Fréttablaðið - 22.11.2007, Qupperneq 6
6 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
BRUSSEL, AP Framkvæmdastjórn
ESB kynnti á þriðjudag fyrirhugað-
ar umbætur á landbúnaðarstefnu
sambandsins þar sem markmiðið er
að lagfæra styrkjakerfið og gera
landbúnað umhverfisvænni.
Lagt er til að beinir fjárstyrkir til
landeigenda verði minnkaðir og
sparnaðurinn nýttur til þróunar-
verkefna í dreifbýli.
Landbúnaðarráðherrar ESB-
ríkja, fulltrúar bænda og fleiri
munu ræða áætlunina næstu
mánuði. Sem hlutfall af heildartekj-
um bænda í ESB eru landbúnaðar-
styrkir að meðaltali um þriðjungur
en sama hlutfall á Íslandi er um
tvöfalt hærra. - sdg
Landbúnaðarstefna ESB:
Umbætur á
styrkjakerfi
FINNLAND Umönnunarstarfsmenn í
Finnlandi hafa hætt við að ganga
út af stærstu sjúkrahúsunum í
landinu. Þeir fengu tilboð frá
vinnuveitendum sem samþykkt
var á mánudag. Að sögn Helsingin
Sanomat hljóðar tilboðið meðal
annars upp á 22-28 prósenta
launahækkun og jólabónus.
Stærstu sjúkrahúsin höfðu
dregið saman starfsemi sína
vegna verkfallsins og tekur það
hátt í þrjá daga að koma starf-
seminni aftur í eðlilegt horf. - ghs
Sjúkrahúsin í Finnlandi:
Í eðlilegt horf á
þremur dögum
STEFNDI Í ÓEFNI Mejlan-sjúkrahúsið í
Helsinki.
DÓMSMÁL Rétt liðlega sautján ára piltur er ákærður
fyrir hylmingu þýfis og fjögur innbrot í íbúðarhús-
næði í Reykjavík á fjögurra mánaða tímabili á þessu
ári.
Brotin framdi pilturinn ýmist einsamall eða í
félagi við aðra, en málið gegn honum var þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Pilturinn beitti
ávallt sömu aðferð við innbrotin og spennti upp
opnanlega glugga með kúbeini og skreið inn um þá
inn í húsin og lét þar greipar sópa.
Fyrsta innbrotið átti sér stað í janúar, en þá hafði
pilturinn á brott með sér fartölvur, stafrænar
myndavélar og annað verðmæti að andvirði um sex
hundruð þúsund króna.
Í öðru innbrotinu hafði pilturinn ekki jafn mikið upp
úr krafsinu, því þar stal hann einungis tyggjópakka og
sparibauk sem innhélt um tíu þúsund krónur.
Verðmæti þýfisins úr innbrotunum fjórum er
rúmlega ein milljón króna, en það samanstóð aðallega
af tæknibúnaði og raftækjum. Þá er pilturinn ákærður
fyrir hylmingu, en á heimili hans fannst þýfi í janúar.
Pilturinn játaði sök fyrir dómi í gær og var málið
tekið til dóms, en dómur verður upp kveðinn síðar í
þessari viku. - æþe
Sautján ára piltur ákærður fyrir hylmingu og fjögur innbrot í Reykjavík:
Þýfi fyrir rúma milljón króna
MÆLING HEIMSINS EFTIR DANIEL KEHLMANN
STÓRFENGLEGT
MEISTARAVERK
SKEMMTILESTUR
AF BESTU GERÐ
Mæling heimsins er sambland af vísinda-
sögu og lygasögu. Bókin er skrifuð af stór-
hug og er skemmtilestur af bestu gerð,
full af litlum athugunum sem kitla hug-
ann svo mann langar mest til að hrópa
af fögnuði. Mæling heimsins var næst
mest selda skáldsaga heims árið 2006.
1.SÆTI
Á METS
ÖLULIS
TA
EYMUN
DSSON
REYKJAVÍK Samningur Reykjavík-
ur og innheimtuþjónustunnar
Momentum og Gjaldheimtunnar
ehf., um innheimtu vangoldinna
fasteignagjalda, var gerður án
útboðs á sínum tíma.
Í svari frá fjármálaskrifstofu
Reykjavíkur kemur fram að þetta
sé „í reynd þróunarverkefni“ og
þau séu, almennt séð, ekki útboðs-
skyld. Ekki fylgir svarinu hvaða
rök voru fyrir því að bjóða verkið
ekki út, þótt leitað hafi verið eftir
þeim sérstaklega.
Um ræðir innheimtu sem áður
var á vegum Tollstjóra. Skuldarar
greiddu þá einungis dráttar-
vexti, þegar þeir gerðu upp.
Fréttablaðið hefur greint frá
dæmi um að kostnaður þeirra
hafi aukist um allt að 43 prósent,
vegna innheimtukostnaðar og
ítrekunargjalda Momentum. Þá
eru sjálfir dráttarvextirnir ekki
taldir með.
Fjármálaskrifstofan tilgreinir
ekki nákvæmlega hvaða fyrir-
tæki hafi komið til greina, þegar
ákveðið var að semja við Mom-
entum, en segir „þau fyrirtæki“
sem bjóði þjónustu milli-inn-
heimtu krafna og lögfræði-inn-
heimtu hafa komið til álita.
Það hafi verið borgarráð sem
tók ákvörðun um að skipta við
Momentum „á grundvelli verð-
lagningar.“ Spurð hvort gerð
hafi verið verðkönnun hjá öllum
viðlíka fyrirtækjum, svarar
skrifstofan að gerð hafi verið
„óformleg könnun á verði og
starfsemi helstu fyrirtækja“.
Þegar skrifstofan var spurð
hvort sjónarmið um neytenda-
vernd hefðu verið höfð til hlið-
sjónar við þessa ákvörðun, svar-
aði hún að með breyttu
fyrirkomulagi væri verið „að
færa innheimtukostnað yfir á
gjaldendur sem eru í vanskilum,
í stað þess að deila þessum kostn-
aði á alla greiðendur.“ Þannig
eigi breytingin að vera „íviln-
andi“ fyrir greiðendur fasteigna-
gjalda.
Skrifstofan fullyrðir að kostn-
aður vegna innheimtunnar hafi
lækkað um 37 prósent að raun-
virði milli ára, eftir að farið var
að skipta við Momentum og
Gjaldheimtuna. Ekki er greint
frá því hversu há sú upphæð er
né hvernig hún er reiknuð út.
klemens@frettabladid.is
Innheimtuþjónustan
var ekki boðin út
Samið var beint við einkafyrirtæki um nýtt fyrirkomulag við innheimtu van-
goldinna fasteignagjalda. Ekki fást upplýsingar um hvers vegna ekki var leitað
til annarra eftir tilboði í verkefnið. Borgarráð tók ákvörðun um viðskiptin.
RÁÐHÚSIÐ Eftir því sem næst verður komist var skuldurum var ekki tilkynnt um
breytt fyrirkomulag innheimtu, nema í smáa letrinu neðst á fylgiseðli álagningaseð-
ils. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
KJÖRKASSINN
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð
Álftaness átelur að ekki skuli
hafa verið haft meira samráð við
sveitarfélögin í landinu og
samtök þeirra um gerð frum-
varps til laga um almannavarnir.
„Það er eitt af verkefnum
sveitarfélaganna að vernda líf,
heilsu fólks, umhverfi og eignir
og því eiga almannavarnir að
vera í órjúfanlegu ferli á
vettvangi þeirra,“ segir sam-
hljóða bæjarráð. „Í samræmi við
þetta á forræði almannavarna á
friðartímum að vera í héraði og
varast ber þá stefnumörkun sem
sett er í frumvarpinu að gera
hlutverk ríkisvaldsins enn
víðtækara en er í gildandi
lögum.“ Bæjarráðið lýsir
vonbrigðum með áherslur í
frumvarpinu. - gar
Bæjarráð um almannavarnir:
Forræðið sé hjá
sveitarfélögum
VIÐSKIPTI Í nýrri skýrslu um fram-
þróun og stöðu íslenska fjármála-
kerfisins kemur fram að fjármála-
fyrirtæki séu vel í stakk búin til að
mæta erfiðleikum sem nú steðjar
að á alþjóðlegum mörkuðum.
Ástæðan sé meðal annars sú að
fjármálafyrirtækin brugðust vel
við gagnrýni sem sett var fram á
þau snemma árs 2006.
Skýrslan var unnin af Richard
Portes, prófessor við London Bus-
iness School, og Friðriki Má Bald-
urssyni, prófessor við Háskólann í
Reykjavík, í samstarfi við Frosta
Ólafsson, hagfræðing Viðskipta-
ráðs. Finnur Oddsson, fram-
kvæmdastjóri Viðskiptaráðs, sem
kostaði skýrsluna,
segir að þeir
Portes hafi fengið
frjálsar hendur.
Niðurstaðan sé
ekki pöntuð enda
mikilvægt að fá
raunsanna grein-
ingu á stöðu efna-
hagslífsins og fjár-
málafyrirtækja.
Skýrslan var kynnt í London í
gær þar sem starfsmenn erlendra
fjármálafyrirtækja og greiningar-
aðilar lánshæfismatsfyrirtækja
mættu. Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra lýsti stöðu íslensks efna-
hagslífs. Í skýrslunni kemur fram
að þrátt fyrir góða stöðu bankanna
beri þeir áhættuálag í fjármögnun
sinni sem virðist fremur hafa með
þjóðerni þeirra að gera en styrk-
leika og rekstrarhorfur.
„Þrátt fyrir að viðkomandi hag-
vísar gefi fulla ástæðu til að vera
á verði gagnvart samkeppnis-
hæfni hagkerfisins virðist fjár-
málakerfið vel í stakk búið til að
mæta ytri áföllum í íslensku hag-
kerfi. Þar vegur þungt sú dreifing
áhættu sem alþjóðavæðing þess
hefur haft í för með sér og enn
fremur hafa stærstu markaðsaðil-
arnir varið sig gagnvart flestum
veigamestu áhrifaþáttum íslensks
hagkerfis,“ segir í samantekt. - bg
Skýrsla um framþróun og stöðu íslenska fjármálakerfisins kynnt í London í gær:
Fjármálafyrirtækin standa vel
FINNUR
ODDSSON
Var rétt að loka torrent.is?
Já 35,1%
Nei 64,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fannst þér landslið Íslands
spila betur undir stjórn nýja
landsliðsþjálfarans?
Segðu skoðun þína á visir.is