Fréttablaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 76
48 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
Í Hlaupári eru 366 vísur eða örljóð sem skiptast í
fjóra kafla er bera heiti árstíðanna og hefst
ferðalagið að hausti með tilheyrandi
spurn um feigð og dauða: „Hvort
deyjum við drottni okkar eða sjálfum
okkur?“ (7) er fyrsta vafamálið og það
stærsta. Vísurnar eru allar ortar undir
sama „brag“, hafa allar sama knappa
formið; þrjár örstuttar braglínur
(þríkvæð erindi), eitt til þrjú orð hver
lína. Fyrirmyndin er japanska ljóð-
formið hæka; „hófstillar hækur“ segir
í vísu 302.
Hækan er bundið ljóðform og
búningur hennar með eindæmum
knappur og krefjandi, verðgildið
(hversu dýrt er ort) ræðst hins vegar
ekki af ágætum íþróttar og brag-
þrauta – ekkert rím til dæmis, frjáls
stuðlun, atkvæðafjöldi og áherslur
fljótandi – heldur efniskjarnanum og
uppbyggingu hans á augabragði með
einu örskoti (og ósýnilegum iðandi
tóni). Galdurinn felst í því að opna
spurn og/eða opinbera einhver
sannindi, þar sem hvort heldur
spurningin eða svarið er ávísun á (nýja) visku. Góð
hæka er því einsog spakmæli eða málsháttur;
„stutt setning sprottin af langri reynslu“ (Cervant-
es), en rúin öllu ytra tildri og treystir því á viskuna
eina (auk hljóms sem svo er tær að hann á sér
ekkert efni).
Áhlaup skáldsins – að afhjúpa daglega nýja
lífsvisku (krafa formsins) – er því vitaskuld atlaga
að ósigrandi marki og afraksturinn eðlilega út og
suður.
Um það bil þriðjungur vísnanna er frísklegur
skáldskapur og einstaka vísa er bæði snörp og
skemmtileg, ekki síst orðaleikirnir – t.d. nr. 22, 65,
82, 86, 98, 122, 141 og 148 – en alltof margar vísur
eru bæði efnisrýrar og snauðar að skáldskapar-
máli; „viska“ þeirra gömul og léttvæg, slagkraftur-
inn lítill og tónninn sprakur.
En þetta er aðgengilegur og hrekklaus kveð-
skapur, auðskilinn og fylgir gildum sem nánast
allir geta sæst á, viðurkennd sannindi víðast og
gamalkunnir grandalausir þankar. Vísurnar eru
þrautalausar, skáldskapurinn sjálfur leysir
jafnóðum allar slaufur sem hann
bindur (þótt ýmsum spurning-
um sé þar ósvarað)og fátt sem
kemur á óvart eða þarfnast
frekari útleggingar. Yrkisefnin
eru hversdagurinn, vindurinn
og veðrið, tilveran, tilvistin,
náttúran, skáldið og eilífðin.
Allt er þar með kyrrum
kjörum; veðrabrigði eru t.d.
helsta togstreita náttúruaflanna
og heimurinn válaus þótt hann
sé guðlaus, lögmál lífsins gott
þótt dauðinn sé óviss. Skáldið er
lærisveinn náttúrunnar, ölvað
krafti hennar varar skáldið við
öfgum og „bætir líf“ – og þá ekki
síst sitt eigið; málsvörn skáld-
skaparins á vorum dögum er
ávísun hans á ódauðleik sem
annars fæst engin trygging fyrir:
„Engu öðru til að dreifa yfir
hjarnið en orðum okkar“ (nr. 109)
(hvorki Aristótelesi, Longínusi,
Philip Sydney né Shelley kom það til hugar).
Án listarinnar (því sem gæti gerst, sagði Ari)
glatar maðurinn sannleikanum (því sem gerðist
eða gerist, sagði Ari) sagði Nietzsche ungur. Nú er
öldin þessi: Með skáldskap bjargar skáldið sjálfu
sér frá glötun – en býður lesanda sínum heilræði í
hérvist.
Verðleikar bókarinnar felast í hógværð hennar
og lítillæti, ágallinn er hins vegar sá að fátt er þar
óvænt og vísnasmíðin er víða ansi lítil fyrir sér.
Heilræði í hérvist
BÓKMENNTIR
Hlaupár
Þór Stefánsson
★★
Niðurstaða: aðgengilegur og hrekklaus kveðskapur
Jólabókaflóðinu fylgja ýmis vanda-
mál. Lesendur þurfa ekki einasta
að takast á við valkvíða varðandi
hvað þeir vilja lesa, heldur þurfa
þeir einnig að finna tíma til lesturs-
ins. Síðast en ekki síst þarf að finna
pláss í bókahillunum fyrir allan
þann fjölda bóka sem dæmigerðum
lestrarhesti áskotnast á aðfanga-
dagskvöld.
Stærsti bóksalinn á veraldar-
vefnum, Amazon, hefur nú sett á
markað tæki sem kann að ráða bót
á síðastnefnda vandamálinu. Fyrir-
tækið hefur þróað þráðlausa raf-
bók sem gerir notendum sínum
kleift að lesa texta af skjá. Útlit
skjásins líkir fremur eftir bókar-
síðu en
tölvu-
skjá og eykur þannig þægindi við
lesturinn. Fyrirbærið kallast Kindle
og getur geymt allt að 200 bækur í
einu í minni sínu. Tækið er á stærð
við meðalstóra kilju en er töluvert
léttara. Enn sem komið er fæst það
eingöngu hjá bandarískri vefsíðu
Amazon.
Kindle er langt því frá að vera
fyrsta rafbókin sem reynir að festa
sig í sessi sem arftaki hins prent-
aða orðs. Risafyrirtæki á borð við
Microsoft og Sony hafa árum saman
reynt að fá lesendur til þess að snúa
baki við bókum, en árangurinn
hefur látið á sér standa.
Jim Bezos, stofnandi Amazon,
hefur viðurkennt að erfitt sé að
markaðssetja rafbækur. „Bækur
hafa verið ótrúlega þrautseigar
þrátt fyrir aukin umsvif stafrænna
miðla. Það er líklega vegna þess að
bækur eru í raun afar þróaðir
miðlar sem erfitt er að bæta,“ sagði
hann nýverið á kynningarfundi
fyrir Kindle.
Amazon vill þó meina að grund-
vallarmunur sé á nýja tækinu og
fyrri rafbókum. Kindle notast við
þráðlausa tækni og gerir notendum
því kleift að hlaða niður bókum án
þess að tengja tækið við tölvu.
Amazon hefur fengið bandarískt
farsímafyrirtæki í lið með sér til
þess að notendur geti nálgast
bækur hvar og hvenær sem er með
Kindle.
Amazon býður notendum Kindle
einnig upp á þann möguleika að
vera í áskrift að ýmsum blöðum og
tímaritum sem send verða í tækið
um leið og þau koma út.
Nú er bara að bíða og sjá hvort
Kindle verði innan nokkurra ára
efst á óskalista íslenskra bókaorma.
- vþ
Þráðlaus bók í jólapakkann
BÓK ÁN BLAÐA Jim Bezos, stofnandi
Amazon.com, sést hér halda á eintaki af
þráðlausu bókinni.
KINDLE
Tækið er
handhægt
eins og sjá
má á þess-
ari mynd.
LAUGARDAGUR 24. NÓV KL. 13
TKTK: FAGOTT Í FORGRUNNI
KRISTÍN M. JAKOBSDÓTTIR O.FL.
Miðaverð 1500/500 kr.
LAUGARDAGUR 1. DES KL. 17
TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR
AUÐUR GUNNARSDÓTTIR,
BERGÞÓR PÁLSSON OG
JÓNAS INGIMUNDARSON.
SÖNGLÖG EFTIR
JÓN ÁSGEIRSSON.
Miðaverð 2000/1600 kr.
GEFÐU UPPLIFUN !
NÝ OG FALLEG GJAFAKORT
OG MARGIR FRÁBÆRIR
TÓNLEIKAR Í BOÐI !
Gerðuberg • www.gerduberg.is • sími 575 7700
GERÐUBERG
Fiðluleikarar:
Auður Hafsteinsdóttir • Bryndís Pálsdóttir
Greta Guðnadóttir • Guðný Guðmundsdóttir
Halla Steinunn Stefánsdóttir • Hildigunnur
Halldórsdóttir • Hjörleifur Valsson
Hlíf Sigurjónsdóttir • Laufey Sigurðardóttir
Lilja Hjaltadóttir • Margrét Kristjánsdóttir
Martin Frewer • Sif Tulinius
Sigrún Eðvaldsdóttir • Sigurlaug Eðvaldsdóttir
Unnur María Ingólfsdóttir
Aðgangseyrir:
1200 kr. – 600 kr. fyrir tónlistarnema
Ókeypis aðgangur fyrir 12 ára og yngri