Fréttablaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 50
22. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● hafnarfjörður
Dóra Sólrún Kristinsdóttir selur
umhverfisvæn barnaföt, sem
hafa hingað til eingöngu verið
fáanleg í gegnum netið, en
verða nú seld í Jólaþorpinu í
Hafnarfirði.
„Þetta eru barnaföt og taubleiur,
allt úr hundrað prósent lífrænt
ræktaðri bómull. Svo liggja „fair
trade“ eða sanngjörn viðskipti til
grundvallar framleiðslunni, sem
þýðir að eitthvað uppbyggilegt
er á bakvið hana, engin barna-
þrælkun eða önnur ánauð,“ segir
Dóra Sólrún Kristinsdóttir um
vörur frá Green Baby, sem hún
flytur inn og ætlar að selja í Jóla-
þorpinu í Hafnarfirði um næstu
helgi og í desember.
Sonarsonur Dóru sjálfrar er
ástæða þess að hún hóf innflutn-
inginn ásamt eigin-
manni sínum,
Guðbrandi Jóns-
syni. „Þegar
barnið var
sex mán-
aða þoldi
það illa
hefðbundn-
ar bleiur og
móðir in ákvað
að prófa taubleiur
frá Green Baby. Tengda-
dóttur minni fannst þessar
vörur henta honum einstaklega
vel og benti mér á þær, sem varð
til þess að við hófum innflutning.
Hún hefur síðan prófað allt fyrir
mig og það hefur komið vel út.“
Green Baby-vörulínan er frá
samnefndu bresku fyrirtæki og
framleidd á Indlandi þar sem
fyrirtækið styrkir heyrnar daufar
og lausar stúlkur til náms með
því að ráða þær til starfa. Green
Baby framleiðir samfellur, galla
og fleira á nýfædd börn og alveg
upp í fimm ára aldur. „Aðeins
eru notaðir jurtalitir og ekkert
sem flýtir fyrir framleiðsluferl-
inu,“ útskýrir Dóra. „Efnin hafa
því ekkert verið meðhöndluð, og
eru því í raun betri og mýkri en
tíðkast.“
Sérstaka athygli vekja tau-
bleiurnar fyrrnefndu sem Dóra
segir verða sífellt vinsælli. „Þær
eru í sjálfu sér ákveðið aftur-
hvarf til fortíðar en kostirnir eru
ótalmargir. Þær eru náttúrulega
umhverfisvænar þar sem ekki er
verið að henda fleiri tonnum af
bleium sem safnast upp í náttúr-
unni. Í þessu felst síðan auðvitað
heilmikill sparnaður.“
En skyldi ekki vera mikið mál
að þvo taubleiurnar? „Alls ekki,“
svarar Dóra. „Það er alls ekkert
mál að þrífa þær. Maður skellir
þeim bara í þvottavélina og
lætur þær síðan þorna yfir nótt-
ina.“
Fyrir utan fötin og bleiurnar
hefur Dóra selt leikföng og krem
fyrir börn. Hingað til hefur
þetta allt saman eingöngu feng-
ist í gegnum heimasíðu sem hún
heldur úti á www.natturubarn.
is. Með þátttökunni í Jólaþorp-
inu verður ákveðin breyting þar
á. „Vonandi verður þetta til þess
að mér tekst að kynna betur vör-
urnar,“ segir Dóra og bendir á
að hún hafi valið Jólaþorpið til
að kynna barnafötin,
vegna þess að þar
sé vöruúrvalið
svo vandað.
„Svo veit
ég að stemn-
ingin er
góð,“ segir
hún. „Það
verður bara
spennandi að taka þátt í jólagleð-
inni. Er ekki allt skemmtilegt ef
maður er jákvæður og í hátíðar-
skapi?“ - rve
Náttúruamma með í Jólaþorpið
Náttúruamman Dóra Sólrún Kristinsdóttir bætist í hóp seljenda í Jólaþorpi Hafnar-
fjarðarbæjar. Þar verður hún með umhverfisvæn barnaföt sem henta vel viðkvæmri
húð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nýjum verslunum fjölgar við
Strandgötu í Hafnarfirði og á
meðal þeirra er kvenfataversl-
unin B Young.
Ein þeirra verslana sem nýlega
hafa hreiðrað hafa um sig í miðbæ
Hafnarfjarðar er B Young. Hún
er við Strandgötu 21 og þar er
Hrefna Ósk Benediktsdóttir eig-
andi sjálf við afgreiðslu.
„Móttökurnar hafa verið virki-
lega góðar,“ segir hún ánægð.
„Strand gatan var aðalverslunar-
gatan á árum áður en á tímabili
hurfu flestar búðirnar inn í Verslun-
armiðstöðina Fjörð. Nú er Strand-
gatan öll að lifna við aftur og smátt
og smátt að fyllast í eyðurnar.“
B Young selur kvenfatnað,
mest er um föt til daglegra nota
en Hrefna segir hátíðaföt bætast
við fyrir jólin.
Þetta er önnur verslunin á
landinu. Hin er í Bankastræti 11
í Reykjavík og á heimasíðunni
byoung.is má lesa um sögu húss-
ins sem hýsir hana.
Skyldi Strandgata 21 ekki eiga
neina skráða sögu? „Ekki svo ég
viti en hér var vinsæl skóbúð í
eina tíð og ýmsir líta inn bara til
að minnast hennar,“ segir Hrefna.
„Einn viðskiptavinur nefndi líka
við mig að hér væri gaflinn sem
Gaflarar eru kenndir við. Ég sel
þá sögu ekki dýrar en ég keypti
hana.“
- gun
Innan við Gaflinn
Hrefna Ósk er ánægð á Strandgötunni. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN
kr. 7.333,-
kr. 14.020,-
Bjórdæla
Ryksuga m/rafhlöðum