Fréttablaðið - 22.11.2007, Page 84

Fréttablaðið - 22.11.2007, Page 84
56 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is Verðlaunahátíðin American Music Awards fór fram í Los Angeles síðastliðinn sunnu- dag. Tónlistarstjörnurnar sem glitruðu á rauða dreglinum voru þó frekar hefð- bundnar í klæðavali í þetta skiptið. Þessar stóðu þó upp úr. Litlaust á rauða dreglinum BEYONCÉ KNOWLES RIHANNA >BLÁTT BANN „Ef ég eignast dótt- ur einhvern dag- inn sem myndi langa til að verða fyrirsæta, myndi ég aldrei leyfa henni það!“ Victoria‘s Secret-engillinn Adriana Lima vill ekki eiga dóttur sem fetar í fótspor hennar eftir sýningarpallana. Bandaríski leikarinn Dennis Quaid berst nú fyrir lífi tveggja vikna gamalla barna sinna. Tvíburarnir Thomas Boone og Zoe Grace fengu hættulega stóran skammt af blóðþynningarlyfinu Heparin á Cedars-Sinai sjúkrahús- inu í Los Angeles. Börnunum blæddi nánast út en þau fengu þúsundfaldan þann skammt sem vaninn er að gefa ungabörnum. Þessi skelfilegu mistök áttu sér stað þannig veg að starfsmaður spítalans hafði sett lyfið á rangan geymslustað svo að hjúkrunar- fræðingur greip í flýti vitlausan lyfjaskammt. Tvíburarnir nýfæddu voru ekki einu sjúkling- arnir sem fengu of stóran skammt af lyfinu en þykja í mestri hættu vegna ungs aldurs þeirra. Yfirmaður sjúkrahússins hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann segir enga afsökun fyrir slíkum harmleik. Um sé að ræða mannleg mistök sem hefði auðveldlega mátt forðast hefði starfsfólk fylgt ströngum reglum spítalans. Dennis Quaid og kona hans, Kimberly Buffington, eignuðust tvíburana í gegnum staðgöngu- móður hinn 8. nóvember. Quaid á einnig fimmtán ára gamlan son með leikkonunni Meg Ryan. Læknamistök ógna lífi barna Quaids DENNIS QUAID OG KONA HANS Nýfædd- ir tvíburar leikarans berjast nú fyrir lífi sínu eftir að læknar gáfu þeim of stóran lyfjaskammt. Leikarinn og fyrrverandi ruðn- ingshetjan O. J. Simpson hefur beðið kommúnistaleiðtogann Fidel Castro að leyfa sér að flytja til Kúbu og komast þannig hjá fang- elsisdóm í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í tímaritinu The National Enquirer. Simpson var grunaður um morð á fyrrverandi eiginkonu sinni og vini hennar árið 1994, en sem frægt er sýknaður af ákærum. Nú á hann yfir höfði sér réttarhöld vegna vopnaðs ráns og mannráns í september. Hann segist saklaus af þessum ákærum, en þrír af fimm glæpafélögum hans hafa játað á sig sök og vitnað gegn honum. Simpson gæti því séð fram á ára- tuga fangelsisvist. Kunnugir segja Simpson eyða heilu nóttunum í að skipuleggja flótta sinn og lítist best á komm- únistaríkið Kúbu sem griðastað. Kúba og Bandaríkin hafa ekki skrifað undir milliríkjasáttmála um framsal fanga. „Þeir myndu aldrei ná mér þaðan og Castro myndi koma fram við mig eins og kóng,“ er haft eftir Simpson. Hann hafi því skrifað til komm- únistaleiðtogans og bent honum á að þetta væri fyrirtaks tækifæri til að gera gys að bandarískum stjórnvöldum, nokkuð sem Simp- son er viss um að Castro hefði gaman af. O.J. Simpson vill flýja til Kúbu O.J. SIMPSON Á réttarhöld yfir höfði sér og vill forðast fangelsisvist af gömlum vana. Rauði dregillinn fyrir utan Nokia-leikhús- ið í Los Angeles vann litagleðikeppnina á American Music Awards. Svartir kjólar voru afar áberandi, eins og Alicia Keys, Rihanna og Fergie færa sönnur á. Kjóll Rihönnu vakti þó mikla athygli, enda ansi efnislítill að framan. Beyoncé Knowles klæddist gylltum kjól sem talið er að komi úr House of Dereon-línunni, sem móðir hennar hannar. Hún leit út fyrir að hafa verið saumuð inn í kjólinn, sem ýkti allar línur sem söngkonan er svo stolt af. Idol-stjarnan Carrie Underwood var passlega sakleysisleg í hvítum blúndu- kjól með skemmtilegu hálsmáli. Leikkonan Christina Applegate, sem afhenti ein verð- launanna á hátíðinni, bauð hins vegar upp á velkomna tilbreytingu frá hlutlausu litunum í gullfallegum, fagurbláum kjól. LITLI SVARTI KJÓLLINN SÍVINSÆLL CARRIE UNDERWOOD Nýjasta smáskífulag Brynjars Más Valdimarssonar, eða BMV, er komið inn á heimslistann The World Chart Show sem er spilaður á fleiri hundr- uð útvarpsstöðum um heim allan. Lagið heitir Forget About Me og er merkt á listanum sem lag líklegt til vinsælda ásamt því nýj- asta frá söngkonunni Avril Lav- igne, Hot. „Bara að komast þarna er alveg geðveikt. Það er greini- legt að menn eru að finna aðeins fyrir „singlinum“,“ segir Brynjar. „Að vera stillt upp við hliðina á Avril Lavigne er mjög sérstakt og ef maður kíkir yfir listann þá er enginn óþekkt- ur þar. Þetta eru allt stórir lista- menn úti í heimi. Það er mjög skrít- ið að vera þarna en ég er mjög ánægður með þetta,“ segir hann. „Ég þorði aldrei að búast við að þetta gæti gerst svona hratt. Þetta sýnir bara hvað heimurinn er lítill að maður sé að gera þetta frá Íslandi.“ Áður hafði Forget About Me komist í tíunda sæti á vin- sældalista í Indónes- íu auk þess sem lagið hefur hljómað ótt og títt í Belgíu, Svíþjóð, Makedóníu og vitaskuld hér á landi. Brynjar hefur ekkert fylgt laginu eftir enda hefur hann verið önnum kafinn við upptökur á sinni nýjustu plötu. Hann ætlar sér að vanda til verks við plötuna þrátt fyrir þrýsting um að gefa hana út. „Maður er að reyna að spýta í lófana en að sama skapi verður þetta að ganga sinn veg. Um mitt næsta ár verður allt tilbúið,“ segir hann. - fb Brynjar við hlið Avril Lavigne BMV Brynjar Már Valdimarsson er að gera góða hluti með sitt nýjasta lag. N O R D IC PH O TO S/G ETTY AVRIL LAVIGNE Nýjasta lag Avril Lavigne, Hot, þykir álíka flott og Forget About Me. CHRISTINA APPLEGATE ALICIA KEYS A u g lýsan d i: Ö ES
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.