Fréttablaðið - 22.11.2007, Page 39
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Sonja Bent er ekki í nokkrum vafa um að kjóll
sem líkist fallhlíf sé uppáhaldsflíkin hennar.
Hana dreymdi um kjólinn löngu áður en hún
eignaðist hann og síðast var hann á sveimi í
brúðkaupi Ingibjargar Pálmadóttur og Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar.
Sonja Bent fatahönnuður keypti kjólinn í +365 Guerrilla
store sem hún rak ásamt þremur öðrum í Slippnum við
Reykjavíkurhöfn í fyrra. Fyrirtækið Comme Des
Garçons rekur slíkar verslanir um allan heim en þær
eru eingöngu opnar í ár á hverjum stað.
„Þegar ég byrjaði í Listaháskólanum gerði ég verk-
efni og hélt fyrirlestur um hönnuðinn Junya Watanabe
sem hannar meðal annars fyrir Comme Des Garçons. Í
tengslum við það rakst ég á þennan kjól eftir hann sem
er úr svokallaðri parachutes-línu. Hann minnir á fall-
hlíf, með böndum og tilheyrandi. Hann er hvítur,
alsettur bleikum blómum og mjög sætur. Ég féll alger-
lega fyrir honum og lét mig dreyma um að eignast
hann en óraði ekki fyrir því að ég myndi fara að reka
verslun í samstarfi við fyrirtækið,“ segir Sonja. Þegar
hún fór svo að panta inn fyrir búðina óskaði hún eftir
kjólnum en hann kom ekki með fyrstu sendingunni.
„Ég hélt þá að hann væri búinn en svo birtist hann í
næstu sendingu. Ég varð ótrúlega hamingjusöm og
eignaði mér hann um leið,“ segir Sonja.
Aðspurð segist Sonja eingöngu nota kjólinn við mjög
hátíðleg tilefni og fær hann stundum að prýða vegg í
svefnherberginu til skrauts. „Vinkona mín fékk hann
svo lánaðan um síðustu helgi til að fara í brúðkaupið
hjá Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu Pálma og má því segja
að hann sé ennþá volgur,“ segir hún og hlær.
Sonja útskrifaðist sem fatahönnuður frá Lista-
háskólanum í vor og er nýjasti meðlimurinn í Kirsu-
berjatrénu. Þar selur hún meðal annars prjónapeysur
sem byggja á japönskum origami-formum. Sonja hefur
lengi leikið sér með þau form og prjónar úr þeim flókin
munstur. vera@frettabladid.is
Eignaðist draumakjólinn
Sonja gerði verkefni um
hönnuð kjólsins í Listaháskól-
anum en óraði ekki fyrir því
að hún myndi eignast kjól
eftir hann.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STOFUSTÁSS
Margir fallegir munir
eru til sem hægt er
að fegra heimilið
með.
HEIMILI 5
HRINGRÁS TÍSKUNNAR
Í gleraugnatískunni er augljóst
afturhvarf til níunda
áratugarins.
TÍSKA 2