Fréttablaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 60
Nú hneykslast kynsystur mínar á
mér en ég er mikið hætt að baka.
Þegar vinkonurnar spyrja hvort
ég sé búin að öllu fyrir jólin svara
ég bara „já, já, öllu sem ég ætla að
gera“. Ég geri nefnilega bara það
sem mér finnst skemmtilegt. Kökur
fara bara ofan í mann og utan á og
þau kaffiboð sem ég ólst upp við hér
milli bæja eru að miklu leyti aflögð.
Það er meira um matarboð núna.
Svo er ágætt barnaball í sveitinni.
Á tímabili voru það bara konur og
börn sem mættu en nú er þetta að
verða eins og í gamla daga að pabb-
arnir koma líka og eldra fólkið.
Konurnar í hreppnum skiptast á að
sjá um veitingarnar. Ég var í þeim
hópi í fyrra þannig að ég þarf ekk-
ert að baka núna. Ég stjórna hins
vegar dansi kringum tréð.“
Þegar farið er að spjalla meira
kemur í ljós að Ingibjörg er ekki
eins fráhverf bakstri og hún þykist
vera. „Ég baka yfirleitt kleinur og
steikt brauð, svokallaða parta. Er
ágæt í því. Steikta brauðið er gott
með hangikjöti eða reykt um laxi,
til dæmis. Ég baka líka flatkök-
ur og geri það með gasi úti á hlaði
eða skúr. Þá kemst ég hjá því að fá
stybbu í húsið. Raða kökunum á þar
til gerða plötu og renni loganum ró-
lega yfir.
Nú, svo baka ég eina til tvær
smákökusortir og stundum er önnur
þeirra búin fyrir jól. Mér finnst svo
gaman að gefa smákökur með kaff-
inu á aðventunni þegar fólk lítur
inn. Einu sinni voru allar smákök-
ur búnar á jólunum en það tók eng-
inn eftir því, það var svo mikið til
af öðru. Mér finnst gott að grípa
til síldarrétta, brauðrétta og sætra
rétta ef með þarf.“
Lengi vel kveðst Ingibjörg hafa
dundað sér við að gera konfekt fyrir
jólin og gjarnan gefið það í jólagjaf-
ir. Greinilegt er að hún kann ýmis-
legt fyrir sér. „Fyrstu árin sem ég
bjó gerði ég allt eins og mamma og
pabbi og hélt sömu siðum en smám
saman breyttust þeir og neyslu-
venjurnar líka svo ég hef dregið
úr öllu umstangi.“ Að lokum er hér
uppskrift hjá Ingibjörgu.
STEIKT BRAUÐ
4 bollar hveiti
1½ tsk. ger
1 tsk. hjartarsalt
1-2 msk. smjörlíki
Heit mjólk eftir þörfum og oft
nota ég súrmjólk líka. Deigið er
hnoðað hratt saman, flatt þykkt út
og mótað annað hvort í ferhyrndar
eða kringlóttar kökur. Ég steiki þær
í feiti sem er til helminga tólg og
plöntufeiti. Svo bara bý ég til síld-
arrétti og það er komið svo mikið af
fljótlegum uppskriftum að brauð-
réttum eða sætum réttum sem gott
er að grípa til ef með þarf. - gun
21. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR12 ● fréttablaðið ● jólin koma
Partar eru eitt af því sem Ingibjörg
bakar oft.
Er mikið
hætt að baka
● Ingibjörg Hafstað í Vík í Skagafirði hefur einfaldað jóla-
undirbúninginn eftir því sem árin hafa liðið. Þó býr hún
alltaf til steikt brauð og eina til tvær smákökusortir.
Ingibjörg í Vík hefur að eigin sögn
dregið úr öllu umstangi fyrir jólin.
● HVÍTMÁLAÐUR FENJA-
VIÐUR Jólin er haldin á mismun-
andi hátt eftir löndum og veður-
fari. Í Manila á Filippseyjum, þar sem
þessi mynd var tekin, voru börn að
mála jólatré hvít en trén eru búin til
úr þurrkuðum fenjaviði. Trén eru svo
seld fyrir um 1.000 pesoa eða um 24
dollara.
Um 80 prósent Filippseyinga eða
um 87 milljónir aðhyllast rómversk/
kaþólsku kirkjuna og er jólahátíðin
þar í landi ein sú lengsta í heimin-
um. Hefst hún hinn 16. desember
með morgunmessum.
Jólagjöfin í ár
til þeirra sem þér er annt um
Gleðilega hátíð!
Starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Kryddin frá Pottagöldrum eru ómissandi í matreiðsluna
Alltaf um jólin