Fréttablaðið - 22.11.2007, Síða 46

Fréttablaðið - 22.11.2007, Síða 46
 22. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● hafnarfjörður Bæjarbíó tók til starfa árið 1945 og hefur frá fyrstu tíð staðið fyrir reglulegum kvikmyndasýningum, þótt hlé hafi nokkrum sinnum verið gert á starfseminni. Húsið er rekið af Kvikmyndasafni Ís- lands, sem hefur undanfarið sýnt þar hvert stórvirkið á fætur öðru. Næst á dagskrá er kvikmynd frá árinu 1971 eftir meistara Ing- mar Bergman, Snertingin eða Be- röringen eins og hún heitir á frum- málinu. Þar segir af sænsku eiginkonunni og móðurinni Karenu sem tekur upp ástarsamband við nágranna sinn, David, en hann er gyðing- ur sem komst lífs af úr útrýming- arbúðum nasista. Sambandið veit- ir henni þó ekki hamingjuna sem hún vonaðist eftir og loks verður hún að ákveða hvort hún vill verja ævinni með David eða snúa aftur heim til fjölskyldu sinnar. Með helstu hlutverk fara Elliott Gould, Bibi Anderson og stórleik- arinn Max von Sydow sem lék í mörgum af eftirminnilegustu myndum Bergmans, þar á meðal í Sjöunda innsiglinu, Det Sjunde Inseglet. Myndin verður sýnd í Bæjar- bíói laugardaginn 24. nóvember klukkan 16.00. Miðaverð er 500 krónur. Allar nánari upplýsingar á www.kvikmyndasafn.is Í bíó með Berg- man um helgina Kvikmyndasýningar eru á þriðjudögum klukkan 20 og á laugardögum klukkan 16. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Systir Agnes kveikir á kerti í kapellunni í Karmelklaustrinu þar sem bænahald fer meðal annars fram. Nunnurnar verja miklum tíma í bænir og handavinnu þess á milli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Jólaundirbúningur er nú víða hafinn og er Karmelklaustrið í Hafnarfirði þar engin undan- tekning, en þar verja nunn- urnar nú löngum stundum í undirbúning fyrir Jólaþorpið í Hafnarfirði sem verður opnað á laugardag. „Hafnarfjarðarbær hafði sam- band og bað okkur um að vera með fyrsta árið þegar Jólaþorpið fór af stað. Fólk tók svo vel á móti okkur að þetta er orðið að föstum lið. Við höfum tekið þátt frá byrjun,“ segir Systir Agnes í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði, þar sem nunnurn- ar búa sig nú undir þátttöku í Jóla- þorpinu í ár. Karmelsystur verða venju samkvæmt með handgerða muni í Jólaþorpinu, svo sem mynd- skreytt kerti og jólaskreytingar, sem hafa notið mikilla vinsælda um árin. „Ekkert af þessu er fram- leitt,“ tekur Systir Agnes skýrt fram. „Allt er handgert og sumt búið til úr íslenskri náttúru, svo sem hrauni, mosa og trjágreinum.“ Að sögn Systur Agnesar fer mikil vinna í handverkið sem allar nunn- urnar inna af hendi ásamt bæna- haldi, sem er daglegur hluti af klausturlífinu eins og algengt er og veitir íbúum þess mikla gleði. Þess utan sinna nunnurnar meðal annars ýmsum húsverk- um og garðvinnu, en umhverfis klaustrið er fallegur garður þar sem þær rækta grænmeti, ávexti, eins og jarðarber og rifsber, og blóm. Blómin nota nunnurnar meðal annars til að skreyta kapell- una en annars fara þær ekki mikið út og þá sjaldan meðal fólks. Með hliðsjón af því vaknar sú spurning hvort ekki skapist mikil eftirvænting á meðal Karmel- systranna vegna þátttökunnar í Jólaþorpinu þar sem samneytið við umheiminn verður sjaldan meira en einmitt þá. „Jú,“ svarar Systir Agnes yfirveguðum rómi. „En við höldum þó alltaf okkar ró. Fylgj- um okkar áætlum og gerum allt í bænaanda.“ - rve Allt gert í bænaanda Meðal þess sem nunnurnar verða með á boðstólum eru þessi skrautlegu kerti. Jóladagskrá Bókasafns Hafnar- fjarðar, Kynstrin öll, er hafin og dagskráin fjölbreytt að vanda. Kennsla í borðsiðum, bóka- upplestur og ilmandi kaffi eru meðal þess sem er í boði. „Hér er yfirleitt skemmtileg og notaleg baðstofustemning. Ljósin dempuð niður og kveikt á kertum úti í glugga. Bókahillum ýtt til hliðar til að veita borðum og stól- um pláss, sem fólk situr við úti um allan sal til að hlýða á bókaupp- lestur. Hér verður síðan rjúkandi kaffi sem Súfistinn selur.“ Þetta segir Anna Sigríður Einars dóttir, forstöðumaður Bóka- safns Hafnarfjarðar, um jóladag- skrá safnsins, Kynstrin öll, sem fer nú fram í fimmta sinn. Dag- skráin hefur verið vel sótt síðustu ár þótt Anna Sigríður viðurkenni að aðeins hafi dregið úr henni í fyrra, hverjar svo sem ástæðurn- ar kunna að vera. Hún segist þó reikna með mikilli mætingu í ár. „Þrjú kvenskáld lásu úr verk- um sínum í þarsíðustu viku og Ragnheiður Gröndal söng. Hún sagðist ekki hafa sungið á jafn vel sóttri dagskrá og hjá okkur. Það er því viðbúið að það verði fullt hjá okkur í kvöld og eins í næstu viku. Ég held bara að Kynstrin öll séu að festa sig í sessi.“ Óhætt er að segja að dagskráin í kvöld verði fjölbreytt en þá mun Edda Andrésdóttir lesa úr bókinn Í öðru landi – saga úr lífinu, Yrsa Sigurðardóttir úr Ösku og Þráinn Bertelsson úr Englum dauðans. Þá verður gert hlé en eftir það les Vig- dís Grímsdóttir úr Sögunni af Bibí Ólafsdóttur og Lóa Pind Aldísar- dóttir úr Sautjándanum. Vikuna á eftir mun Bergþór Pálsson flytja erindi um veislur og borðsiði í til- efni af útgáfu nýrrar bókar sinnar, Vinamót: veislur og borðsiðir. „Svo má ekki gleyma sýn- ingu í barnadeildinni sem kallast Börn og bókalestur,“ segir Anna Sigríður. „Hún er unnin í sam- starfi við kennara og nemendur í Lækjarskóla sem hafa búið til skúlptúra af fólki að lesa. Sýn- ingin er hluti af dagskránni, sem sýnir að Kynstrin öll stendur fyrir allt mögulegt. Hér ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.“ Í því samhengi bendir Anna Sig- ríður á að safninu hafi einmitt bor- ist kassi af pólskum bókum. „Við höfum skammast okkur þegar Pólverjar kíkja hingað. Þeir nota mikið netið og langar til að lesa en hér hefur verið lítið úrval af bókum á pólsku. Við pöntuðum því bækur á pólsku og þær eru komnar í hús.“ Nánar á www.hafn- arfjordur.bokasafn.is - rve Ilmandi kaffi og pólskar bækur Anna Sigríður Einarsdóttir, Ingibjörg Óskarsdóttir, deildarstjóri barnadeildar á safninu, og Harpa Rut Harðardóttir og Linda Rós Arnardóttir sem halda utan um dagskrána. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ljóst er að mikill tími hefur farið í handavinnuna. Hafnarborg, menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar, verður með ýmislegt á dagskránni á kom- andi mánuðum. Meðal annars spennandi tónlistarviðburði. Tríó Reykjavíkur verður með tónleika í húsinu sunnudaginn 2. desember undir yfirskriftinni Klassísk við kertaljós, þar sem verk eftir Brahms, Rakhmanínov og Sjostakovitsj eru meðal ann- ars á dagskránni. Þess má geta að Tríó Reykjavíkur er að hefja sitt átjánda starfsár í samvinnu við Hafnarborg. Antonía Hevesi píanóleikari hefur staðið fyrir hádegis tónleikum fyrsta fimmtudag hvers mánað- ar síðan í ágúst, þar sem hún velur þá listamenn sem koma fram. Ing- veldur Ýr Jónsdóttir messó sópran verður gestur Antoníu fimmtu- daginn 6. desember klukkan 12 á tónleikum sem bera yfirskriftina Sópran úr skápnum. Allar nánari upplýsingar um viðburðina, listamennina og annað sem er á dagskrá Hafnarborgar er að finna á heimasíðunni www. hafnarborg.is Klassískir tónar Það er margt fram undan í Hafnarborg í Hafnarfirði, þar á meðal ýmsir tónlistar- viðburðir.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.