eftir. Þegar ég síðan upplifði það að geta tekið strákana okkar Sveins með í styttri ferðir, þá sex og ellefu ára, fannst mér þetta alveg kjörið.“ Fyrsta vélsleðaferðin sem Guðbjörg fór í var upp á Vatnajökul og mælir hún ekki með því við nokkurn mann að þreyta frumraun sína þar. „Það var vor og tekið að leysa. Það tók svolítinn tíma að komast upp í jökulheima vegna snjóleys- is. Þegar við komum þangað vorum við í góðum málum. Við keyrðum jökulinn í einum rykk. Mér fannst það ágætt, því ég var farþegi hjá mannin- um mínum. Ég mæli þó alls ekki með þessari leið fyrir byrjendur og efaðist um að fara aftur á vél- sleða eftir þetta ferðalag.“ Guðbjörg skipti um skoðun þegar þau Sveinn eignuðust síðan hluta í fjallaskála uppi við Lang- jökul, þar sem stutt var úr bænum og auðvelt fyrir alla fjölskylduna að fara. „Við fjölskyldan fórum á föstudegi og vorum yfir helgi í skálanum, alveg eins og í sumarbú- staðarferð. Þetta gekk í tvo til þrjá vetur á meðan snjórinn var almennilegur.“ Þá hafði Guðbjörg eignast eigin sleða, af gerð- inni Skidoo, en að hennar sögn áttu margar konur eða keyrðu vélsleða á þeim tíma, þótt fastur kjarni kvenna þeysti um á sleðum með körlun- um. Hún segir fátt jafnast á við tilfinninguna sem fylgi því að fara á vélsleða á fjöll. „Þetta er svo mikið frelsi þegar maður er kom- inn upp á fjöll. Svo er friðurinn einstakur. Það heyrist ekkert nema í brakandi snjónum,“ segir hún og áhuginn leynir sér ekki. Guðbjörg segir að karlarnir hafi tekið vel á móti konunum, enda hafi þær ekki verið þeim til trafala eins og hún orðar það. Hún segir reyndar lítið hafa fjölgað í röðum vélsleðakvenna og rekur það meðal annars til þess að snjóinn hafi vantað síðustu ár. Svo sé fleira sem aftri konum frá þátt- töku, meðal annars þýði lítið að standa í þessu nema börnin séu komin á vissan aldur eins og hún þekkir af eigin raun. Guðbjörg bætir við að annars hafi það helst verið vinir og vandamenn sem höfðu áhyggjur af því að hún vissi ekki hvað hún væri að gera og færi sér því að voða. „Þeir sáu bara fyrir sér ein- tómar sprungur,“ rifjar hún upp og hlær. Síðustu ár hefur Guðbjörg dregið heldur úr vélsleðaferðunum og kennir þar um snjóleysi. Segist ekki nenna ef það eru bara einhverjar þræðingar. „Ég vil bara hafa nóg af snjó til að keyra um í.“ Hún segir áhugann þó alltaf vera til staðar og til marks um það ætla þau hjónin ásamt stórum hópi fólks í árlega ferð á Vatnajökul næsta vor. „Maður notar þá dagana til að keyra frá klukk- an 10 til 18 þegar besta veðrið er á jöklinum,“ segir Guðbjörg. „Annars ætla ég að vera duglegri að fara í framtíðinni.“ roald@frettabladid.is Hlaut sína eldskírn á Vatnajökli „Þetta er svo mikið frelsi þegar maður er kominn upp á fjöll. Svo er friðurinn einstakur. Það heyrist ekkert nema í brakandi snjónum,“ segir Guðbjörg um aðdráttarafl vélsleðaíþróttarinnar. Barnafatnaður Jakki, buxur peysa og húfa kr. 10.500. North Ice Winter: Úlpa, buxur „su- perdry“ nærföt, flís millilag, húfa, lúffur og trefill kr. 19.500. Skór Pro hunter kr. 9.500. Camo skór kr. 10.500. Premium skór kr. 12.500. Gönguskór kr. 9.500. Leðursandalar kr. 3.150. Veiðifatnaður Jakki, buxur, tvenn pör af nærfatnaði „super dry“ og flísmillilag, flónelskyrta, húfa, axlabönd, áhneppt hetta og flugnanet og sætisyfirbreiðsla. Camo pakki: Jakki, buxur peysa, nærföt áhneppt hetta og flugnanet, axlabönd. kr. 29.500. North Ice Outdoor:Jakki,buxur, flís- peysa, flísnærföt bolur, húfa og sokkar kr. 17.500. — — Nóatúni 17 sími 534 3177 og 820 7746 Fr u m FRÉTTA BLA Ð IÐ /A N TO N
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.