Fréttablaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 22
22 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Bæjarskipulag ætti auðvitað að taka mið af því að sem flestir geti haft það sem best. Almennt séð fer það illa með lífið í hverfunum þegar auðmenn leggja stóran hluta þeirra undir sig,“ segir Valur Gunnarsson rithöfundur. „Þetta hefur verið mjög óheppileg þróun víða erlendis, til dæmis í Cam- den í London, Greenwich Village í New York og Kallio í Helsinki. Það sama virðist vera að gerast í 101 og kannski á Seltjarnarnesi líka, örfáir auðmenn kaupa upp lóðir og hækka verð í hverfinu upp úr öllu valdi,“ segir hann. „Það ætti kannski frekar að búa til sérstakt friðland fyrir auðmenn, gefa þeim eins og eitt fjall, sem við getum horft upp til með aðdáun eða fyrirlitningu. Þar geta þeir svo byggt sér það sem þeim sýnist. Þetta friðland gæti til dæmis verið á Kárahnjúkum. Í eitthvað verða þeir jú að nota þessa jeppa sína!“ SJÓNARHÓLL EFNAFÓLK RÍFUR GÖMUL HÚS Ættu að fá sitt eigið fjall VALUR GUNN- ARSSON RITHÖF- UNDUR RÁÐ VIÐ ÁFENGISSÝKI: STEIKT EÐA SOÐIN LUNGU ■ Margir trúðu því fyrr á öldum að lækna mætti áfengissýki með því að borða steikt eða soðin lungu á tóman maga. Sú trú er þó væntanlega á algjöru undanhaldi nú á dögum. Áður fyrr var nær allt nýtt af kindinni og þóttu til dæmis garnir og milta nauðsynleg hverjum þeim sem vita vildi veðurfar næstu daga en síðan þá hefur veð- urfræð- inni farið mikið fram. „Ég er að kafna úr kvefi og get varla andað, er búin að hella í mig vítamíni og sólhatti,“ segir Alma Joensen, framkvæmdastýra Stúdenta- ráðs Háskóla Íslands. Hún lætur veikindin þó ekki aftra sér frá því að mæta til vinnu. „Ég var rétt í þessu að greiða úr greiningarsjóði Stúdentaráðs fyrir stúdenta með sértæka námsörðugleika. Þetta er í annað sinn sem greitt er úr sjóðnum. Þetta er gert að frum- kvæði Stúdentaráðs enda leggur ríkið engan pening í þennan málaflokk. Við viljum breyta því og erum þessa dagana að safna styrkjum til að fjármagna sjóðinn, svo að við getum komið til móts við þá stúdenta sem þurfa á slíkri greiningu að halda.“ Alma sækir fjölda ráðstefna og vinnufunda erlendis í starfi sínu. Ekki er langt síðan hún kom heim frá Spáni af einum slíkum. „Svo er ég að fara til Litháen um helgina á aðalfund Evrópusamtaka stúdenta. Þemað að þessu sinni er jafnrétti kynjanna en á fundinum sjálfum eru líka rædd almenn málefni, kosið um lagabreytingartillögur, ný stefnumál lögð fram og svo framvegis. Ég mun stýra þarna vinnuhópi sem ber heitið „kyn og uppeldi“.“ „Annars er ég bara að stress- ast upp fyrir Stúdentaráðskosn- ingarnar í febrúar. Ég sef varla á næturnar, en það er nú líka af því að ég er svo kvefuð.“ En hvernig er andinn á skrifstofu SHÍ? „Það er rosa góður andi þessa dagana. Enda hausthátíðin nýyfirstaðin og starfsmenn skrifstofunnar að farast úr spenningi yfir væntan- legu jólaglöggi.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ALMA JOENSEN, FRAMKVÆMDASTÝRA STÚDENTARÁÐS HÍ Greiðir aftur úr greiningarsjóði Börnin á leikskólunum Álfheimum og Árbæ á Selfossi voru nokkuð skelkuð eftir jarðskjálfta- hrinu á svæðinu í fyrrinótt. Þau kviðu gærdeginum dálítið en það reyndist ekki ástæða til þess. „Þau eru ótrúlega sniðug og vita alveg hvernig þau eiga að bregðast við. Þau vita vel að þau eiga að fara undir borð ef eitthvað gerist,“ segir Rannveig Guðjónsdóttir, leikskólastjóri á Árbæ. Hún segir eina stúlku hafa hrokkið í kút við óvæntan hávaða í gær og rokið beint undir borð. Ingbjörg Stefánsdóttir, leikskólastjóri á Álfheimum, segir foreldra og kennara hafa mætt heldur illa sofna í morgun. Haldinn var fundur um málið og farið yfir viðbrögðin ef stór skjálfti kæmi. „Sum börnin urðu hrædd og önnur ekki. Þau tala gjarnan um eldri systkini sín sem urðu hrædd því þau gera sér betur grein fyrir því sem gerðist. Ein stúlka sagði frá bróður sínum sem datt fram úr rúminu,“ segir Ingibjörg og segir eldri börnin kunna að krjúpa, skýla og halda sér þegar kemur jarðskjálfti. Á Álfheimum var börnunum sagt að þau væru jarðskjálftaverðir og ættu því að vera í inniskón- um sínum í dag og næstu daga, ef þau þyrftu skyndilega að rjúka út. - eb Leikskólabörn á Selfossi urðu dálítið skelkuð vegna jarðskjálfta: Kunna að krjúpa, skýla og halda SUMIR URÐU HRÆDDIR EN AÐRIR EKKI Börnin á Selfossi urðu sum hrædd þegar jarðskjálftar riðu yfir svæðið og foreldrum og kennurum var ekki svefnsamt. Þótt tímatal Dana sé hið sama og hér á landi þá er nýafstaðið fjörlegt gamlárs kvöld hjá samfélagi Íslendinga í Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Svavar Gestsson sendiherra segir frá því viðburðaríka ári sem það kvöld leið í aldanna skaut og markatölunni 14-2 sem veldur honum tvöföldum hrolli. „Þegar afmælisár Jónasar Hall- grímssonar hófst í fyrra þá hugs- uðum við með okkur „þetta verð- ur flókið, það eru ekki margir Danir sem þekkja þennan karl,““ segir Svavar þegar hann rifjar upp afmælisár Jónasar Hall- grímssonar sem lauk formlega 16. nóvember síðastliðinn. „En okkur tókst vel að ná til Íslend- inga hér og síðan hefur komið í ljós að félagsmenn Dansk- íslenska félagsins hér voru geysilega ánægðir með hvernig til tókst og þar að auki hafa við- brögð við menningarviðburðum sem við höfum haldið fært okkur í sanninn um að okkur hafi tekist að breiða út fagnaðarerindið.“ Menntamálaráðuneytið á Íslandi og sendiráð Íslands höfðu veg og vanda af þeim fjölmörgu viðburðum sem haldnir voru 200 ára afmælisbarninu til heiðurs. Meðal þeirra ótal mörgu sem tóku þátt í verkefninu eru Íslenski kvennakórinn í Kaup- mannahöfn og kórinn Staka sem sungu lög við ljóð Jónasar, Erik Skyum Nielsen Garðsprófastur sem leiddi fróðleiksfúsa um stúdentagarðinn Regensen þar sem Jónas dvaldi ásamt fleiri frægum Íslendingum og Fífil- brekkuhópurinn sem flutti lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð afmælisbarnsins. Einnig voru haldin menningarkvöld á Fjóni og í Horsens þar sem Kristján Hjartarson og Kristjana Arn- grímsdóttir fluttu söngva með textum skáldsins. Einnig var gefin út ljóðabókin Landet var fagert en hún inniheldur 20 ljóð skáldsins sem þýdd hafa verið á dönsku. „Böðvar Guðmundsson var framkvæmdastjóri verkefnisins og það var alveg ómetanlegt að njóta krafta jafn ötuls manns og hann er. Hann stýrði samkom- unni á afmælisdegi Jónasar sem er eins konar gamlárskvöld á þessu Jónasarári og lét hann ekki undir höfuð leggjast að þýða ævintýri skáldsins á dönsku í tilefni dagsins.“ Sendiherrann var að búa sig undir að fylgjast með landsleik Dana og Íslendinga þegar blaða- maður náði tali af honum. Segja má að hann fái tvöfaldan hroll þegar minnst er á markatöluna 14-2. „Á mínum stutta knatt- spyrnuferli lenti ég í því að tapa fyrir KR-ingum 14-2 þegar ég lék með Þrótti. Og þótt Danir séu nú flestir búnir að gleyma leiknum fræga þegar þeir unnu okkur með sömu markatölu þá eru þeir reyndar svo vinsamlegir að minna jafnan á hana þegar liðin mætast.“ Fleiri viðburðir eru á döfinni þótt Jónasarár sé liðið í aldanna skaut og ef allt fer á besta veg mun krónprinsinn fara með spúsu sína til Íslands á næsta ári. Einnig er nóg um daglegt amstur í sendiráðinu. „Hér búa um 10 þúsund Íslendingar,“ segir Svavar. „Það eru gefin út um 700 vegabréf árlega og hingað ligg- ur gríðarleg umferð Íslendinga. Til dæmis voru 53 áætlunarferð- ir á viku síðastliðið sumar. Enda er það nú einu sinni þannig að allir þeir sem ætla að frelsa heiminn byrja hér.“ jse@frettabladid.is Gamlárskvöld á Jónasarári HALLDÓR BLÖNDAL OG SVAVAR GESTS- SON Það er ráðlegt að fara sér hægt í þessum tröppum eins og tvímenning- arnir gera. Þetta eru nefnilega tröppurn- ar þar sem Jónas fór sér að voða endur fyrir löngu. Halldór kom að skipulagn- ingu Jónasarárs fyrir hönd menntamála- ráðuneytisins. MYND/SIGURÐUR BOGI BÖÐVAR GUÐMUNDSSON Sendiherrann er þakklátur fyrir störf Böðvars á Jónasarárinu. Hér er hann að stýra sam- komu sem efnt var til á gamlárskvöldi Jónasarársins. MYND/ODDUR BENEDIKTSSON LJÓÐ SKÁLDSINS SUNGIN Regína Unnur Ólafsdóttir hefur upp orð skáldsins við undirleik Steens Lindholm sem er Íslenskum tónlistarmönnum oft innan handar. MYND/ODDUR BENEDIKTSSON Lítil prýði „Nú er staðan orðin þannig að þarna er kominn myndar- haugur af alls konar drasli, en þar er meðal annars að finna klósett, rúm, borðplötur og ruslapoka.“ GÍSLI J. EYSTEINSSON ER ORÐINN LANGÞREYTTUR Á RUSLI SEM SAFN- AST UPP VIÐ HÚS HANS. Fréttablaðið 21. nóvember. Óheppinn „Ég fór til lögreglunnar og spurði hvort hún gæti ekki hjálpað mér en þar var mér bara sagt að ég væri óhepp- inn að vera nafni hans.“ SNÆBJÖRN SIGURÐUR STEIN- GRÍMSSON HEFUR ORÐIÐ FYRIR BARÐINU Á REIÐUM NETVERJUM SEM HALDA AÐ HANN SÉ NAFNI HANS HJÁ SMÁÍS. Fréttablaðið 21. nóvember. kokka.is Opið mán.- föstud. 10-18 og lau. 10-16 www.kokka.is kokka@kokka.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.