Fréttablaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 2
2 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
Stefán, hafa leiðsögumenn
geysilegar áhyggjur af þessu?
„Já, það hefur kraumað í okkur lengi
og við erum um það bil að fara að
gjósa.“
Leiðsögumönnum blöskrar bágt ástand á
Geysis-svæðinu. Stefán Helgi Valsson er
kynningarfullltrúi Félags leiðsögumanna.
UMHVERFISMÁL Þrjár tegundir af köngulóm hafa numið
land hér á landi á síðustu árum. Erling Ólafsson
skordýrafræðingur segist stöðugt fá frekari staðfest-
ingar um að tvær tegundir, sem eru náskyldar
húsaköngulónni, og leggjakönguló hafi fest hér rætur.
Þessar tegundir haldi sig fyrst og fremst inni, á
lagerum og þvílíku húsnæði, en ekki í híbýlum manna
enn sem komið er.
„Þær eru enn sem komið er innanhúss því að
utanhúss eru aðstæðurnar ekki nógu góðar,“ segir
Erling og telur að alltaf falli eitthvað til innanhúss
fyrir þær að éta. „Svona dýr eins og köngulær þola
líka að svelta vikum saman. Þó að þær fái ekki að éta
allan desember þá er það allt í lagi. Þær þola það
alveg,“ segir hann.
Erling segir að tegundirnar þrjár séu „alvöru
köngulær, mun stærri en við eigum að venjast,“ eins
og hann orðar það, en meinlausar. „Húsakönguló var
líka algengari hér áður fyrr. Þegar menn voru að færa
til skápa sem höfðu staðið upp við vegg þá hljóp oft út
könguló. Tegundirnar tvær eru náskyldar henni en
tvöfalt stærri, lappalangar og frekar skelfingu
valdandi fyrir marga þó að þetta séu saklaus dýr.
Þessar tegundir eru búkminni en lappameiri og
hraðskreiðari en köngulær sem eru úti,“ segir hann.
Þriðja tegundin, leggjakönguló, er með lítinn búk en
afar langa og granna fætur. Hún er algeng í vöru-
skemmum og vöruhúsum erlendis. „Það fer lítið fyrir
þessum köngulóm því þær eru svo grannar en ég hef
grun um að þessi könguló sé ekki bara að guða á
dyrnar heldur sé hún komin inn fyrir.“ - ghs
Þrjár nýjar köngulóartegundir hafa numið land á Íslandi síðustu árin:
Saklaus dýr sem valda skelfingu
LAPPALANGAR INNI-
KÖNGULÆR „Lappalangar
og frekar skelfingu vald-
andi,“ segir Erling Ólafs-
son skordýrafræðingur
um nýju tegundirnar sem
halda sig innanhúss.
ALVÖRU KÖNGULÆR Tvær
nýjar tegundir eru náskyldar
húsaköngulóm en leggja-
köngulóin er ekki skyld
neinum tegundum sem fyrir
eru. Hér má sjá úti-könguló
á Íslandi.
Allt sem þú þarft...
...alla daga
Blaðið/24 stundir
90.760 manns
Morgunblaðið
98.960 manns
Fréttablaðið
146.953 manns
M
ið
að
v
ið
m
eð
al
le
st
ur
á
tö
lu
bl
að
, þ
rið
ju
da
g
til
la
ug
ar
da
gs
, 1
2–
80
á
ra
f
yr
ir
al
lt
la
nd
ið
.
Rúmlega 56.000 fleiri
lesa Fréttablaðið
en 24 stundir
LÖGREGLUMÁL Þórður Björnsson,
kaupmaður í Sunnubúð, hyggst í
dag hitta að máli einn piltanna
þriggja sem rændu verslun hans á
sunnudagsmorgun. Piltarnir þrír,
sem eru fimmtán og sextán ára,
ruddust inn í búðina vopnaðir öxi
og kylfu, réðust að Þórði og höfðu
á brott með sér tóbak og tugi
þúsunda í reiðufé.
„Ég vil bara hitta hann, taka í
höndina á honum og reyna að fá
hann til að snúa við blaðinu,“ segir
Þórður. Pilturinn er væntanlegur í
dag ásamt móður sinni. „Ég hef
ekki talað við hann og veit ekki
einu sinni hvað hann heitir,“ segir
Þórður. „En mér skilst að hann
sofi varla á nóttunni og sé gjör-
samlega miður sín, hann sjái svo
eftir þessu öllu saman.“
Fjórir piltar voru handteknir
nokkrum klukkustundum eftir
ránið. Einn þeirra hafði beðið úti í
bíl eftir ræningjunum þremur.
Þórður segir að ungur aldur pilt-
anna hafi komið sér á óvart. „Eins
og ég sagði við lögregluna hélt ég
að þeir væru svona átján til 23 ára.
Ég var hissa á að þeir væru svona
rosalega ungir, sérstaklega af því
að þeir voru svo kaldir. Þeir virtust
ekkert æstir.“
Þórður segir vænlegra að reyna
að fá piltana til að koma reglu á líf
sitt með þessum hætti en
hegningum. „Það er betra fyrir þá
og betra fyrir þjóðfélagið.“ - sh
Kaupmaðurinn í Sunnubúð reynir að koma vitinu fyrir sextán ára ræningja sinn:
Hittir einn ræningjanna í dag
VIÐ VINNU Þórður segist hafa haldið að
ræningjarnir væru eldri, einkum vegna
þess hve fagmannlega þeir báru sig að.
FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
VIÐSKIPTI Jónas Sigurgeirsson,
framkvæmdastjóri samskipta-
sviðs Kaupþings, játar hvorki né
neitar að gerður hafi verið
samningur við erlenda banka um
að sölutryggja hlutafjárútboð
Kaupþings. „Við tilkynnum ávallt
Kauphöllinni fyrst þegar mikil-
vægir samningar eru undirritaðir.
Það hefur engin tilkynning um
þetta efni verið send.“
Spurður hvort unnið sé að því að
sölutryggja hlutafjárútboð
Kaupþings segist Jónas ekki vilja
tjá sig um orðróm á markaði.
Forstjóri Kaupþings hefur
boðað útgáfu nýs hlutafjár til
kaupa á hollenskum banka. - bg
Hlutafjárútboð Kaupþings:
Engin tilkynn-
ing verið send
ORKUMÁL Reykjavík Energy
Invest og Geysir Green Energy
tóku ekki þátt í tilboði í orkuveitu
Filippseyja eins og ráðgert var.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var mat forráðamanna
REI og GGE að fjárfestingin væri
ekki arðbær á því verði sem sam-
starfsaðili fyrirtækjanna vildi
bjóða. Stærsta orkufyrirtæki Fil-
ippseyja í einkaeigu og sam-
starfsaðili REI og GGE í undir-
búningi tilboðsins, First Gen.
Corp., bauð rúmlega 84 milljarða
króna í hlutinn.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var verðhugmynd REI
og GGE á 60 prósenta hlut í orku-
veitunni tugum milljarða lægra
en samstarfsfyrirtækisins First
Gen Corp. Var verðmat REI og
GGE ekki fjarri tilboði fyrir-
tækisins Panasia Energy sem var
56 milljarðar, og var þriðja hæsta
tilboðið. Verðhugmyndir REI og
GGE, voru áþekkar þó að fyrir-
tækin gerðu sjálfstætt mat á
fyrirtækinu.
Í samningum á milli Íslending-
anna og First Gen Corp. er kveðið
á um að sá aðili sem ætti hæsta
verðmatið gæti tekið yfir tilboðið.
Það gerði First Gen Corp. og setti
fram tilboð í nafni eignarhalds-
félagsins Red Vulcan Holdings
Corp.
Í samkomulagi REI og GGE við
First Gen Corp. er einnig ákvæði
um að íslensku fyrirtækin geti
innan ákveðins tíma komið að
fyrirtækinu með einhverjum
hætti telji þau það eftirsóknar-
vert. Ákvörðunin um að draga sig
út úr tilboðinu útilokar því ekki
fjárfestingar REI og GGE í orku-
veitu Filippseyja í framtíðinni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins þýðir þessi niðurstaða að
kostnaður REI og GGE við undir-
búning tilboðsins er takmarkaður
því þar sem First Gen Corp. gerði
tilboð bera þeir kostnaðinn af
undirbúningsvinnunni að
stærstum hluta.
Orkuveita Filippseyja, PNOC-
EDC., er dótturfyrirtæki ríkisolíu-
fyrirtækisins PNOC á sviði jarð-
varmavinnslu. Fyrirtækið er
annað stærsta jarðvarmafyrir-
tæki heims á eftir bandaríska
fyrirtækinu Chevron. Orkuver
PNOC-EDC framleiða 1.150 mega-
vött og er það rúmlega helming-
urinn af vinnslugetu eyjanna með
jarðvarma.
Einkavæðingarnefnd Filipps-
eyja metur tilboðin. Nær öruggt
er talið að tilboði First Gen. Corp.
verði tekið. svavar@frettabladid.is
REI og Geysir Green
geta komið inn síðar
Reykjavík Energy Invest og Geysir Grereen Energy hættu við að gera tilboð í
orkuveitu Filippseyja, því verðhugmynd þeirra var tugum milljarða lægri en
samstarfsaðila þeirra á Filippseyjum. Aðkoma REI og GGE ekki útilokuð síðar.
ORKUSAMSTARF UNDIRBÚIÐ Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI (til vinstri),
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, Purnomo Yusgiantoro, orkumálaráðherra
Indónesíu, og Bambang Kustono, forstjóri Petramina Gethermal Energy, skrifuðu
undir viljayfirlýsingar um samstarf í orkumálum í Indónesíu í október.
MYND/HAFLIÐI HELGASON
SPURNING DAGSINS