Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 86

Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 86
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég er að uppfæra mig í tónlist- inni,“ segir tónlistarmaðurinn Rúnar Júlíusson glaður í bragði en hann er á leið til Jamaíka í febrúar ásamt eiginkonu sinni og vinafólki í leit að innblæstri eins og hann orðar það sjálfur. „Ég fór þangað í brúðkaupsferð í fyrra og er því að fara í mína aðra ferð á þessar slóðir. Þarna ætla ég bæði að semja nýtt efni og taka upp,“ segir hann og bætir því við að honum séu flestir vegir færir í þeim efnum með tölvuna meðferðis. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Rúnar leitar að innblæstri út fyrir landsteinana. „Við Bubbi fórum alltaf til Amsterdam þegar við vorum að vinna að efni fyrir GCD hérna einu sinni.“ Hann segir Jam- aíka vera tilvalið land að heim- sækja í þessum erindagjörðum. „Þarna er jafnvægi í tilverunni, gott loftslag, góð músík, matur, fíl- ingur og brosmilt fólk,“ segir hann og útilokar ekki samstarf við heimamenn. „Maður veit aldrei, það kemur þá bara í ljós. Ég er ekki búinn að plana neitt slíkt en ég hef náttúrlega verið dálítið í reggítónlist undanfarin ár og jafn- vel áratugi.“ Rúnar segist rétt vera byrjaður að undirbúa ferðina enda er hann „nýlentur“ eftir stórtónleika sína í Laugardalshöllinni. „Nú tekur jólavertíðin við,“ segir Rúnar en plötuútgáfa hans Geimsteinn gefur út átta plötur í ár og á morgun kemur út hans fyrsta jóla- plata í þrjátíu ár, þar sem hann syngur með kammerkórnum Schola Cantorum. Rúnar Júl til Jamaíka „Þegar ég er ekki á Herbalife finnst mér langbest að fá mér ristað brauð með osti, og annað hvort kaffi eða te með.” Næturvaktin á Stöð 2 hefur sannarlega slegið í gegn að undan- förnu og fékk á dögunum þrjár tilnefningar til Edduverðlauna, fleiri en nokkur annar sjónvarps- þáttur. Tilnefningarnar eru fyrir handrit ársins, besta leikna sjón- varpsefnið og Pétur Jóhann Sig- fússon fær tilnefningu fyrir leik í aðalhlutverki. Það ætti því að vera gleðiefni fyrir marga að nú hefur verið ákveðið að ráðast í gerð framhaldsþáttaraðar sem fengið hefur nafnið Dagvaktin og verður tekin upp úti á landi. Pétur Jóhann, Jón Gnarr og Jörundur Ragnarsson leika aðalhlutverkin sem fyrr og Ragnar Bragason leikstýrir. „Við erum himinlifandi yfir því að vera búnir að ná þessu saman,“ segir Pálmi Guðmundsson, sjón- varpsstjóri Stöðvar 2. „Nú hefst undirbúningur af fullum krafti, tökur hefjast í ársbyrjun og við munum leggja enn meiri metnað í þessa nýju seríu.“ Jón Gnarr segir blendnar tilfinningar fylgja því að leika hinn mislynda Georg Bjarnfreðarson að nýju og segist hafa hugsað sig vel um áður en hann samþykkti að vera með í Dagvaktinni. „Ég get ekki sagt að ég hlakki til að leika hann aftur en það verður gaman þegar það er búið. Ég var lagður inn á spít- ala eftir að tökum á Næturvaktinni lauk – varð bókstaf- lega veikur af að leika hann. Þetta var mjög mikið álag,“ segir Jón og bætir því við að það sé líka „útlitslegt álag“ að vera Georg. „Ég þarf að raka á mig skalla og safna skeggi. Það er skömminni skárra að þættirnir verði teknir upp úti á landi. Þá getur maður slakað á.“ Pétur Jóhann segist afslappaðri gagn- vart þeirri tilhugsun að leika Ólaf Ragnar að nýju. „Ólafur er léttlyndari karakter en Georg og þar af leiðandi er auðveld- ara að leika hann.“ Hann segir auk þess óvíst hvort hann þurfi að ganga um með svartar hárlengingar eins og í Næturvaktinni. „Ólafur fylgir tískustraumum og getur breytt um útlit að vild. Hann er Ásgeir Kolbeinsson Nætur- vaktarinnar og Ásgeir er aldrei tvisvar með sömu greiðsluna.“ Pétur Jóhann segist ekki reikna með því að fá Edduverðlaunin á sunnudag. „Ég held ekki, ekki ég. En þátturinn fær örugglega verð- laun.“ Þættirnir um dagvaktina verða sýndir á Stöð 2 næsta haust. Stúlknasveitin Nylon hefur rekið umboðsmann sinn, Martin O‘Shea, en hann hefur séð um öll mál sveitarinn- ar í Bretlandi. Þetta staðfestir Alma Guðmundsdóttir. Ástæðan mun vera óánægja með störf O‘Shea upp á síð- kastið og var myndbandið við Sweet Dreams dropinn sem fyllti mælinn. „Það er kannski ekkert leyndarmál að við vorum mjög sárar út í hann fyrir það. Myndbandið var allt á hans snær- um og í okkar augum leit það meira út fyrir að vera heimagert en unnið af fagmönnum,“ útskýrir Alma. „Hann gerði vissulega ýmislegt vel en svo var annað sem var ekki alveg í sam- ræmi við okkar kröfur,“ bætir hún við. En Alma viðurkennir líka að aðrar dyr hafi opnast sem hugsanlega hafi flýtt fyrir þessari ákvörðun. Einar Bárðarson, skapari Nylon og útgef- andi sveitarinnar í Bretlandi, er nú kominn með sína eigin umboðsskrif- stofu í Bretlandi og viðræður um að hann taki Nylon-stúlkur að sér þar úti eru þegar hafnar. Þegar Fréttablaðið náði tali af Ölmu var hún stödd á miðri æfingu með þeim Klöru Ósk og Steinunni Camillu en Nylon kemur fram á eldhúspartíi útvarpsstöðvarinnar FM 957 í kvöld. Þá sem tríó en eins og alþjóð veit sagði Emilía Klara skilið við sveitina í sumar. „Okkur líkar þetta bara vel, við höfum verið að útfæra hlutina á annan hátt og þetta hefur tekið sinn tíma,“ segir Alma Nylon rekur umboðsmanninn sinn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.