Fréttablaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 94
54 21. desember 2007 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> PETA FÆR PELSANA
Leikkonan Kim Cattrall ætlar
að gefa dýraverndunarsam-
tökunum PETA alla pelsa
sem persóna hennar, Sam-
antha Jones, klæðist í kvikmynd-
inni Sex and the City. Samtökin hafa
ákveðið að gefa heimilislausum pels-
ana, en þó ekki fyrr en rauðri máln-
ingu hefur verið slett á þá.
Tímaritið People stóð fyrir kosningu á því
hvaða stjörnupar lesendur teldu líklegast
að yrði enn saman eftir 10 ár. Í
ljós kom að flestir voru á því að
leikaraparið Jennifer Garner og
Ben Affleck yrðu enn hamingju-
söm saman árið 2017.
Skötuhjúin eiga dótturina
Violet Anne sem fæddist í
desember fyrir tveimur
árum. Ben hefur þótt
standa sig vel í foreldra-
hlutverkinu og hætti til að
mynda að reykja um leið
og hann vissi að von væri á
erfingja. Jennifer og Ben þykja afar
samrýnd og hafa komið fram í tveimur
kvikmyndum saman, Pearl Harbor árið
2001 og Daredevil tveimur árum síðar.
Myndirnar hefðu verið þrjár ef ekki
væri fyrir það að sena Bens í
kvikmyndinni Elektra var klippt út,
en Jennifer fór sem kunnugt er með
aðalhlutverkið í myndinni.
Knattspyrnukappinn David
Beckham og eiginkona hans
Kryddpían Victoria Beckham fylgdu
fast á hæla leikaraparsins og eru því
greinilega margir sannfærðir um að
hjónaband þeirra sé komið til að vera.
Það hefur enda staðið af sér margan
storminn en David hefur til að mynda
verið sakaður um framhjáhald. David
og Victoria eiga saman þrjá syni.
- sók
Samband Jen og Ben mun endast
HAMINGJUSÖM Ben Affleck og Jennifer Garner
þykja líklegust til að hanga saman í tíu ár í
viðbót af stjörnupörum Hollywood.
LANGLÍFT SAMBAND Þau Victor-
ia og David Beckham hafa þegar
verið saman í mörg ár. Hér sjást
þau í dressi sem Victoria hefur
kallað ein verstu tískumistök sín.
Stjörnurnar í Hollywood vekja iðulega athygli fyrir hegð-
un sína. Tímaritið People tók nýlega saman lista yfir þá
atburði sem hristu mest upp í stjörnuheiminum á árinu.
Stjörnuskandalar ársins
Önnur plata Stórsveitar Nix
Noltes, Royal Family-Divorce, er
komin út. Platan, sem hefur verið í
vinnslu síðan í júlí í fyrra,
inniheldur tíu búlgörsk þjóðlög í
útsetningum hljómsveitarmeðlima.
Næsta sumar verður platan
gefin út hjá FatCat-fyrirtækinu í
Bandaríkjunum. Alls eru ellefu
meðlimir í Stórsveit Nix Noltes,
sem gaf síðast út plötuna Orkideur
Hawaii.
Önnur plata
Nix Noltes
STÓRSVEIT NIX NOLTES Stórsveit Nix
Noltes hefur gefið út plötuna Royal
Family-Divorce.
Jack White, forsprakki The White
Stripes, er með þrjár nýjar plötur
í smíðum. Engin þeirra er þó
undir merkjum The White Stripes
eða hinnar hljómsveitar hans,
The Raconteurs.
White segist hafa haft góðan
tíma til að sinna þessum nýju
verkefnum eftir að tónleikaferð
The White Stripes var aflýst fyrr
á árinu vegna veikinda trommar-
ans Meg White. Hann segir
jafnframt að Meg hafi aldrei
verið nálægt því að hætta í
sveitinni. Þvert á móti virðist hún
aldrei hafa verið ánægðari en
eftir að tekið upp nokkur lög
undir nafninu Conquest í stofunni
heima hjá Beck.
Þrjár plötur
í smíðum
1. Snoðað höfuð Britney Spears
Söngkonan Britney Spears rakaði af sér allt hárið í
einhvers konar andlegri krísu. Klippingin varð upp-
hafið að afar erfiðu ári hjá söngkonunni.
3. Glímukappi myrðir fjölskyldu sína
Glímukappinn Chris Benoit fyrirfór sér eftir að hafa
banað eiginkonu sinni og sjö ára syni. Lögregla
rannsakar enn hvort of stór hormónaskammtur
eigi þátt í harmleiknum.
2. Rosie O´Donell yfirgefur The
View
Leikkonan Rosie O´Donell
sagði upp störfum við umræðu-
þáttinn The View eftir að hafa
átt í eldfimum rök-
ræðum um Íraks-
stríðið við annan
þáttastjórnanda í
beinni
útsend-
ingu.
6. Góðkunningi lögreglunnar
Lindsay Lohan náðist drukkin undir stýri aðeins
ellefu dögum eftir að hafa lokið áfengismeðferð
sem hún var skikkuð í vegna ölvunaraksturs. Í
seinna skiptið hafði hún einnig kókaín í fórum
sínum, var send aftur í meðferð og eyddi heil-
um 84 tímum í steininum.
7. Fangelsisvist Parisar Hilton
Hótelerfingjanum Paris Hilton
var stungið inn fyrir að brjóta
skilorð en eftir nokkra daga
var dómnum breytt í stofu-
fangelsi. Dómaranum snerist
svo hugur og sendi hana aftur í
fangaklefann. Hún sat inni í 23
daga.
4. Rekinn úr Grey´s Anatomy
Isaiah Washington var rekinn úr hlutverki
sínu sem læknirinn Preston Burke í sjón-
varpsþáttunum Grey´s Anatomy eftir að hafa
talað niðrandi um samkynhneigð samleikara
síns, T.R. Knight, sem í kjölfarið neyddist
til að koma opinberlega úr skápnum.
8. Faðernismál kringum Önnu Nicole
Skömmu eftir fæðingu dóttur sinnar og sviplegt
fráfall sonar síns lést Anna Nicole Smith af
ofneyslu lyfja. Í kjölfarið brutust út hatrammar
deilur um faðerni dótturinnar Dannielynn. Eftir
DNA-rannsókn reyndist Larry Birkhead vera
faðir inn og fer nú með forræði yfir stúlkunni.
5. Sjálfsvígstilraun
Owens Wilson
Gamanleikarinn
Owen Wilson
reyndi að svipta
sig lífi eftir
sambandsslit
við leikkonuna
Kate Hudson.
Seinna kom í
ljós að hann átti
við vímuefna-
fíkn að stríða.
Jólasveinar munu koma færandi hendi á ÓB-stöðvarnar í
Fjarðarkaupum og á Borgarbraut Akureyri í dag, föstudag,
milli kl. 16 og 18 og útdeila gjöfum, s.s. Nokia-símum,
DVD-myndum, afsláttarbréfum Ellingsen og mörgu fleira.
2 kr. aukaafsláttur með ÓB-lyklinum.
ÓB FJARÐARKAUPUM
OG Á AKUREYRI
Jólastöðvar-4 kr.
afsláttur af eldsneyti
í Fjarðarkaupum og
á Akureyri í dag!
TB
W
A
\R
EY
KJ
A
VÍ
K
\
SÍ
A
\9
07
13
68
www.ob.is