Fréttablaðið - 22.11.2007, Qupperneq 91
FIMMTUDAGUR 22. nóvember 2007 63
Útgáfu fyrstu plötu Gunnars Ólasonar úr
Skítamótal og Sigurjóns Brink hefur
verið frestað fram yfir áramót. „Við
höfum ekki haft tíma til að sinna þessu
eins og við ætluðum að gera,“ segir
Gunnar. „Það er svo mikið að gera að við
höfum ekki tíma til að taka þátt í þessu
jóladiskaflóði.“
Gunnar, sem starfar sem fasteignasali,
segir að engin lognmolla sé í fasteigna-
bransanum þrátt fyrir að aðrir hafi
viljað halda því fram. Þess vegna hafi
platan orðið að bíða, auk þess sem
Sigurjón hefur verið upptekinn í
söngnum að undanförnu.
Þeir félagar, sem gefa plötuna út
sjálfir, hafa spilað töluvert saman á
Hverfisbarnum á fimmtudagskvöldum
og náð mjög vel saman. „Við erum búnir
að vera saman í þrjú ár og spilað hingað
og þangað út um allt á alls konar
„eventum“.
Annar spilar örvhent og hinn rétthent,
þannig að það eru jöfn skipti,“ segir
Gunnar. „Ég settist inn í fyrsta gítartím-
ann sem örvhentur spilari en var snúið
við,“ segir hann. Sigurjón hefur aftur á
móti alltaf spilað örvhent.
Gunnar segist ekkert ætla að svekkja
sig á frestun plötunnar. „Við ætluðum að
vera búnir að þessu mikið fyrr en við
eigum þetta bara eftir. Við fáum að njóta
góðs af því að jóladiskaflóðið verður
búið og getum þá einbeitt okkur betur að
okkar málum. Þetta verður íslensk
partíplata með bæði „cover“-lögum og
frumsömdu efni. Þetta verður eins hrátt
og hægt verður að hafa það.“ - fb
Enginn tími fyrir jólaflóðið
NÁ VEL SAMAN Félagarnir Gunnar Ólason og Sigurjón Brink hafa
spilað saman undanfarin þrjú ár við góðar undirtektir.
I ADAPT Hljómsveitin I Adapt heldur
útgáfutónleika á laugardagskvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Rokksveitin I Adapt heldur
útgáfutónleika á Grand Rokk á
laugardagskvöld til að fagna
plötunni Chainlike Burden.
Hljómsveitirnar Momentum og
Retron koma einnig fram.
Chainlike Burden, sem hefur
fengið mjög góða dóma, verður til
sölu á tónleikunum á tilboðsverði,
eitt þúsund krónur. Þeir sem ekki
hafa eignast plötuna geta einnig
hlustað á hana á www.mammat-
hin.net. Föt merkt hljómsveitinni
verða jafnframt til sölu á
tónleikunum gegn vægu gjaldi.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22
og kostar 500 krónur inn.
Fagna sinni
nýjustu plötu
Söngparið Friðrik Ómar og
Guðrún Gunnarsdóttir kemur
fram á tónleikum í Íþróttahöllinni
á Akureyri í kvöld ásamt tólf
manna stórsveit Ólafs Gauks.
Þau ætla að flytja lög af
nýjustu plötu sinni, Ég skemmti
mér um jólin, sem fór beina leið
í þriðja sæti Tónlistans aðeins
örfáum dögum eftir útgáfudag.
Einnig verða flutt lög af hinum
„Ég skemmti mér“-plötunum.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21
og verður boðið upp á hangikjöt í
hléi ásamt malti og appelsíni.
Jólastemning
á Akureyri
FRIÐRIK OG GUÐRÚN Friðrik Ómar og
Guðrún Gunnarsdóttir koma fram á
tónleikum á Akureyri.
Samkvæmt heimildum breskra
fjölmiðla hefur dóttur Madonnu,
hinni ellefu ára gömlu Lourdes,
boðist hlutverk í næstu mynd um
galdrastrákinn Harry Potter sem
kennd er við blendingsprinsinn.
Warner Brothers hafa boðið
Lourdes hlutverk í myndinni, en
hún ku vera mikill aðdáandi
þeirra, samkvæmt heimildar-
manni The Sun.
Lourdes hefur verið áberandi
að undanförnu og í kjölfarið
hefur tilboðum rignt yfir hana.
Þar á meðal er boð um að hanna
eigin fatalínu fyrir H&M.
Madonna er hins vegar ekki
hrifin af tilboðaflóðinu þó að
Lourdes sé sátt. „Hún vill að hún
eigi eins eðlilega æsku og hægt
er,“ segir heimildarmaðurinn.
Lourdes í
Harry Potter
ÁHUGASÖM Lourdes ku hafa mikinn
áhuga á hlutverkinu í Harry Potter.
Ferilskrá sendist á netfangið
hulda@hbu.is
Við erum að leita að duglegum einstak-
lingum í fullt starf, hlutastarf. og jólastarf
Starfið felst í almennum verslunarstörfum
og ráðgjöf til viðskiptavina.
Hæfniskröfur:
DAY | Kringlunni | www.day.dk
www.isam.is Merki ÍSAM tryggir íslenskum heimilum hagkvæmar og góðar vörur. Myllan er eitt af gæðavörumerkjum ÍSAM.
Það eru engin jól án gómsætu jólatertanna frá Myllunni.
Jólatertur Myllunnar eru ómissandi þáttur í jólahaldi landsmanna.
Þú velur um þrjár vinsælar tegundir í öllum betri verslunum.
Nú fást allar jólatertur Myllunnar
bæði heilar og hálfar, með kremi,
með sultu, og með sultu og kremi.
Nýjung
!
Jólatertur Myllunnar
eru ómissandi