Fréttablaðið - 22.11.2007, Síða 26
26 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
36 17
Úrskurðir alls
Ekki brot
Svona erum við
> Siðanefnd blaðamannafélags Ísland
fréttir og fróðleikur
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is
24 15 20 1337 17
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Gengi Bandaríkjadals gagnvart öðrum
gjaldmiðlum, þar á meðal íslensku krónunni,
hefur farið lækkandi að undanförnu. Gengi
hans hefur aldrei verið eins lágt gagnvart
evrunni. Á fundi OPEC, samtaka olíu-
framleiðsluríkja, í Sádi-Arabíu á dögunum
kallaði Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti
dollarann „verðlausan pappír“, en þar sem
olíuviðskipti í heiminum fara að mestu fram
í dollurum kemur rýrnandi verðgildi hans illa
við olíuframleiðsluríkin. Það kemur reyndar
illa við öll þau fjölmörgu ríki heims, sem hafa
megnið af gjaldeyrisforða sínum í dollurum.
Hvað veldur þessum veikleika dollar-
ans?
Gengi dollarans hefur reyndar verið að falla
allt frá því snemma á árinu 2002. Síðan þá
hefur það fallið um fjórðung gagnvart öðrum
helstu gjaldmiðlum heims. Nú er vandinn
sá að gengið hefur fallið hraðar frá því síðla
sumars í ár.
Kreppan á húsnæðislánamarkaði í Banda-
ríkjunum, sem skall á í ágúst, hrelldi erlenda
fjárfesta og ýtti þeim til að færa fjárfestingar
frá Bandaríkjamarkaði.
Því dró úr eftirspurn eftir
dollaranum og gengið féll.
Stýrivaxtahækkun banda-
ríska seðlabankans ýtti enn
undir flótta erlendra fjárfesta
frá dollaranum, þar sem þeir
færðu fjárfestingar sínar til landa
með hærra vaxtastig.
Hver er hættan ef þetta heldur áfram?
Svo lengi sem gengisfallið er hægt og sígandi
telja hagfræðingar það ekki mikið áhyggju-
efni, þar sem það ýtir undir útflutning frá
Bandaríkjunum og dregur úr viðskiptahallan-
um vestra, sem hefur náð methæðum á síð-
ustu árum. En falli gengið meira en góðu hófi
gegnir gæti það ýtt stjórnvöldum í löndum
með stóra gjaldeyrisforða í dollurum til að
skipta úr dollaranum í aðra og stöðugri
„harða“ gjaldmiðla svo sem evruna.
Nefna má að Kína á dollaraforða
upp á 1.430 milljarða. Slíkur
stórflótti frá dollaranum
gæti valdið hruni á banda-
ríska verðbréfamarkaðinum
og keyrt vaxtastig þar upp,
þegar eftirspurn eftir banda-
rískum skuldabréfum hrynur. Slík atburðarás
gæti valdið efnahagskreppu vestra, með
ófyrirséðum afleiðingum fyrir efnahagskerfi
heimsins.
FBL-GREINING: FALL BANDARÍKJADALS
Fjarar undan heimsgjaldmiðlinum
Fjöldi þess fólks sem talið
er smitað af HIV-veirunni
í heiminum féll úr nærri
40 milljónum í fyrra í 33,2
milljónir á þessu ári, að
því er fulltrúar Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar,
WHO, greina frá.
Þetta hljómar eins og mikill árangur
hafi náðst í baráttunni gegn frekari
útbreiðslu sjúkdómsins, en þegar
nánar er að gáð eru framfarirnar
nær einvörðungu á pappírnum.
Fyrri tölur ýktar
Fyrra mat á fjölda smitaðra var að
mestu ýkt frá þeim tölum sem hægt
var að fá staðfestar. Hinar nýju
tölur Eyðnideildar WHO byggjast á
nýrri aðferðafræði. Þær sýna þó að
hægt hefur á útbreiðslu sjúk-
dómsins.
„Í fyrsta sinn sjáum við fækkun
eyðnidauðsfalla í heiminum,“ hefur
AP eftir Kevin De Cock, yfirmanni
Eyðnideildar WHO.
Árleg skýrsla WHO og eyðni-
stofnunar SÞ, UNAIDS, var birt í
gær, miðvikudag, í kjölfar þess að
hafa stefnt saman sérfræðingum
frá öllum heimshornum á ráðstefnu
í Genf til að leggja mat á þær
aðferðir sem beitt er til að finna út
úr því hve margir eru smitaðir.
Stærsti hluti samdráttarins í
heildarfjölda smitaðra er vegna
endurskoðaðra talna frá Indlandi.
Fyrr á þessu ári var áætlaður fjöldi
smitaðra Indverja lækkaður um
helming, úr um sex milljónum í um
þrjár. Afganginn af samdrættinum
er að rekja til nýrra talna frá
ýmsum löndum Afríku sunnan
Sahara.
Fulltrúar SÞ gátu ekki útilokað
að áætlaður fjöldi HIV-smitaðra
yrði lækkaður enn frekar. Í nýju
skýrslunni segja þeir að á þessu ári
hafi um tvær og hálf milljón manna
smitast af HIV. Fyrir fáeinum árum
var sjá fjöldi áætlaður um fimm
milljónir.
Gallaðar viðmiðunarupplýsingar
Fyrri áætlunartölur voru að miklu
leyti byggðar á upplýsingum um
fjölda smitaðra barnshafandi
kvenna og frá fæðingardeildum
sjúkrahúsa, svo og á hlutfalli vissra
áhættuhópa svo sem fíkniefna-
neytenda af heildaríbúafjölda í
hverju landi. Nú segja fulltrúar
WHO að þessar tölur hafi verið
gallaðar og nú séu fleiri viðmiðunar-
tölur teknar inn í útreikningana,
svo sem úr landskönnunum á sam-
setningu heimila. Fulltrúar WHO
benda jafnframt á að þótt heildar-
fjöldi smitaðra í heiminum sé að
dragast saman sé gríðarlegur
munur á milli heimshluta. Löndin
sunnan Sahara eru eftir sem áður
það svæði þar sem eyðnifaraldur-
inn veldur mestu tjóni. Eyðni er
þar algengasta dánarorsökin, bæði
meðal karla, kvenna og barna.
Annars staðar í heiminum takmark-
ast smit að mestu við samkyn-
hneigða karlmenn, sprautufíkla og
fólk sem stundar vændi.
Hámarki náð fyrir áratug
Að sögn fulltrúa SÞ-stofnananna er
framfara þó farið að gæta. Heims-
útbreiðsla sjúkdómsins hafi náð
hámarki seint á tíunda áratugnum.
„Það eru nokkur atriði í nýju tölun-
um sem gefa ástæðu til bjartsýni,“
segir De Cock. Hinar fallandi tölur
yfir heildarfjölda smitaðra og
fjölda nýsmitaðra bæru því vitni að
sumar af aðgerðum SÞ í baráttunni
við sjúkdóminn séu að skila
árangri.
Þessu eru ekki allir sammála.
Sumir gagnrýnendur hafa sakað
SÞ-stofnanirnar um að blása upp
tölur sínar um fjölda smitaðra og
að hinar endurskoðuðu tölur hefðu
löngu átt að vera komnar fram.
„Þeir voru loks staðnir að verki
með buxurnar á hælunum,“ segir
Jim Chin, prófessor í faraldurs-
fræði við Kaliforníuháskóla í
Berkeley. Chin er fyrrverandi emb-
ættismaður hjá WHO og höfundur
bókarinnar „Alnæmisfaraldurinn:
Árekstur faraldursfræðinnar og
pólitískrar rétthugsunar“. Chin
segir að erfitt sé að meta hvort
hinar fallandi tölur yfir smitaða
væru vitnisburður um að meðferð
við sjúkdómnum og forvarnir væru
að skila árangri, eða hvort lækkun-
ina væri eingöngu að rekja til eðli-
legrar leiðréttingar á áður
uppblásnum tölum.
Spurning um fjárveitingar
Diane Halperin, alnæmis-farald-
ursfræðingur við Harvard School
of Public Health, segir að jafnvel
hinar endurskoðuðu tölur séu senni-
lega „í hærri kantinum“. Hún tók
þátt í sérfræðingaráðstefnu WHO/
UNAIDS í Genf í síðustu viku þar
sem farið var yfir matsaðferðirnar
og segir að nýja matið sé að færast
mun nær sannanlega réttum
tölum.
En þar sem háar tölur í lýðheilsu-
málum þýða meiri fjárveitingar
kunna fulltrúar SÞ-stofnananna að
vera hikandi við að viðurkenna að
vandinn hafi verið ofmetinn, þar
sem það myndi þýða að minna fé
yrði varið til starfa þeirra.
Aðrir sérfræðingar segja að jafn-
vel með hinu lækkaða mati sé
alnæmisvandinn gríðarlegur og
hann kalli á mun meiri aðgerðir til
að unnt verði að ráða niðurlögum
hans. „Við erum enn að bregðast í
viðbrögðum okkar við vandanum,“
segir Paul Zeitz, framkvæmda-
stjóri Global AIDS Alliance, óháð-
um hjálparsamtökum sem helga sig
baráttunni gegn alnæmisvandanum.
„Heildarútbreiðsla HIV-smits kann
að hafa náð jafnvægi, en við horfum
upp á milljónir nýrra smit tilfella og
það er ekki kominn tími til að slá
slöku við í þessari baráttu.“
HIV-smituðum fer fækkandi
HLAUPIÐ GEGN HIV Starfsmenn Rauða krossins hlaupa í þágu baráttunnar gegn HIV í Beirút-maraþoninu í Líbanon á sunnudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1985-1989 1990-1994 1995-1999 2000-2004
Hlýnandi loftslag hefur haft þau
áhrif í öðrum löndum Evrópu að
nýjum köngu-
lóategundum
snarfjölgar þar.
Erling Ólafsson er
skordýrafræðingur.
Hversu raunveru-
legar líkur eru á
að þessi þróun
verði hér á landi?
Við þurfum að
bíða eftir mun
hlýnandi loftslagi
og það dálítið
mikið lengur. Við erum að tala um
að þetta sé að gerast suður við
Miðjarðarhaf. Það er heldur ekki
mikið þótt tegundum fjölgi um tvær
til fjórar á ári.
Hvar gerist þetta helst?
Auðvitað gerist þetta fyrst þar sem
hlýjast er. Hættulegu tegundir eru
langflestar hitabeltistegundir af
suðlægari slóðum. Hins vegar erum
við að fá nýjar tegundir en þær eru
ekki hættulegar.
Hversu hratt nema þær land?
Þegar kvikindin ná að berast og
aðstæðurnar henta þá geta þær
verið ansi fljótar að hreiðra um sig.
Innan tíu ára geta þær verið orðnar
virkilega áberandi.
ERLING ÓLAFS-
SON Skordýra-
fræðingur.
SPURT & SVARAÐ
KÖNGULÓATEGUNDUM
FJÖLGAR Í EVRÓPU
Áberandi
innan tíu ára