Fréttablaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 70
42 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
SCARLETT JOHANSSON KVIK-
MYNDALEIKKONA ER 23 ÁRA.
„Eitt af því besta sem kona
heyrir er að hún sé kyn-
þokkafull.“
Scarlett Johansson byrjaði
kvikmyndferil sinn aðeins tólf
ára í The Horse Wispherer. Í
dag er hún eitt helsta uppá-
hald Woodys Allen.
„Þetta var miklu meira tilstand en ég
hafði búist við. Það var haldin heil-
mikil veisla,“ segir Óskar Sigurðs-
son, vitavörður á Stórhöfða í Vest-
mannaeyjum, um sjötugsafmælið
hinn 19. nóvember.
Hann segir bjargveiðimenn undir
forystu Marinós Sigursteins sonar
pípulagningameistara hafa haft veg
og vanda af afmælis fagnaðinum.
„Marinó er einn af svokölluðum
Elliða eyingum,“ bætir hann við til
skýr ingar. En skyldi Óskar fara á
veiðar með strákunum?
„Ég er nú svolítið sér á báti. Er
ekki í veiðifélaginu en hef mikil
samskipti við veiðimenn því ég hef
merkt lunda síðustu fimm áratugi og
árangur þess starfs byggist á því að
tilkynnt sé um veidda merkta fugla.
Margir hafa gert það samviskusam-
lega og mig langar að koma á fram-
færi þökkum til þeirra fyrir áratuga
samvinnu í þessu efni.“
Þegar blaðamaður kveðst hafa
dregið það fram eftir morgni að
hringja í Óskar svo hann gæti sofið út
eftir veisluna svarar hann hress. „Það
var ágætt. Ég þurfti öðru að sinna í
morgun. Athugaði til dæmis veðr-
ið klukkan níu. Það er gert á þriggja
tíma fresti allan sólarhringinn og við
erum hér tveir feðgar sem skiptum
því með okkur. Ég fór klukkan þrjú
og níu en sonurinn klukkan sex.“
Óskar er fæddur og uppalinn í Stór-
höfða og kveðst þar mjög rótfast-
ur. Hann byrjaði árið 1952 að athuga
veðrið klukkan þrjú að nóttu. „Faðir
minn, Sigurður Valdimar Jónatans-
son, var hér vitavörður á undan mér
og ég tók formlega við árið 1965. Þá
var mikið breytingatímabil hjá mér
því foreldrar mínir dóu með stuttu
millibili og ég varð einn eftir,“ segir
hann. Óskar segir tæknina sem hann
umgengst daglega hafa tekið miklum
breytingum í tímans rás. „Það var
komið rafmagnsljós í vitann þegar ég
tók við honum en ég man þegar þar
var olíulampi og þá þurfti hann mikla
umhirðu. Gangverkið var dregið upp
með sveif á hverjum sólarhring eins
og klukka.“
Þegar forvitnast er um tómstunda-
iðju vitavarðarins svarar hann: „Til
dæmis það sem við byrjuðum á að
tala um, fuglamerkingar. Ég hef lagt
mikla vinnu í þær. Nú er athyglin
farin að beinast að þeim gögnum sem
ég hef safnað gegnum tíðina og tölv-
urnar auðvelda úrvinnslu þeirra.“
Hann segir snjótittlingana auf-
úsugesti í höfðanum enda gefi hann
þeim vel en kveðst ekkert sérlega
vin veittur hrafninum. Hann taki
svo mikið af eggjum á vorin. Mesta
ókostinn við staðinn segir Óskar vera
rokið. „Ég hef ekki vanist vindinum.
Hann þreytir mig æ meira eftir því
sem ég eldist.“
Í lokin er Óskar spurður hvað sé
honum efst í huga á þessum tímamót-
um. „Ja, ég get ekki verið annað en
þakklátur forsjóninni fyrir að fá að
halda heilsu fram að þessu,“ svarar
hann og bætir við: „Maður sér það
betur eftir því sem tíminn líður hvað
það er mikils virði að geta verið sjálf-
stæður og ekki upp á aðra kominn.“
gun@frettabladid.is
ÓSKAR J. SIGURÐSSON, VITAVÖRÐUR: SJÖTUGUR
Byrjaði veðurathugun 15 ára
VITAVÖRÐURINN. „Ég get ekki vanist vindinum á Stórhöfða. Hann þreytir mig æ meira eftir því
sem ég eldist,“ segir Óskar. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
John F. Kennedy, 35.
forseti Bandaríkjanna,
var myrtur í Dallas í
Texas þennan dag
fyrir 44 árum. Forset-
inn sat í opnum blæju-
bíl, ásamt eiginkonu
sinni, Jacqueline, þegar
skotið var á þau úr
launsátri.
Hinn meinti morðingi, Lee
Harvey Oswald, skaut þremur
skotum ofan af sjöttu hæð í ná-
lægri byggingu og Kennedy var
úrskurðaður látinn hálftíma
síðar. Lyndon Johnson varafor-
seti tók samstundis við völdum.
Fjölmargar samsæriskenning-
ar hafa verið á lofti um morðið
og margir velt vöng-
um yfir því hvort Os-
wald hafi verið keyptur
til verksins. Oswald var
fæddur árið 1939 og
gekk til liðs við banda-
ríska herinn sautján ára
að aldri. Síðan fór hann
til Sovétríkjanna árið
1959 og sumir héldu að hann
hefði starfað fyrir kúbönsk og
rússnesk stjórnvöld. Það fékkst
aldrei staðfest. Oswald var skot-
inn til bana þegar verið var að
færa hann í fangelsi. Morðingi
hans, Jack Ruby, var dæmdur til
dauða en lést úr lungnabólgu á
meðan hann beið eftir ákvörð-
un áfrýjunardómstóls.
ÞETTA GERÐIST: 22. NÓVEMBER 1963
John F. Kennedy myrtur
timamot@frettabladid.is
Elskulegur faðir okkar, afi, sonur og
bróðir,
Sveinbjörn Bjarkason,
verður kvaddur frá Bústaðakirkju á morgun, föstu-
daginn 23. nóvember, klukkan 13.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans
er bent á Samhjálp. Bankareikningur 1163-26-777,
kennitala: 551173-0389.
Fyrir hönd aðstandenda,
Katrín Sjöfn Sveinbjörnsdóttir Jósef Zarioh
Axel Jósefsson Zarioh Aðalheiður Lára
Jósefsdóttir
Guðrún Lára Sveinbjörnsdóttir Þorsteinn Bjarnason
Bjarki Elíasson Ásthildur Sigurjónsdóttir
Björk Bjarkadóttir Kristján Friðriksson
Stefán Bjarkason Þorbjörg Garðarsdóttir
Þórunn María Bjarkadóttir Róbert S. Róbertsson
Þórdís Cortellino Björnsdóttir Ruggiero Cortellino
Árni Haukur Björnsson Þórey Bjarnadóttir
og fjölskyldur.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
Halldór B. Ólason
rafvélavirki, Framnesvegi 62, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi, þriðjudaginn
20. nóvember.
Hulda Heiðrún Eyjólfsdóttir
Valgerður Halldórsdóttir Helgi H. Steingrímsson
Sigríður Halldórsdóttir Gylfi Þorkelsson
Óli F. Halldórsson María Björk Daðadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurður Grétarsson
framkvæmdastjóri, Skipalæk, Fellahreppi,
lést sunnudaginn 4. nóvember síðastliðinn. Útförin fer
fram í kyrrþey. Kveðjustund, sem öllum er velkomið að
vera við, verður á íþróttavellinum í Fellahreppi laugar-
daginn 24. nóvember kl. 15.00. Minningarathöfn verð-
ur í Reykjavík í Neskirkju fimmtudaginn
29. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum.
Gréta Jóna Sigurjónsdóttir
Sigurjón Torfi Sigurðarson
Þórunn Gréta Sigurðardóttir
Kristín Arna Sigurðardóttir
Grétar Þór Brynjólfsson
Þórunn A. M. Sigurðardóttir
Sigurjón Jónsson
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Einar Valdimar Ólafsson,
Lambeyrum, Laxárdal,
andaðist á sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 19. nóv-
ember. Jarðarförin fer fram frá Hjarðarholtskirkju
1. desember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er
bent á minningarkort Sjúkrahússins á Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á lyflæknisdeild
Sjúkrahúss Akraness.
Daði, Jónína, Skúli, Lilja, Valdimar, Valdís, Ólöf Björg,
Svanborg, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn.
MOSAIK
Okkar ástkæri sambýlismaður, faðir,
tengdafaðir, afi, sonur og bróðir,
Hjörtur Hjartarson
Professorsgatan 2b, 215-53 Malmö,
Svíþjóð,
sem lést miðvikudaginn 7. nóvember verður jarð-
sunginn frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn
23. nóvember kl. 13.00.
Vilborg Arinbjarnar
Hjörtur Hjartarson Geirþrúður María Kjartansdóttir
Matthías Hjartarson
Eygló Arinbjarnar Christopher John Kerr
Sigurður Arinbjarnar
Kristbjörg Karen Hjartardóttir
Matthías Hjörtur Hjartarson
Hjörtur Hjartarson Jensína Guðmundsdóttir
Drífa Hjartardóttir Skúli Lýðsson
Ingibjörg Hjartardóttir Sigurður Ólafsson
Anna Ásta Khan Hjartardóttir Hrafn Sabir Khan
Björn Grétar Hjartarson
Guðmundur Ingi Hjartarson Sigríður Sigmarsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Anna Helga Sigurðardóttir,
Naustahlein 12, Garðabæ,
lést hinn 11. nóvember sl. á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall hennar. Sérstakar
þakkir til starfsfólks á deild B4 í Fossvogi.
Sigurður Jónsson
Elín Jónsdóttir
Unnur G. Jónsdóttir Brynjar Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn.