Fréttablaðið - 22.11.2007, Page 90
62 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
10
12
7
7
12
10
12
12
16
12
14
WEDDING DAZE kl. 6 - 8 - 10
ROGUE ASSASSIN kl. 8 - 10
10
16
12
16
14
12
LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.5.20 - 8 - 10.40
LIONS FOR LAMBS kl.6 - 8 - 10
THIS IS ENGLAND kl.6 - 8 - 10
SUPERBAD kl.5.30 - 10.15
WEDDING DAZE kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
WEDDING DAZE LÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
LIONS FOR LAMBS kl. 8 - 10.15
BALLS OF FURY kl. 4 - 6 - 8 - 10
ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 3.45 - 6
DARK IS RISING kl. 3.45
THE HEARTBREAK KID kl. 5.30 - 8 - 10.30
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
WEDDING DAZE kl. 6 - 8 -10
MR. WOODCOCK kl. 6 - 10.30
ELIZABETH: THE GOLDEN AGE kl. 8
EASTERN PROMISES kl. 8 - 10.20
SYNDIR FEÐRANNA SÍÐUSTU SÝN. kl. 6 - 10.20
VEÐRAMÓT SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.40 - 8
NÝTT Í BÍÓ!
Stórskemmtileg rómantísk gamanmynd með
Jason Biggs úr American Pie og Isla Fisher
úr Wedding Crashers!
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR
ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
BRÚÐKAUPSBILUN LÍF RÓSARINNAR
BORÐTENNISBULL
ELÍSABET
ÁSTARSORG MYRKRIÐ RÍS
LOFORÐ ÚR AUSTRI
ROGUE LEIGUMORÐINGI
ÞETTA ER ENGLAND
HR. WOODCOCK
LJÓN FYRIR LÖMB
- bara lúxus
Sími: 553 2075
AMERICAN GANGSTER kl. 7 og 10 16
MR. WOODCOCK kl. 6, 8 og 10 L
ROGUE ASSASSIN kl. 10 16
ÆVINTÝRAEYJA IBBA kl. 6 - 600 kr. L
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
Hljómsveitin Bloodgroup hefur
verið áberandi á íslensku tónlistar-
senunni síðustu mánuði og vakið
athygli fyrir dansvæna rafpoppið
sitt og sérlega villta og líflega
sviðsframkomu. Ég var mjög hrif-
inn af sveitinni á tónleikum hennar
á Pravda á Airwaves í fyrra, en eins
og maður heyrir á þessari fyrstu
plötu Bloodgroup hefur hún vaxið
mikið síðan.
Bloodgroup er íslensk-færeysk
sveit, skipuð Janusi frá Þórshöfn
og systkinunum Lilju, Halla og
Ragga frá Egilsstöðum. Nýlega
bættist reyndar fimmti meðlimur-
inn Benni í hópinn, en á plötunni er
sveitin enn fjögurra manna. Tónlist
Bloodgroup er eins og áður segir
mjög danshvetjandi raftónlist
undir áhrifum frá elektrónísku
danspoppi síðustu áratuga. Styrkur
plötunnar felst í nokkrum atriðum.
Í fyrsta lagi eru þetta fínar laga-
smíðar, en það er nokkuð sem
stundum gleymist þegar menn eru
uppteknir af grúvi og sándum. Í
öðru lagi er þetta skemmtilega
samsett tónlist og áhrifin koma
víða að. Það er fullt af 80’s áhrifum
á henni, sumt minnir á elektró-
clash bylgjuna sem var áberandi
fyrir þremur árum eða svo og svo
eru líka greinileg áhrif frá frönsku
bylgjunni, sérstaklega í laginu
What I Mean sem er eins og sam-
bland af Air og Daft Punk. Það telst
líka kostur að Bloodgroup er greini-
lega óhrædd við að láta hvað sem
er flakka og hefur stuðið að leiðar-
ljósi. Rappkaflinn í Moving Like a
Tiger er t.d. nett hallærislegur, en
virkar alveg í stuðrænu samhengi.
Svo má ekki gleyma Lilju. Vaxandi
söngkona með fína rödd.
Bloodgroup á nokkra smelli sem
eru auðvitað allir á Sticky Situat-
ion. Moving Like a Tiger, Hips
Again og Try On eru allt lög sem
ætti að sekta útvarpsstöðvar fyrir
að spila ekki, en platan er í heildina
nokkuð sterk þó að þessi ellefu lög
séu að sjálfsögðu ekki öll útvarps-
hittarar. Inni á milli er hreinræktuð
danstónlist og örlítið skrítnari laga-
smíðar.
Bloodgroup er augljóslega hörku-
dugleg hljómsveit. Hún hefur spil-
að mikið undanfarna mánuði, gefur
plötuna út sjálf og er komin með
samning við AWAL-fyrirtækið um
dreifingu í i-Tunes verslanir á
netinu.
Framundan eru svo tónleikar
erlendis og með sama krafti og
sannfæringu og hefur einkennt
sveitina síðasta ár eða svo er engin
ástæða til að búast við öðru en að
henni muni ganga allt í haginn.
Á heildina litið er Sticky Situat-
ion fín plata sem léttir lund og
kemur kroppnum á hreyfingu. Ein
af skemmtilegri plötum ársins.
Trausti Júlíusson
Með stuðið að leiðarljósi
TÓNLIST
Sticky Situation
Bloodgroup
★★★★
Þessi fyrsta plata Bloodgroup er
skemmtilega samsett og dansvæn
rafpoppplata sem einkennist af
flottum lagasmíðum, góðu sándi og
umfram allt miklu stuði.
„Mig hefur alltaf langað til þess að vera í hvítum
smóking,“ segir Bubbi sem ætlar í sitt fínasta
púss í tilefni nýárstónleika sinna með Stórsveit
Reykjavíkur. „Mjög líklega verð ég með tvo, einn
svartan og annan hvítan.“ Hann segir þetta ekki
vera í fyrsta skipti sem hann kemur fram í slíkum
klæðnaði. „Ég spilaði í afmælinu hjá Ólafi í
Samskipum og fór í smóking af því tilefni. Þegar
þú ert með stórsveit áttu annað hvort að vera ber
að ofan eða í smóking,“ segir Bubbi og er ekki
lengi að útskýra af hverju hann valdi seinni
kostinn í afmæli Ólafs. „Það var bara af virðingu
fyrir þessum gamlingjum sem voru með mér,
Bjögga Halldórs og þessu liði. Ég vildi ekki
eyðileggja kvöldið fyrir þeim,“ segir hann og
hlær. Bubbi segist reikna með að leigja sér fötin.
„Ætli ég fari ekki til vinkvenna minna í Faxafen-
inu hjá Brúðarkjólaleigu Dóru. Það er alveg 100
prósent að þær eiga hvítan smóking handa mér.
Svo getur líka vel verið að ég láti bara sauma á
mig – ég er drulluflottur í smóking.“
Bubbi segist hlakka til tónleikanna en Garðar
Thór Cortes og Ragnar Bjarnason verða þar
sérstakir gestir. „Þetta eru menn sem ég virði
mikið og þykir vænt um að hafa þá með. Ég
kynntist Garðari þegar við sungum saman í
Carmen Negra. Hann er algjör ljúflingur og gull
af manni. Slíkt hið sama er hægt að segja um
Ragga. Þau falla ekki verðbréfin í þessum
mönnum.“ -sók
Bubbi ætlar í hvítan smóking
Þorsteinn Sindri Baldvins-
son, fjórtán ára strákur úr
Hrafnagilsskóla á Akureyri,
endurhljóðblandaði nýverið
lagið Please Don´t Hate Me
með Lay Low og setti það á
heimasíðuna sína, myspace.
com/darestone.
„Ég fékk plötuna hennar í ferm-
ingargjöf og hlustaði á þetta lag
og varð hrifinn af því,“ segir Þor-
steinn Sindri Baldvinsson sem
endurhljóðblandaði nýverið lag
eftir Lay Low. „Svo
fór ég í tölv-
una og sótti
mér forrit
og bjó til
þetta lag á
fjórum
vikum. Ég
hef hljóð-
bland-
að
mjög mörg lög en þetta er aðallagið
sem ég hef gert. Ég er samt alltaf
að leita að nýjum lögum að gera en
veit ekki alveg hvað ég geri
næst.“
Lay Low er ein af uppáhalds-
söngkonum Þorsteins og að sjálf-
sögðu lét hann hana vita af nýja
laginu í gegnum myspace-síðuna.
Hann segist þó ekki hafa fengið
nein viðbrögð frá henni enn sem
komið er. Einu sinni sá hann Lay
Low spila í Sjallanum og heillaðist
gjörsamlega: „Hún stóð sig rosa-
lega vel.“
Þorsteinn, sem stundum kallar
sig Darestone upp á enska mát-
ann, lætur sér ekki nægja að end-
urhljóðblanda hin ýmsu lög heldur
er hann líka í þremur hljómsveitum.
Ein þeirra heitir Grasstrá þar sem
hann situr við trommusettið og
rokkar feitt. „Það er ekki komið
nafn á hinar hljómsveitirnar, það
er í vinnslu. Við stofnuðum þær til
að taka þátt í Samfés,“ segir þessi
efnilegi tónlistarmaður og endur-
hljóðblandari.
freyr@frettabladid.is
Endurhljóðblandaði Lay Low
TIL SKIPTANNA Bubbi Morthens kemur fram á nýárstónleikum
með Stórsveit Reykjavíkur. Kóngurinn ætlar að vera í smóking
og reiknar með að fá sér bæði svartan og hvítan.
ÞORSTEINN SINDRI BALDVINSSON Þorsteinn Sindri endurhljóðblandaði lagið Please
Don´t Hate Me með Lay Low. MYND/HEIÐA.IS
LAY LOW Tónlistarkonan Lay Low er í
uppáhaldi hjá Þorsteini Sindra.