Fréttablaðið - 22.11.2007, Page 20

Fréttablaðið - 22.11.2007, Page 20
20 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR FRAKKLAND, AP Skemmdarverk töfðu enn frekar fyrir samgöngum í Frakklandi í gær, þegar samningaviðræður voru loks að hefjast eftir átta daga verkfall járnbrautar starfsmanna og strætisvagnastjóra. Í skjóli nætur voru rafmagnsleiðslur brenndar og skemmdir unnar á merkjakerfi frönsku járnbrautanna. Yfirstjórn frönsku járnbrautanna forðaðist að saka verkfallsfólk um verknaðinn, þótt grunur margra hefði strax beinst að þeim. Verkalýðsfélögin, sem standa að verkföll- unum, báru sömuleiðis strax af sér allar sakir. Verkföllin hófust 14. nóvember síðastliðinn. Þjóðlífið hefur verið hálflamað síðan, og ekki bætti úr skák þegar kennarar og póstmenn fóru einnig í dagsverkfall á þriðjudaginn. Í gær bættust svo skemmdar verkin ofan á allt saman. Markmið verkfallsmanna er að mótmæla áformum ríkisstjórnarinn- ar um að fella niður sérstök eftirlaunaréttindi, sem starfsmenn hins opinbera njóta umfram annað launafólk í landinu. Nicolas Sarkozy forseti, sem sigraði í kosningum í maí, hefur í embætti sínu lagt mikla áherslu á að draga úr umsvifum og útgjöldum ríkisins. Hann segist staðráðinn í að láta ekki undan kröfum verkfalls- manna, heldur halda sínu striki. Verkalýðsfélögin eru hins vegar ekki síður ákveðin í að ná fram kröf- um sínum. Spurningin er hvor hefur meira úthald, verkfallsmenn eða forsetinn. Viðræður milli verkalýðsfélaga og vinnuveitenda hófust fyrst í gær, en verkalýðsfélög hafa ekkert gefið uppi um það hve lengi aðgerðirnar eiga að standa. Verkfallsaðgerðir í Frakklandi hafa áður orðið til þess að stjórnvöld hafa hætt við sparnaðaráform og umbætur í ríkisgeiranum. Skemmst er að minnast þess þegar Dominique de Villepin, þáverandi forsætisráðherra, dró til baka áform sín um breytingar á atvinnulöggjöfinni á síðasta ári eftir harðar mótmælaað- gerðir námsmanna og verkalýðsfélaga. - gb Á MÓTMÆLAFUNDI Í PARÍS Nicolas Sarkozy forseti hefur lagt mikla áherslu á að draga úr umfangi og útgjöldum ríkisins, en óvíst er hve lengi hann heldur út gegn verkfallsaðgerðum sem lama allt þjóðlífið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Efiðasta þol- raun Sarkozys Verkalýðshreyfingin í Frakklandi á í stríði við Nicol- as Sarkozy forseta, sem enn virðist staðráðinn í að hafa meira úthald í þeirri rimmu. TROÐNINGUR Á LESTARSTÖÐ Verkfallið hefur bitnað á almenningssamgöngum. Þær liggja þó ekki alveg niðri, því hluti starfsmanna hefur mætt til vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MEÐ SLEGGJUNA Á LOFTI Hann var vígalegur þessi lestarstarfsmaður sem tók þátt í mótmælagöngu í Nice á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Hausthappdrætti Blindrafélagsins Útdráttur 16. nóvember 2007 Vinningaskrá Skoda Octavia Combi 4x4 1.9 TDI frá Heklu hf. Verðmæti kr. 2.990.000 86220 Skoda Octavia Sedan 1.9 TDI, frá Heklu hf. Verðmæti kr. 2.610.000 12140 Skoda Fabia 1.4 l., frá Heklu hf. Verðmæti kr. 1.690.000 17058 Ferðavinningur með Heimsferðum. Verðmæti kr. 350.000 8718 27145 47399 48750 62381 66001 66091 90520 111082 125526 Ferðavinningur með Heimsferðum. Verðmæti kr. 200.000 1147 19417 30729 40094 54856 73001 91164 103315 110302 120353 2742 19517 30959 40342 57398 73024 92270 104468 111855 121596 3332 21311 33374 41439 57407 76245 94478 105331 111955 123558 6641 21728 34887 42046 57753 77670 97841 106920 112569 124474 7837 22530 35357 42904 61326 78641 98710 107046 114673 126092 12706 23976 36364 44808 64632 81353 98768 107724 115991 126287 12902 24529 36408 50630 66866 83142 98938 108996 117155 128367 15030 24954 37168 51173 67172 84344 101600 109151 117489 129073 15884 27130 38156 51313 72636 87114 101853 109629 119232 129172 18956 27732 39188 53559 72972 90913 102919 109956 120203 129778 Kvöldverður á veitingastaðnum Siggi Hall á Óðinsvéum. Verðmæti kr 20.000 491 14099 31183 43000 48682 62993 78227 95129 115610 124997 2916 14483 33468 43128 49470 63723 79311 96645 116368 127325 3938 15063 34570 44214 51637 64653 82172 97638 117588 127616 8237 16388 35612 45136 53087 64708 82355 97837 117745 127645 9190 16416 36141 45175 55387 66308 82589 103249 119029 128506 10300 17009 36184 45212 57258 68270 84107 105070 120108 128541 10921 23950 37199 45296 57666 71890 84621 106738 121203 129698 12585 24703 39427 46584 58249 75231 90917 110477 122026 129835 13673 24826 41784 47804 61146 77490 94143 115265 124368 129984 Alls 203 skattfrjálsir vinningar að verðmæti kr. 32.590.000 Vinninga ber að vitja innan árs – Upplýsingasími 525 0000 – Vinningaskrá birt í textavarpi sjónvarpsins á síðu 290 og á heimasíðu Blindrafélagsins www.blind.is Birt án ábyrgðar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.