Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.11.2007, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 08.11.2007, Qupperneq 80
Hef alltaf viljað taka delluna skrefinu lengra Ítalska liðið Reggina, sem Emil Hallfreðsson spilar með, stóð í stórræðum fyrir ekki margt löngu þegar knattspyrnustjórinn Massimo Ficcadenti var rekinn eftir að liðinu mistókst að vinna einn einasta leik af fyrstu tíu leikj- unum í Serie A. Við starfinu tók reynsluboltinn Renzo Ulivieri, en hann hefur áður þjálfað víða í efstu deild á Ítalíu á löngum ferli sínum sem knattspyrnustjóri. Ulivieri stýrði Reggina í fyrsta skipti um síðustu helgi þegar liðið sótti sjóðandi heitt lið Napoli heim og var nálægt því að innbyrða fyrsta sigur sinn á tímabilinu. Luca Vigiani, miðjumaður Regg- ina, kom liðinu yfir í byrjun síðari hálfleiks en heimamenn í Napoli jöfnuðu leikinn á 90. mínútu. Ulivieri sá ástæðu til þess að hrósa Emil Hallfreðssyni sérstak- lega fyrir frammistöðu sína í leiknum eins og kom fram í viðtali hans við opinbera heimasíðu Reggina í leikslok. „Emil spilaði vel í nýrri stöðu sem hann hefur ekki verið vanur að spila í og ég hafði smávegis áhyggjur af í upphafi leiks, en hann vann vel þá vinnu sem ég setti honum fyrir,“ sagði Ulivieri ánægður. Emil bar nýjum knattspyrnu- stjóra sínum líka vel söguna þegar Fréttablaðið átti spjall við hann í gær. „Þetta er gríðarlega reyndur stjóri hér á Ítalíu og það er greini- legt að hann nýtur strax mikillar virðingar innan liðsins því hann er á stuttum tíma búinn að koma inn nýjum hugmyndum sem menn eru tilbúnir að hlusta á,“ sagði Emil og kvaðst einnig kunna vel við sig í nýrri stöðu á vellinum. „Mér hafði persónulega gengið vel á vinstri kantinum, en ég fann mig bara mjög vel fyrir aftan framherjana og komst mjög vel frá leiknum. Ég átti að passa sér- staklega upp á György Garics, varnarmiðjumann Napoli, sem byggir upp og stjórnar spilinu mikið til hjá liðinu og það gekk frábærlega hjá mér. Þetta endaði bara á því að hann var að elta mig. Nú verð ég bara að halda áfram á sömu braut og ég trúi ekki öðru en að fyrsti sigurinn fari að detta í hús hjá okkur,“ sagði Emil. Emil spilaði vel í nýrri stöðu á vellinum Meistaradeild Evrópu: Iceland Express-deild kvk: Átta marka stórtap Besiktas fyrir Liverpool á Anfield á þriðjudagskvöldið fór fyrir brjóstið á forráðamönnum tyrkneska liðsins og var meðal annars haft eftir forseta félags- ins, Yildirim Demiroren, að félagið myndi segja upp samningi við nokkra af leikmönnum sínum. „Hagsmunir Besiktas koma á undan öllu öðru og við verðum að losa okkur við nokkra leikmenn,” sagði forsetinn en ekki hafa komið fréttir af örlögum þjálfara- teymisins. Forsetinn vill reka leikmenn Barcelona, Manchester United og Arsenal tryggðu sér öll sæti í sextán liða úrslitum Meist- aradeildar Evrópu þegar fjórða umferð riðlakeppninnar kláraðist í gærkvöld. Barcelona lék sér að Glasgow Rangers, sem var í eltingarleik frá upphafi. Henry kom Barca yfir á 6. mínútu með umdeildu marki en boltinn fór af hendi hans og í markið. Lionel Messi bætti öðru marki við fyrir Barcelona skömmu fyrir hlé. Hann tók þá frábæran þríhyrning við Ronald- inho sem lauk með skoti Brasilíu- mannsins. Það skot var varið en Messi náði frákastinu og skoraði örugglega. Barcelona slakaði aðeins á klónni í síðari hálfleik og fékk ekki mörg opin færi þó svo að liðið væri með boltann lengstum. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðustu 20 mínútur leiksins en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Manchester United tryggði sér farseðilinn í sextán liða úrslitin með enn einni markaveislunni en liðið lagði Dynamo Kiev, 4-0. Ger- ard Pique kom United yfir og Tévez kom heimamönnum í 2-0 fyrir hlé. Rooney komst á blað 14 mínútum fyrir leikslok og Cristiano Ronaldo rak síðasta naglann í kistu Úkraínumannanna rétt fyrir hlé. Leikur Inter og CSKA Moskvu á San Siro var lyginni líkastur. Rúss- neska liðið kom gríðarlega á óvart með því að skora tvö fyrstu mörk- in á fyrsta hálftímanum. Mörkin tvö dugðu til að vekja ítalska liðið og Svíinn Zlatan Ibra- himovic minnkaði muninn um leið. Argentínumaðurinn Cambiasso jafnaði svo tveim mínútum síðar. Inter var svo mun sterkara liðið í síðari hálfleik. Cambiasso skoraði aftur um miðjan hálfleikinn og Zlatan gulltryggði sigurinn með stórkostlegu marki korteri fyrir leikslok. Arsenal náði ekki sama flugi í Tékklandi gegn Slavia Prag eins og í Lundúnum. Markalaust jafn- tefli niðurstaðan og Arsenal komið í næstu umferð. Það var einstefna að marki Glasgow Rangers þegar Skotarnir sóttu Barcelona heim. Man. Utd er komið áfram í keppninni líkt og Barcelona eftir öruggan sigur á Dynamo Kiev. Inter átti ótrúlega endurkomu gegn CSKA Moskva. Haukar unnu tveggja stiga sigur á Grindavík, 88-90, í æsispennandi framlengdum leik í Grindavík í gær. Joanna Skiba fékk tækifæri til þess að tryggja Grindavík sigur á vítalínunni fimm sekúndum fyrir leikslok en klikkaði á báðum vítum sínum og það varð að framlengja. Hauka- stúlkur komust sex stigum yfir í framlengingunni og lönduðu síðan tveggja stiga sigri. Kiera Hardy hjá Haukum braut 40 stiga múrinn þriðja leikinn í röð. Haukasigur í framlengingu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.