Fréttablaðið - 22.11.2007, Síða 11
FIMMTUDAGUR 22. nóvember 2007 11
RÚSSLAND, AP Yfirmaður lands-
kjörstjórnar Rússlands sakar
Öryggis- og samvinnustofnun
Evrópu (ÖSE), sem hefur sérhæft
sig í kosningaeftirliti, um að hafa
látið pólitískar ástæður stjórna
því að stofnunin ákvað að sinna
ekki eftirliti með framkvæmd
rússnesku þingkosninganna.
Að sögn kjörstjórnarformanns-
ins, Vladimírs Churov, mun
fjarvera fulltrúa ÖSE ekki hafa
áhrif á lögmæti kosninganna.
Talsmenn ÖSE hafa sagt að
rússnesk yfirvöld hafi ætlað að
setja þvílíkar hömlur á starf
eftirlitsfulltrúanna að ekki hafi
verið hægt að una því. Full-
trúarnir hafi aukinheldur ekki
fengið vegabréfsáritun. - aa
Deilt um kosningaeftirlit:
Rússar gruna
ÖSE um græsku
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn
Snæfellsbæjar segir að vegna
niðurskurðar aflaheimilda þurfi
fleiri opinber störf til sveitar-
félagsins og vill fá Hafrannsókna-
stofnun til bæjarins.
„Bæjarstjórn Snæfellsbæjar
fer fram á það að ríkisstjórn
Íslands tjái sig um það hvaða
annmarka þeir sjái á því að færa
Hafrannsóknastofnun til Snæfells-
bæjar, ef einhverjir eru, í stað
þess að mæta bara þögn þegar
tillögur um aðgerðir eru bornar
fram,“ segir í bókun bæjarstjórn-
arinnar sem skorar á „forráða-
menn þjóðarinnar“ að flytja
opinber störf til sveitarfélaga sem
verst verði úti vegna kvótaniður-
skurðar. - gar
Aðgerðir gegn niðurskurði:
Hafrannsóknir
til Snæfellsness
KRISTINN JÓNASSON Bæjarstjóri í
Snæfellsbæ.
SVEITARSTJÓRNIR „Það eru vonbrigði
að verða vitni að neikvæðni og
þröngsýni vinstrimanna í garð
einkaframtaksins varðandi fyrir-
hugaðan Hamranesskóla,“ segir
Skarphéðinn Orri Björnsson, full-
trúi sjálfstæðismanna í fram-
kvæmdaráði Hafnarfjarðar.
Meirihluti Samfylkingar í fram-
kvæmdaráðinu felldi tillögu
Skarphéðins um að grunn- og tón-
listarskóli í Hamranesi yrði boð-
inn út í einkaframkvæmd.
„Kostnaður og óhagkvæmni einka-
framkvæmdarsamninga vegna
byggingarþáttar skólabygginga í
Hafnarfjarðarbæ liggur fyrir með
skýrum og ótvíræðum hætti,“
segja fulltrúar Samfylkingar í
bókun.
Skarphéðinn segist hafa talið að
Samfylkingin væri á réttri leið
eftir að hún samdi við einkaaðila
um rekstur skólastarfsemi á
Bjarkarvöllum. „Öðru máli virðist
gegna um rekstur mannvirkja, þar
er einkaaðilum greinilega ekki
treyst og enginn vilji til að fá úr
því skorið hvort að þeir geti boðið
hagkvæmar lausnir á rekstri hús-
næðis væntanlegs skóla,“ bókaði
hann.
Samfylkingarfólk segist hafa
skýra stefnu um að eignarhald og
rekstur hverfisskóla sé í höndum
sveitarfélagsins. „Tillögur að
samningum við Hjallastefnuna
vegna skólastarfs við Bjarkarvelli
snúa að rekstrarþætti en ekki fast-
eignum enda er þar ekki um
hverfisskóla að ræða,“ segir í
bókun Samfylkingarinnar. - gar
Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði segja meirihluta Samfylkingar þröngsýnan:
Hverfisskóli ekki einkarekinn
HAMFARIR Rauði kross Íslands
hefur sent þriggja milljóna króna
framlag til neyðaraðstoðar vegna
fellibylsins Sidr, sem gekk yfir
Bangladess í síðustu viku. Alls
var kallað eftir rúmlega 200
milljónum króna til aðstoðar fólki
á hamfarasvæðunum.
Staðfest hefur verið að rúmlega
þrjú þúsund manns hafi látist
vegna hamfaranna. Óttast er að
sú tala muni hækka mjög þar sem
aðstoð hefur enn ekki borist á
afskekkt svæði landsins.
Hægt er að leggja fram
framlög vegna hamfaranna í
söfnunarsíma Rauða krossins,
907-2020. - þeb
Rauði kross Íslands:
Þrjár milljónir í
neyðaraðstoð
PAKISTAN, AP Pervez Musharraf
Pakistansforseti segir að hann
muni segja af sér sem yfirmaður
hersins nú í vikunni og geti þá
tekið við forsetaembættinu á
laugardaginn sem óbreyttur
borgari.
Þúsundir manna hafa verið
látnir lausir úr fangelsi í vikunni.
Allir voru þeir handteknir í
tengslum við mótmæli gegn
Pervez Musharraf forseta síðan
hann lýsti yfir neyðarástandi í
landinu fyrir hálfri annarri viku.
Búist er við því að hæstiréttur
landsins gefi í dag út úrskurð í
síðasta álitamálinu sem tengjast
hinum umdeildu forsetakosning-
um þingsins í byrjun október.
- gb
Musharraf Pakistansforseti:
Segist segja af
sér í vikunni
SKARPHÉÐINN
ORRI BJÖRNSSON
Fulltrúi sjálf-
stæðismanna í
framkvæmdaráði
Hafnarfjarðar segir
vinstrimenn ekki
treysta einkafram-
takinu fyrir rekstri
mannvirkja.
2.295,-
ÞÚ SPARA
R 1.200,-
092863
PUPPY LOST HVOLPUR
Hreyfi r sig, geltir og lyftir
loppunni þegar þú klappar
honum eða gælir við hann.
Notar 3 C-rafhlöður. Veldu á
milli margra gerða. Venjulegt
lágvöruverð er 3.495
40 sm
181238
GYROTOR-ÞYRLA
Fjarstýrð. Getur fl ogið upp, niður, áfram og snúið við. Sendirinn nær allt
að 15 m. Er hægt að nota bæði innan- og utandyra. Þú hleður í 25 mínútur
og þyrlan fl ýgur í 7 mínútur. Með innbyggðri endurhlaðanlegri rafhlöðu
og hleðslutæki. 24 sm. Notar 1 D-rafhlöðu. Margar tegundir í boði.
Venjulegt lágvöruverð er 4.899,-
24 SM
3.899,-
ÞÚ SPARA
R 1.000,-
Ti
lb
oð
ið
g
ild
ir
til
31
.1
2.
20
07
o
g
að
ei
ns
v
ið
S
m
ár
at
or
g.
F
yr
irv
ar
i v
ar
ða
nd
i p
re
nt
vi
llu
r o
g
vö
ru
fra
m
bo
ð.
SMÁRATORG 3, 200 KÓPAVOGUR. sími 5500 800
089410
CHOU CHOU
MOMMY MAKE ME BETTER
Aumingja litla barnið hefur
það ekki gott. Hugsaðu um
það eins og alvöru barn.
42 sm. Notar 3 C-rafhlöður.
Venjulegt lágvöruverð er
5.999,-
4.999,-
ÞÚSPARA
R 1.000,-
2.399,-
ÞÚ SPARA
R 500,-
063109
EDISON JR. EXPLORER
Lærðu um rafmagn, segulmagn og lögmál eðlisfræðinnar. 43 hlutir og 50
tilraunir með árangri og niðurstöðum. Nákvæmar leiðbeiningar sem sýna
hvernig hægt er að nota tilraunirnar dagsdaglega. Notar 1 D-rafhlöðu.
Venjulegt lágvöruverð er 2.899,-
OPIÐ LENGIALLA DAGAVirka daga
10-19Nema fi mmtudaga 10-21Laugardaga 10-18Sunnudaga
12-18
092978
CARE BEARS GLITTER GLOW-A-LOT
Lýsir frá toppi til táar, með augu,
nef og maga sem glitrar. Margar
tegundir í boði. Venjulegt lágvöruverð
er 2.399,-
1.799,-
ÞÚ SPARA
R 600,-
Auglýsingasími
– Mest lesið