Fréttablaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 18
18 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
VIÐSKIPTI Íslendingar eiga í veru-
legum í fasteignaviðskiptum í
minnst nítján löndum. Þar er Askar
Capital kannski stórtækasta félag-
ið, en það er nú með fé í verkefnum
að heildarverðmæti um 144 millj-
arðar króna. Fjárfestingaverkefni
Askars Capital eru um alla Austur-
Evrópu, Mið-Austurlönd og í
Evrópulöndunum Bretlandi, Belgíu,
Þýskalandi og Frakklandi.
Það eru ekki bara stórir aðilar
sem fjárfesta í fasteignum erlendis.
Þær eru einnig í vaxandi mæli
keyptar til einkanota og útleigu,
fyrst og fremst á Spáni, í Búlgaríu
og Danmörku. En einnig í Banda-
ríkjunum, Mexíkó, Panama og á
Indlandi.
Nokkrar fasteignasölur hér á
landi selja eignir erlendis. Eitt
þeirra er Proxima, en þar er Eiríkur
Hilmarsson markaðsstjóri. Hann
hefur selt um 70 fasteignir í
Búlgaríu á rúmu ári. „Það er mikill
áhugi á eignum erlendis og fjöldinn
sem kaupir sér fasteign fer stækk-
andi. Þetta er ekki bundið við
Búlgaríu. Íslendingar kaupa víða.
Þetta er eins og að kaupa sér sum-
arhús og kannski vilja einhverjir
frekar kaupa sér hús erlendis en
sumarhús á Íslandi,“ segir hann.
Proxima er um þessar mundir að
ganga frá kaupum á lóðum í
Búlgaríu og ætlar að byggja þar
þrjú til fimmhundruð íbúðir á
næstu þremur árum. Eiríkur segir
að þær íbúðir verði jafnt til sölu
fyrir heimamenn sem Íslendinga.
Þá selur Eignaumboðið hús á
Spáni og í Marokkó auk þess að
taka þátt í uppbyggingu fyrir
heimamarkað í Slóvakíu. „Við finn-
um fyrir vaxandi áhuga fólks á að
taka þátt í fasteignaþróunarverk-
efnum,“ segir Aðalheiður Karls-
dóttir, einn af eigendum Eigna-
umboðsins. „Sérstaklega fundum
við kipp eftir að hlutabréfamarkað-
urinn tók dýfu niður á við. Hún
segir að fasteignaverð hafi haldið
sér betur til lengri tíma litið og
hækkunin sé stöðug. Fólk horfi til
þess að hlutabréfamarkaðurinn sé
sveiflukenndari og vildi dreifa
áhættunni.
Aðalheiður segir að horft sé til
þess að íbúð erlendis sé raunhæfur
möguleiki, sé miðað við fjárfest-
ingu í sumarhúsum. Íbúð erlendis
hækki meira í verði og endursölu-
möguleikar séu betri en sumarhús
á Íslandi. Þá fjárfesti sumir í fleiri
íbúðum og skapi sér tekjur með því
að leigja þær út.
Í Flórída finnur Tryggvi Ingólfs-
son fasteignasali fyrir miklum
áhuga Íslendinga á eignum. Sér-
staklega í Orlando þar sem stutt er
í strendurnar. „Markaðurinn er
frosinn í Bandaríkjunum núna.
Salan hefur sums staðar dregist
saman um tuttugu til fjörtíu
prósent,“ segir Tryggvi.
Tryggvi segir að aldrei hafi verið
eins mikið að gera og að flestir
greiði fyrir fasteignina í reiðufé
því búist sé við að dollarinn hækki
eftir næstu forsetakosningar. Hann
telur að gengi dollarans gagnvart
krónunni nú ýti undir áhuga
Íslendinga.
„Fólk flytur gjaldeyri töluvert á
milli landa til að fá ávöxtun á gjald-
eyrinn og freista þess að njóta
gengismunar síðar,“ segir Guðrún
Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og
fasteignasali. Hún aðstoðar við
kaup á lóðum og við byggingafram-
kvæmdir í Tyrklandi, í samstarfi
við tyrkneskan fasteignasala. Hún
segir að það séu einkum Bretar
sem kaupi íbúðir í byggingu í Tyrk-
landi. Fyrir þær sé verið að borga
um sex milljónir króna.
Hún segir að í Tyrklandi við-
gangist enn að fasteignamat sé í
ósamræmi við raunvirði eigna og
skattbyrðin því minni. „Í Tyrklandi
eru nokkur góð ár eftir til að fjár-
festa en þó horfir það til breytinga
þar sem aukin eftirspurn kallar jú
á hækkandi fasteignaverð auk þess
sem Tyrkland hefur sótt um aðild
að Evrópusambandinu. Í dag greiða
íbúðaeigendur sáralítil gjöld af
eignum sínum í Tyrklandi.“
ghs@frettabladid.is
Fjárfest í fasteignum í 19 löndum
Íslendingar eiga í fasteignaviðskiptum í minnst nítján löndum og hafa meðal annars keypt lóðir og byggt hundruð fasteigna í Búlgar-
íu og Tyrklandi. Askar Capital reisir borgarhluta í Indlandi og skýjakljúf í Makaó. Gengi dollarans ýtir undir áhuga á íbúðakaupum í
Bandaríkjunum.
VIÐSKIPTI Askar Capital tekur þátt í
fasteignaþróunarverkefnum úti um
allan heim og er sennilega í hópi
stærstu félaganna á þessu sviði.
„Þetta er allt frá því að vera
lúxusíbúðir í London, höfuðstöðvar
banka í Þýskalandi yfir í það að vera
heilu borgarhlutarnir á Indlandi og
skýjakljúfur í Makaó,“ segir Tryggvi
Þór Herbertsson forstjóri Askars
Capital.
Félagið hefur um 600 milljónir
dollara í eiginfé, eða 2.400 milljónir
dollara að heildarverðmæti, í
fasteignaþróunarverkefnum
erlendis. Tryggvi Þór segir eignirnar
vera úti um allan heim, í Bandaríkj-
unum, Makaó, Hong Kong, Singapúr,
Indlandi, Dubai, bæði í Vestur- og
Austur-Evrópulöndum sem og í
Miðausturlöndunum. Á Indlandi einu
saman er verið að byggja heilt
borgarhverfi með 3.500 einbýlishús-
um, golfvelli, heilsugæslustöð og
öðrum þjónustubyggingum.
Tryggvi Þór segir stílað inn á 25-30
prósenta ávöxtun. Hugmynd að
fasteignaþróunarverkefnum sé kynnt
félaginu, það leiti eftir fjármögnun í
hugmyndina og reki síðan verkefnið
meðan verið er að byggja fasteignina.
„Við ráðleggjum svo fjárfestinum
hvenær hann á að fara út úr verkefn-
inu til að hagnast sem mest,“ segir
Tryggvi Þór.
Askar er í samstarfi við ýmis félög,
til dæmis Landsbankann, Kaupþing,
Glitni, Icebank og Saga Capital. - ghs
Fasteignaþróunarverkefni á vegum Askars Capital um allan heim:
Skýjakljúfur og lúxusíbúðir
TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON
„Við ráðleggjum svo fjárfestinum
hvenær hann á að fara út,“ segir
Tryggvi Þór Herbertsson, forstjóri
Aska Capital.
Fasteignaverð erlendis er misjafnt eftir löndum. Ódýrustu fasteignirnar er
hægt að fá fyrir 4-7 milljónir, fínt raðhús má fá fyrir 15-16 milljónir króna.
Lúxusíbúð í Panama fæst fyrir 18 milljónir króna.
Fasteignina er hægt að leigja út og fá af því leigutekjur. Hús eða íbúð
erlendis er því að vissu leyti talin betri fjárfestingakostur því að fólk leigi
yfirleitt ekki út sumarbústaðina sína auk þess sem endursölumöguleikar
sumarbústaða geta verið óvissir hér á landi.
LEIGIR EKKI ÚT SUMARBÚSTAÐINA
Einstaklingar sem kaupa íbúð í byggingu þurfa ekki að fjármagna nema
hluta af kaupverðinu sjálfir, eða tíu til þrjátíu prósent. Meðan íbúðin er í
byggingu hækkar hún í verði og kemur verðhækkunin sem hagnaður í hlut
kaupandans.
Fasteignakaupin eiga sér oftast stað í evrum nema náttúrulega í Banda-
ríkjunum. Þar er greitt í dollurum.
Fjárfestar, sem vilja taka bankalán, taka þau oftast í íslenskum bönkum.
Það er þó ekki algilt og misjafnt eftir löndum hvað hentar.
OFTAST Í EVRUM
íslenska félagið Askar Capital
er sennilega einna stórtækast í
fasteignauppbyggingu erlendis.
Sem dæmi um þróunarverkefni
má nefna einn skýjakljúf af átta í
byggingu í Makaó. Í skýjakljúfnum
verður spilavíti, hótel og verslunar-
miðstöð. Askar tekur einnig þátt
í uppbyggingu borgarhluta í Navi
Mumbai, eða nýju Bombay, á
Indlandi. Um lokað hverfi er að
ræða með 3.500 einbýlishúsum,
golfvelli, heilsugæslustöð og slíku.
Eignaumboðið selur Íslend-
ingum fasteignir á ströndinni á
Spáni og í Marokkó. Í Bratislava
í Slóvakíu er eingöngu stílað inn
á heimamarkað. Smáir og stórir
fjárfestar taka þátt í þessari upp-
byggingu.
SKÝJAKLJÚFUR OG
BORGARHLUTI
Fasteignaverð erlendis er oft á bilinu 3,5 milljónir króna upp í 12 milljónir á
íbúð eða hús og jafnvel upp í 18 milljónir fyrir lúxusíbúð í Panama.
Fasteignaviðskiptin fara yfirleitt fram í evrum eða öðrum evrópskum gjald-
eyri og fjármögnunin gjarnan í gegnum íslenska banka. Hagnaðurinn getur
orðið verulegur.
Bandarískur fasteignamarkaður er frosinn um þessar mundir og verðið því
óvenjulágt, ekki síst vegna gengisins.
3-12 MILLJÓNIR FYRIR ÍBÚÐ
VILL DREIFA ÁHÆTTUNNI Hlutabréfa-
markaðurinn sveiflast meira. Fólk er
farið að horfa á þetta og vill dreifa
áhættunni,“ segir Aðalheiður Karls-
dóttir fasteignasali.
NOKKUÐ GÓÐ ÁR EFTIR „Í Tyrklandi
eru nokkur góð ár eftir til að fjár-
festa,“ segir Guðrún Hulda Ólafs-
dóttir fasteignasali.