Fréttablaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 12
12 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
LÍBERÍA Með samtakamætti kvenna
urðu til öflug samtök í Líberíu sem
höfðu áhrif á að friður komst á í
landinu og að honum er viðhaldið
enn í dag. Lindora Howard-Dia-
ware hefur verið framkvæmda-
stýra friðarsamtaka kvenna,
„Women in Peacebuilding Net-
work“ (WIPNET), í Líberíu síðan
árið 2006. Markmið WIPNET er að
virkja konur í aðkomu að friðar-
uppbyggingu.
Howard-Diawere heldur erindi
á árlegum morgunverðarfundi
UNIFEM í dag klukkan 8.15 á
Hótel Loftleiðum. Fundurinn er
öllum opinn og aðgangseyrir 2.500
krónur.
WIPNET hóf starfsemi í Líberíu
árið 2002 meðan enn ríkti borgara-
styrjöld í landinu. Ári síðar lauk
borgarastyrjöldinni og segir How-
ard-Diaware samtökin hafa þar
haft umtalsvert að segja. „Við ein-
beittum okkur að því að finna út
hvernig við gætum haft áhrif. Við
vorum bara tuttugu en fengum
fleiri konur til liðs við okkur og
hrintum af stað friðarherferð árin
2003 til 2005. Herferðin gekk út á
það að konur mótmæltu stríði,
sögðu hingað og ekki lengra, víða
um land og sköpuðu þannig
þrýsting daglega.“
Samtökin settu niður þrjú
grundvallarbaráttumál: Að stríð-
andi fylkingar myndu koma saman
til friðarviðræðna, vopnahlé boðað
í kjölfarið og að utanaðkomandi
herlið myndi tryggja að vopnahlé
yrði virt. „Við fórum með þessi
baráttumál okkar til stjórnvalda
og stríðsherra og í gegnum okkar
þrýsting urðu þau að veruleika.“
Howard-Diaware segir WIPNET
fylgjast vel með að friður sé virtur
í landinu og ef út af bregði fari
fulltrúar frá þeim á fund
viðkomandi aðila. Spurð um hvort
borgarastyrjöld gæti skollið á að
nýju í Líberíu segir Howard-Dia-
ware það vel geta gerst ef ekki er
aðgát höfð og passað að láta ekki
átök milli hópa óáreitt.
Árið 2005 voru forsetakosningar
í Líberíu og varð Ellen Johnson-
Sirleaf fyrsta konan til að vera
lýðræðislega kosin þjóðhöfðingi í
Afríku. Howard-Diaware segir
önnur Afríkuríki horfa til Líberíu
vegna þess og hinnar sterku
kvennahreyfingar sem er þar en
að langt sé í land að hægt verði að
tala um kynjajafnrétti í Líberíu.
Í Íslandsheimsókninni fundar
Lindora Howard-Diaware meðal
annars með utanríkisráðherra og
utanríkismálanefnd. Segir hún
mikilvægt að hitta konur í valda-
stöðum erlendis til að geta lært af
reynslu þeirra og miðlað til kvenna
í Líberíu. „Og hver veit, kannski
verður þessi reynsla seinna til
þess að bæta aðstæður kvenna í
Líberíu.“
sdg@frettabladid.is
Konur sköp-
uðu þrýsting
Friðarsamtök kvenna í Líberíu stuðluðu að lokum
borgarastyrjaldar og beittu sér fyrir viðvarandi friði.
Framkvæmdastýra samtakanna er stödd á Íslandi.
LINDORA HOWARD-DIAWARE Segir önnur Afríkuríki horfa til Líberíu vegna fyrsta lýð-
kjörna kvenforseta álfunnar og hinnar sterku kvennahreyfingar í landinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STJÓRNMÁL Hjörtur Magni
Jóhannsson, prestur í Fríkirkj-
unni í Reykjavík, er sammála
hugmynd Björns Bjarnasonar
dóms- og
kirkjumála-
ráðherra um
að leggja
kirkjumála-
ráðuneytið
niður. Þetta
sagði hann í
predikun á
sunnudag.
„Ráðherra
dóms og
kirkjumála
hefur sjálfur
komið fram með þá hugmynd að
leggja niður sitt eigið ráðuneyti,“
sagði Hjörtur Magni. „Því ber að
fagna því að í raun er það
ráðuneyti einkamála. Trúmál og
kirkjumál hvers og eins eru
auðvitað einkamál hvers og eins.“
Hjörtur bætti því við að ekki
þyrfti ráðuneyti sem sinnir bara
málum eins trúfélags. - sgj
Vill kirkjumálaráðuneytið burt:
Fríkirkjuprestur
sammála Birni
UMHVERFISMÁL Svifryk í höfuðborginni fór yfir heilsuverndarmörk á
sunnudag og laugardag. Nú hefur svifryk farið fjórtán sinnum yfir
mörkin það sem af er ári.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar mælir svifryksmengun við
Grensásveg. Á laugardag reyndist magn þess vera 91 míkrógramm á
rúmmetra og á sunnudag 52,4 míkrógrömm. Viðmiðunarmörkin eru 50
míkrógrömm á rúmmetra.
Færanleg mælistöð Umhverfissviðs hefur verið staðsett við Ártúns-
brekku en þar hefur svifryksmengunin farið yfir mörk fjórum sinnum
síðan um miðjan október. - sgj
Mengun á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi:
Svifryk fór yfir mörk í borginni
HJÖRTUR MAGNI
JÓHANNSSON
Kona um þrítugt hefur verið ákærð
fyrir að stela átta húfum og slatta af
vettlingum í apóteki. Fenginn setti
hún í barnavagn og í vasa sína. Hún
fór síðan út án þess að greiða fyrir
varninginn.
DÓMSMÁL
Stal húfum og vettlingum
HÁLOFTALISTIR Herþotur breska
flughersins, Rauðu örvarnar, sýna listir
sínar á síðasta degi flugsýningarinnar
í Dubai. Var þetta í tíunda skipti sem
Dubai-flugsýningin er haldin og voru
yfir 140 flugvélar frá 50 löndum til
sýnis. NORDICPHOTOS/AFP
Ekið á hross
Hross hljóp í veg fyrir bíl á veginum í
Blönduhlíð, skammt frá Flugumýrar-
hvammi, um ellefuleytið í fyrrakvöld.
Ökumaður var einn á ferð og sakaði
ekki en bifreiðin skemmdist töluvert
eftir höggið en var þó ökufær. Hrossið
fannst dautt nokkrum metrum frá
árekstrarstaðnum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Hraðakstur innanbæjar
Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af
fjórtán ökumönnum vegna hraðakst-
urs innanbæjar á Akureyri í gær.
Sá sem hraðast ók mældist á 97
kílómetra hraða þar sem leyfilegur
hámarkshraði er fimmtíu kílómetrar á
klukkustund.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Félagsmálaráðuneytið
Evrópuár jafnra tækifæra 2007
Kynbundinn launamunur
Aðferðir til úrbóta
Ráðstefna 23. nóvember 2007
Jafnréttisstofa í samstarfi við Ár jafnra tækifæra og félagsmálaráðuneytið efnir til ráðstefnunnar Kynbundinn
launamunur - Aðferðir til úrbóta þann 23. nóvember kl. 13-16 í Sunnusal Hótel Sögu. Kynntar verða niðurstöður
rannsóknar á kynbundnum launamun sem unnin var upp úr gögnum Hagstofu Íslands um atvinnutekjur
þjóðarinnar. Í rannsókninni voru skoðaðar atvinnutekjur og heildartekjur kynjanna, eftir hjúskaparstöðu, aldri
og búsetu. Einnig verða ræddar ólíkar aðferðir sem notaðar hafa verið til að vinna bug á þeim vanda sem
kynbundinn launamunur er.
Dagskrá:
13:00 Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, setur fundinn
13:10 Tekjumunur karla og kvenna: Upplýsingar úr skattframtölum
Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri rannsóknarsviðs Jafnréttisstofu.
13:45 Kynjavöktun í aðdraganda kjarasamninga
Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ
14:05 Áform og aðgerðir - til að greina og eyða kynbundnum launamun
Sigríður Lillý Baldursdóttir, starfandi forstjóri Tryggingarstofnunnar
14:25 Kaffi hlé
14:45 Tala minna – gera meira
Ingibjörg Óðinsdóttir, forstöðumaður mannauðssviðs Skýrr
15:05 Markvissar aðgerðir skila árangri
Anna Jörgensdóttir, starfsmannastjóri Hafnarfjarðarbæjar
15:25 Pallborðsumræður
Fundarstjóri: Mörður Árnason
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis
SLYS Tveir bílar skullu harkalega saman á
gatnamótum Breiðholtsbrautar og Skógar-
sels um tvöleytið í gærdag, með þeim
afleiðingum að annar þeirra kastaðist til og
valt.
Svo virðist sem annarri bifreiðinni hafi
verið ekið gegn rauðu ljósi með fyrrgreind-
um afleiðingum.
Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang
ástamt dælubíl frá Slökkviliði höfuð-
borgarinnar, sem notaður var til að hreinsa
upp olíu og eldsneyti sem lekið hafði úr
bílunum.
Ökumaður og farþegi úr bílnum sem valt
voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en
meiðsli þeirra voru minni háttar og voru
þeir útskrifaðir af slysadeild Landspítalans
í gær. - æþe
Harður árekstur á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Skógarsels í gær:
Bíll valt eftir harðan árekstur
VALT EFTIR HARÐAN ÁREKSTUR Betur fór en á horfðist eftir að bíll valt eftir
harðan árekstur. Tveir voru fluttir á slysadeild með minni háttar meiðsli, en
þeir voru útskrifaðir af slysadeild samdægurs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ALÞINGI Fjárlaganefnd Alþingis
hefur óskað eftir upplýsingum frá
Þróunarfélagi Keflavíkurflug-
vallar hvernig tillögur um
breytingar á tekjum og gjöldum
félagsins eru tilkomnar. Magnús
Gunnarsson, stjórnarformaður
Þróunarfélagsins, sagði á Vísi.is í
gær að eignir Þróunarfélagsins
hefðu verið margauglýstar.
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri
grænna, gagnrýndi sölu á eignum
á Keflavíkurflugvelli harðlega á
Alþingi í fyrradag. Hann taldi að
um heimildarlausa sölu hefði verið
að ræða og að eignirnar hefði borið
að auglýsa. - ghs
Fjárlaganefnd Alþingis:
Óskar eftir upp-
lýsingum