Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 68

Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 68
Breska listatímritið Art Review birtir í nóvember- heftinu lista yfir hundrað áhrifamestu menn í myndlistarheiminum eins og það hefur gert undan- farin ár. Listinn er unninn af valnefnd með aðstoð blaðamanna víða um heim og er staða hvers manns sem listann skipar rökstudd í stuttu máli. Í forsend- um er meðal annars litið til framkvæmdasemi einstaklinga og fyrri sögu. Í hópnum eru bæði safnstjórar, safnarar, sýningarstjórar og myndlistar- menn. Athygli vekur að á listanum eru gagnrýnendur víðs fjarri: Roberta Smith gagnrýnandi New York Times er í 60. sætinu. Í efsta sætinu situr Francois Pinault, iðnjöfur og eigandi Gucci-veldisins. Hann á einnig uppboðshúsið Christie´s. Pinault keypti höllina Palazzo Grassi í Feneyjum og opnaði þar einkasafn sitt á síðasta tvíæring á liðnu vori. Hann hafði betur í slag við Guggenheim-safnið um gamlar tollbúðir í Feneyjum, Punta della Dogana, og er að breyta þeim í safn. Hann er talinn eiga eitt stærsta listasafn í heimi. Bandaríski galleríistinn Larry Gagosian er í öðru sæti listans. Hann rekur gallerí í Los Angeles, New York, London og er að opna í Róm. Hann er einn virkasti kaupandi á uppboðum: bauð 61,5 miljónir dala í málverk Andys Warhol, Green Car Crash frá 1963 sem seldist ögn hærra fyrir 71, 7 milljónir dala. Hann stóð á sínum tíma að baki Basquiat og er umboðsmað- ur helstu myndlistarmanna í heiminum, meðal þeirra er Richard Serra sem reisti Áfanga sína í Viðey. Nicholas Serota, safnstjóri Tate, er í þriðja sæti en hann stýrir fjórum söfnum Tate á Bretlandi. Hann stóð á bak við sýningu Ólafs Elíassonar í Turbine Hall en á sýningarrröð Unilever þar hafa komið 17 milljónir gesta. Hann hefur náð fram stækkun á Tate í London og sett af stað Tate í Liverpool, sú seinni verður þungamiðja í listalífi þar nyrðra þegar Liverpool verður menningarborg 2008 og viðbygging Tate í Southwark-hverfinu í London á að vera tilbúin fyrir Ólympíuleikana þar 2012. Glenn Lowry forstöðumaður Moma í New York vermir þriðja sætið, og safnarinn Eli Broad í Los Angeles hið fjórða. Raunar er það einkenni á lista Art Review að London sækir á í keppni við New York sem háborg myndlistar í heiminum. Listamaðurinn Damien Hirst er í sjötta sæti og safnarinn Charles Saatchi er í því sjöunda: Saatchi hefur valdið miklum titringi með fyrirhuguðu galleríi á Kings Road þar sem aðgangur verður ókeypis. Vefsíða hans fyrir listamenn kallar á 50 milljón heimsóknir á dag og kínversk útgáfa hennar er vaxandi með fjórar milljónir heimsókna daglega. Safnarar og áhrifamiklir galleristar takst á um neðri sæti listans: Julia Peyton-Jones sem setti saman sýningu Hreins Friðfinnssonar er í 48. sæti ásamt Hans Ulrich Obrist sem setur saman stóra sýningu Listasafns Reykjavíkur í vor með Ólafi Elíassyni. Francesca von Habsburg safnari, sem hingað kom nokkrum sinnum fyrir fáum árum og nokkuð var látið með á Listahátíð 2005, er í 71. sæti. Listamönn- um fjölgar er neðar dregur: Paul McCarty sem Kling og Bang fengu hingað til sýningahalds, John Baldess- ari sem unnið hefur á Eiðum. Asíumenn koma þá líka til sögunnar: Zhang Xiaogang sem hér sýnir í vor á Akureyri, hinn virti indverski myndlistarmaður Subodh Gupta, Takashi Murakami, hinn japanski Warhol. Karlar eru ráðandi í listaheiminum sam- kvæmt listanum og Bandaríkjamenn eru rúmur helmingur áhrifamestu manna heimsins í myndlist. Enginn norrænn maður kemst á listann. Hundrað áhrifamenn Bókaforlagið Bjartur og For- lagið standa fyrir upplestrar- kvöldi á Næsta bar í kvöld. Þar munu ljóðskáld forlaganna tveggja, ásamt leikurunum Hjalta Rögnvaldssyni og Tinnu Hrafnsdóttur, lesa upp úr nýjum ljóðabókum. Höfundarnir sex eru Gerður Kristný, Kristín Svava Tómasdóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir, Sjón, Steinunn Sigurðardóttir og Þórarinn Eld- járn. Kynnir kvöldsins verður hinn geðþekki útvarpsmaður Haukur Ingvarsson, einn umsjónar- manna menningarþáttarins Víð- sjár. Dagskráin hefst klukkan hálfníu, stundvíslega, og stend- ur til tíu. Leikin verður létt tón- list og andrúmsloftið verður allt hið unaðslegasta. Ljóðakvöld á Næsta bar Baldvin Ringsted opnar í dag fyrstu sýningu nýs gallerís á Akureyri sem hlotið hefur nafnið Gallerí Ráðhús. Á sýningunni verða myndverk úr stáli sem unnin eru upp úr þremur íslenskum þjóðlögum. Baldvin útskrifaðist frá Mynd- listaskólanum á Akureyri árið 2004 og frá Glasgow Shool of Art árið 2007 með meistaragráðu í myndlist. Hann býr nú og starfar í Glasgow í Skotlandi. Í verkum sínum vinnur Baldvin meðal annars út frá reynslu sinni sem tónlistarmaður. Hann kannar tengslin milli tilrauna í tónlist, menningarsögu og iðnaðarþróunar. Í verkunum verður oft fínleg breyt- ing frá mynd yfir í hljóð og öfugt. Breytingin endurómar í vegvísum sem hann skapar og í þeim endur- speglast hugmyndin bak við hvert verk fyrir sig. Innsetningar eftir Baldvin eru til sýnis um þessar mundir í Listasafninu á Akureyri og í Center of Contemporary arts í Glasgow. Líkt og nafnið gefur til kynna þá er Gallerí Ráðhús staðsett í Ráðhús- inu á Akureyri og er dags daglega fundarsalur bæjarstjórnar Akur- eyrar. Þetta er ekki því venjulegt gallerí, heldur vinnustaður sem fær með þessu sérstakt viðbótarhlut- verk. Af þessum sökum verður held- ur ekki um að ræða reglulegan opn- unartíma eins og í hefðbundnum galleríum. Hugmyndin er að hver sýning standi í sex mánuði í senn, en þarna fara saman list og stjórnmál í orðs- ins fyllstu merkingu. Opnunin hefst kl. 12.15 og eru allir velkomnir. Sýningarstjóri er Jóna Hlíf Halldórsdóttir. Stjórnmál og list SAGA UM FORBOÐNA ÁST MEÐ TÓNLIST EFTIR LAY LOW „Þetta er falleg sýning... ákaflega sterk... með því að taka Ökutíma til sýningar hefur íslenskt leikhús stigið feti framar... LA – þar sem allt blómstrar og grær... rigna yfir sýninguna stjörnum.” MK, Mbl „Þetta er stórgóð sýning í einkar vel heppnaðri umgjörð” EB, Fréttablaðið „LA nýtur nú vinsælda og virðingar í samfélaginu sem önnur leikhús mega öfunda það af... mjög vel unnin” JVJ, DV „Ég er djúpt snortin... Stórkostlegur leiksigur... mjög áhrifamikil sýning” SLG, RÚV „stórkostlegan samleik...beint í hjartastað...” IS, Kistan „djúpt og áhrifamikið... rússíbanaferð... enn einn sigurinn!” VAJ, landpostur.is „magnaða sýningu... opnar augu og snertir, leikhús sem skiptir máli” JJ, Dagur.net Afbragðs dómar! Miðasala: 4 600 200 I netsala: leikfelag.is ALLIR Í LEIKHÚS Á AKUREYRI! Í samstarfi við Næstu sýningar: 7., 9., 10., 14., 16., 17., 22., 23., 24., 29., 30. nóv og 2., 6., 7., 14 des. Allt að seljast upp!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.