Fréttablaðið - 08.11.2007, Síða 82

Fréttablaðið - 08.11.2007, Síða 82
 Það hefur lítið spurst til Teits Þórðarsonar frá því hann var rekinn frá KR síðasta sumar. Teitur hefur aðallega alið mann- inn í Noregi síðan í sumar. Hann hefur þó verið á ferð og flugi víða um Evrópu enda verið að vinna sem útsendari hjá norsk- um umboðsmanni. „Þetta er nokkuð skemmtilegt. Ég er búinn að fara víða og skoða mikið af leikmönnum. Ég er með fínt tengslanet víða um Evrópu sem nýtist mér vel í þessu starfi,“ sagði Teitur en hann hefur einnig verið að gæla við að gerast umboðsmaður. Hann þreytti umboðsmannapróf á dögunum en féll. „Þetta kom snöggt upp á og ég ákvað bara að skella mér þó að ég væri illa undirbúinn. Það gekk ekki sem skyldi en ég mæti betur undirbúinn næst ef ég ákveð að reyna aftur. Menn ná þessu ekk- ert með vinstri hendinni. Ég ákvað samt að athuga hvernig þetta væri og sé ekkert eftir því,“ sagði Teitur brattur en hann var orðaður við norska úrvals- deildarfélagið Álasund í gær. „Ég hef aðeins heyrt í þeim en það er ekkert á alvarlegu stigi enda félagið að kíkja í kringum sig. Ég er bara að skoða mín mál og hvað ég hyggst taka mér fyrir hendur. Það er þó líklegra að ég starfi hér í Noregi en að ég komi aftur heim til Íslands,“ sagði Teitur Þórðarson. Útsendari hjá norskum umboðsmanni Pétur Ingvarsson er hættur með lið Hamars í Iceland Express deild karla eftir að hafa farið með liðið upp í úrvalsdeild í fyrsta skipti og stjórnað liðinu í 181 leik í röð í efstu deild. Pétur bætti met Jóns Kr. Gísla- sonar í fyrra yfir lengstu setu þjálfara í úrvalsdeild en Keflavík lék 168 leiki í röð undir stjórn Jóns á árunum 1990 til 1996. Pétur hélt Hamri í efstu deild átta tímabil í röð þrátt fyrir endalausar hraksppár og undir hans stjórn komst liðið fimm sinnum í úrslita- keppnina. Árangurs Hamars í Hvergerði undir stjórn Péturs er glæsilegur en liðið vann 43 af 75 leikjum sínum í „Frystikistunni“. Þetta gerir 57 prósenta sigurhlutfall en liðið vann á sama tíma „aðeins“ 6 af 16 leikjum sínum (37,5 prósent) í Iðu á Selfossi þegar Hamar var í samstarfi við Selfoss og þá töpuð- ust 64 af 90 útileikjum undir stjórn Péturs. Hamar vann í öllum íþróttahús- um nema fjórum í tíð Péturs því undir hans stjórn náði liðið aldrei að vinna deildarleik í Keflavík (8 töp), í Seljaskóla (7 töp), í Þorláks- höfn (2 töp) eða á Egilsstöðum (1 tap). Best gekk Hamri hins vegar á útivelli gegn Haukum í Hafnar- firði, uppeldisfélagi Péturs, þar sem hann spilaði 212 leiki á árun- um 1989 til 1998. Hamar vann nefnilega 5 af 8 leikjum sínum í Hafnarfirðinum. Hamarsliðið hefur mikið saknað Svavars Páls Pálssonar, sem hefur ekki getað leikið með liðinu vegna meiðsla, en hann er einmitt sá leikmaður sem lék flesta úrvals- deildarleiki í tíð Péturs. Svavar lék alls 171 af þessum 181 leik og er einnig sá sem skoraði flest stig (1.340), tók flest fráköst (961), varði flest skot (121) og fékk flest- ar villur (544) í tíð Péturs. Lárus Jónsson, fyrirliði Hamars í dag, er hins vegar sá leikmaður sem gaf flestar stoðsendingar (538) og stal flestum boltum (222) í þessum 181 leik sem Pétur stjórnaði frá 1999 til 2007. Ágúst Björgvinsson tekur við Hamarsliðinu og stjórnar því í fyrsta sinn gegn Þór í Síðuskóla á morgun. Þetta er í þriðja sinn sem Ágúst tekur við karlaliði á miðju tímabili en hann tók við liði Vals eftir 10 leiki 2002-2003 og við liði Hauka eftir 11 leiki 2005-2006. Í bæði skiptin náði hann að bæta mikið sigurhlutfall liðanna; Vals- liðið vann 4 af 13 leikjum eftir að hann tók við og hækkaði sigurhlut- fall sitt um 19,7 prósentustig og Haukaliðið vann 4 af 11 leikjum undir hans stjórn og hækkaði sigur- hlutfall sitt um 27,3 prósentustig. Ágúst hefur verið aðstoðarþjálfari KR í vetur en lætur nú af því starfi. Pétur Ingvarsson er hættur sem þjálfari Hamars eftir áratugsstarf í Hveragerði en enginn þjálfari hefur setið lengur í sögu úrvalsdeildar karla. Ágúst Björg- vinsson tekur við liðinu, sem hefur tapað fjórum af fyrstu fimm leikjunum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.