Fréttablaðið - 22.11.2007, Side 4
4 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
SKIPULAGSMÁL Íbúar í Súðarvogi
50 munu ekki fá þjónustu
borgaryfirvalda og eiga hvorki
heimtingu á að njóta kyrrðar eða
umhverfis sem veitt er á íbúða-
svæðum. Þetta er meðal skilmála
byggingarfulltrúans í Reykjavík
fyrir heimild til að innrétta íbúðir
á 2. og 3. hæð atvinnuhússins í
Súðarvogi 50.
Talsvert barst af athugasemdum
frá eigendum nálægra bygginga en
byggingarfulltrúinn segir
samþykki sitt ekki fela í sér
nokkra breytingu á skipulagi
svæðisins sem atvinnusvæði og
þar séu hagsmunir atvinnustarf-
seminnar í fyrirrúmi. - gar
Fyrirvari vegna íbúða:
Lofa ekki kyrrð
í Súðarvogi
Í SÚÐARVOGI Íbúar í Súðarvogi geta ekki
vænst þess að fá kyrrð og ró.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVEITARSTJÓRNIR „Ég harma þessi
ótrúlegu vinnubrögð bæjarstjóra,“
segir í bókun Guðmundar G.
Gunnarssonar, odd-
vita minnihluta
sjálfstæðismanna í
bæjarráði
Álftaness, um
skoðanakönnun
bæjaryfirvalda
vegna nýs
skipulags mið-
svæðis. Guðmund-
ur segir að daginn
sem könnunin
hófst hafi bæklingi
verið dreift í hús með áherslum
meirihluta Álftaneslistans en án
sjónarmiða sjálfstæðismanna.
Fulltrúar meirihlutans sögðu vel
staðið að gerð tillögu um skipulag
miðsvæðisins. „Með þessari
skoðanakönnun mun bæjarstjórn
fá mynd af viðhorfum íbúanna til
tillögunnar áður en hún fær
afgreiðslu í bæjarstjórn,“ bókaði
Á-listinn. - gar
Minnihlutinn á Álftanesi:
Ósáttur við
skoðanakönnun
GUÐMUNDUR G.
GUNNARSSON
DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur
karlmaður hefur verið ákærður
fyrir Héraðsdómi Reykjaness
fyrir tvær líkamsárásir. Maðurinn
var dæmdur í 18 mánaða fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur í sumar
fyrir hrottalega líkamsárás í félagi
við annan mann.
Að þessu sinni er maðurinn
ákærður fyrir að hafa ráðist á
mann og konu á skemmtistað í
Reykjanesbæ. Honum er gefið að
sök að hafa skallað manninn svo
hann nefbrotnaði og féll niður
stiga. Jafnframt að hafa hent
konunni í gólf skemmtistaðarins
og sparkað ítrekað í hana svo hún
hlaut meðal annars skurði á höfði.
Dæmdur ofbeldismaður:
Ákærður fyrir
líkamsárásir
RÚSSLAND, AP Vladimir Pútín Rúss-
landsforseti líkir gagnrýnendum
sínum við blóðhunda sem hafi
þegið fé frá útlöndum. Einnig sakar
hann Vesturlönd um að skipta sér
af rússneskum stjórnmálum.
Á kosningafundi í gær sagði
Pútín að andstæðingarnir, innlend-
ir jafnt sem erlendir, reyndu nú
hvað þeir gætu til þess að grafa
undan og veikja Rússland.
Pútín stundar kosningabarátt-
una af kappi og reynir að tryggja
flokki sínum, Sameinað Rússland,
sem mest fylgi í þingkosningunum,
sem haldnar verða 2. desember.
Sjálfur hefur Pútín sagt að góð
útkoma flokksins tryggi það að
hann geti með góðri samvisku leyft
sér að halda áfram afskiptum af
rússneskum stjórnvöldum eftir að
hann lætur af embætti forseta á
næsta ári.
Án þess að nefna andstæðinga
sína á nafn, þá fór ekki á milli mála
að hann skaut jafnt á frjálslynda
flokka sem aðhyllast viðskipta-
frelsi og gamla kommúnistaflokk-
inn.
„Ef þessir herramenn komast
aftur til valda þá munu þeir aftur
svíkja alþýðuna og fylla vasa sína
af peningum,“ sagði hann. „Þeir
vilja endurreisa völd óligarkanna,
sem byggð verði á spillingu og
lygum.“ - gb
Vladimír Pútín Rússlandsforseti kominn á fullan skrið í kosningabaráttunni:
Sakar Vesturlönd um afskipti
PÚTÍN Á KOSNINGAFUNDI Forsetinn
nýtur mikilla vinsælda í Rússlandi þar
sem fólk hræðist enn glundroðann sem
fylgdi í kjölfar hruns Sovétríkjanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
BRASILÍA, AP Hrefna sem villtist og
synti 1.300 kílómetra upp
Amazon-ána í Suður-Afríku
drapst eftir að tilraunir til að
handsama hana og flytja aftur til
sjávar mistókust að því er
umhverfisráðuneyti Brasilíu
tilkynnti í gær.
Hrefnan, sem er 5,5 metrar að
lengd, festist á sandrifi að
minnsta kosti tvisvar eftir að
fyrst varð vart við hana í síðustu
viku. Hópur líffræðinga og
dýralækna rannsakaði hrefnuna á
sunnudag en hún slapp síðan frá
þeim og fannst dauð á þriðjudag.
Talið er að hún hafi verið
fimmtán daga í ánni. - sdg
Fór 1.300 kílómetra upp á:
Hrefnan í Ama-
z on-ánni dauð
FÉLAGSMÁL Guðmundur Bjarnason
hefur ekki enn fengið svar frá
Þjóðskrá vegna endurskoðunar á
þeirri ákvörðun að færa lögheim-
ili hans til Kína.
Fréttablaðið sagði frá því í
síðustu viku að Guðmundur fær
ekki greiddar bætur og er ekki
sjúkratryggður hér á landi. Hann
hefur því verið tekjulaus frá því í
febrúar, en fjórir mánuðir eru frá
því Þjóðskrá var upphaflega beðin
um að endurskoða ákvörðun sína.
Í samtali við vísi.is í síðustu
viku sagði Skúli Guðmundsson,
skrifstofustjóri Þjóðskrár, að
Guðmundi yrði svarað fyrir 16.
nóvember. Það svar hefur enn
ekki borist. - þeb
Guðmundur Bjarnason:
Þjóðskrá hefur
enn ekki svarað
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
GRÆNLAND Dansk-grænlenska
heimastjórnarnefndin, sem skip-
uð er þingmönnum bæði af græn-
lenska landsþinginu og af danska
þjóðþinginu, hefur í þrjú ár unnið
að gerð nýrra heimastjórnarlaga
fyrir Grænland. Formaður nefnd-
arinnar er Jonathan Motzfeldt,
sem jafnframt er forseti græn-
lenska landsþingsins. Í samtali við
Fréttablaðið staðfestir hann, að í
frumvarpsdrögunum sé því slegið
föstu, að Grænlendingar séu þjóð í
skilningi þjóðaréttar, sem þýðir að
þeir geti í krafti
sjálfsákvörðun-
arréttarins lýst
að eigin frum-
kvæði yfir sjálf-
stæði frá Dan-
mörku.
Í því fælist að
sjálfsögðu að
Grænlendingar
yrðu að treysta
sér til að standa
alfarið á eigin
fótum, en enn
sem komið er
þiggja þeir
árlega stóran fjárstyrk frá Dönum
til rekstrar grænlenska lands-
sjóðsins.
„Við Grænlendingar höfum haft
því láni að fagna að standa saman
þvert á alla flokka um afstöðuna í
þessum samningum við Dani,“
segir Motzfeldt. Færeyingar, sem
eins og sakir standa eru lengra
komnir í sjálfstjórnarátt en Græn-
lendingar, hafa aftur á móti verið
mjög klofnir í afstöðunni til þess
hversu langt skuli ganga í þessu
efni. Á færeyska Lögþinginu eru
nú flokkar í meirihluta sem vilja
fara sér hægt í að draga frekar en
orðið er úr tengslunum við
Danmörku.
Lykilatriði í samningum Græn-
lendinga og Dana er hvernig
tekjum af auðlindum á borð við
olíu sem finnast kunna í græn-
lenskri lögsögu skuli ráðstafað. Í
nýja heimastjórnarlagafrumvarp-
inu kvað verða kveðið á um óskor-
að tilkall Grænlendinga til þessara
auðlinda. Hvernig útfærslan á því
verður kemur þó ekki í ljós fyrr en
endanlega hefur verið gengið frá
frumvarpinu. Til stóð að það yrði
gert nú í byrjun desember, en þing-
kosningarnar í Danmörku settu
strik í reikninginn. Motzfeldt seg-
ist nú vera að bíða þess að fá stað-
festingu á því frá nýrri ríkisstjórn
Anders Fogh Rasmussen, hvort
dönsku fulltrúarnir í nefndinni
verði þeir sömu eða hvort nýir
menn komi í þeirra stað. „Ég var
að vona að okkur auðnaðist að
ganga frá þessu fyrir jól, en úr
þessu verður það sjálfsagt ekki
fyrr en í janúar,“ segir nefndar-
formaðurinn. audunn@frettabladid.is
Sjálfsákvörðunar-
réttur viðurkenndur
Í drögum að frumvarpi að nýjum heimastjórnarlögum Grænlands er viðurkennt,
að Grænlendingar séu þjóð sem þar með geti í krafti sjálfsákvörðunarréttar lýst
yfir sjálfstæði. Þetta staðfestir Jonathan Motzfeldt sem stýrir frumvarpsgerðinni.
JONATHAN
MOTZFELDT
FRÁ NUUK Verði Grænland sjálfstætt tekur grænlenska höfuðborgin titilinn „nyrsta
höfuðborg heims“ af Reykjavík. Nuuk er tveimur mínútum norðar.
GENGIÐ 21.11.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
121,7467
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
62,28 62,58
127,94 128,56
92,1 92,62
12,355 12,427
11,473 11,541
9,87 9,928
0,574 0,5774
99,2 99,8
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR