Fréttablaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 92
52 21. desember 2007 FÖSTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
Fréttablaðið leitaði til valinna sérfræðinga
til þess að fá úr því skorið hverjar séu
bestu plötur ársins 2007. Sautján manns
skiluðu inn listum yfir bestu íslensku
plöturnar – gagnrýnendur, fjölmiðlafólk
og nafntogaðir tónlistaráhugamenn. Platan
sem er í efsta sæti á lista hvers og eins fær
5 stig, platan í öðru sæti 4 stig og þannig
koll af kolli. Ef tvær plötur fá jafn mörg
stig þá fær sú plata sem er með fleiri til-
nefningar hærra sæti á heildarlistanum.
Margir þátttakendanna höfðu á orði að árið 2007 hafi
verið sérstaklega gott ár fyrir íslenska tónlist og að
það hafi verið mjög erfitt að velja bara fimm plötur.
Þrátt fyrir það sigrar plata Mugisons, Mugiboogie,
með miklum yfirburðum. Hún hlýtur næstum
helmingi fleiri stig heldur en næsta plata á eftir,
Tímarnir okkar með Sprengjuhöllinni. Árangur
ungliðanna í Sprengjuhöllinni og Hjaltalín vekur
sérstaka athygli. Þær skjóta báðar Megasi ref fyrir
rass þrátt fyrir að plöturnar hans hafi báðar fengið
frábærar viðtökur gagnrýnenda og plötukaupenda
og séu almennt taldar hans bestu verk í áraraðir.
Annað sem vekur athygli er slakt gengi okkar
þekktustu tónlistarmanna úti í hinum stóra heimi.
Volta með Björk sem er á flestum árslistum
erlendra tónlistarmiðla, fær aðeins þrjár
tilnefningar og er langt frá því að blanda sér í
toppbaráttuna og það sama má segja um plötur
múm, Sigur Rósar og Amiinu. Listi yfir bestu
erlendu plötur ársins 2007 verður birtur í blaðinu á
morgun.
Mugison með yfirburði á
frábæru íslensku tónlistarári
Árni Þór Jónsson – Zýrður rjómi
1. Hjaltalín – Sleepdrunk Seasons
2. Sprengjuhöllin – Tímarnir okkar
3. Mugison – Mugiboogie
4. Megas – Hold er mold
5. Jakobínarína – The First Crusade
BESTU ÍSLENSKU PLÖTURNAR 2007
Birgir Örn Steinarsson – Mónitor
1. Benny Crespo’s Gang – Benny
Crespo’s Gang
2. Mugison – Mugiboogie
3. Páll Óskar – Allt fyrir ástina
4. Sometime – Supercalifragi-
listicexpialidocious
5. Ólöf Arnalds – Við og við
Björn Þór Björnsson „Bobby Breið-
holt“ – breidholt.blogspot.com
1. Gus Gus – Forever
2. Sprengjuhöllin – Tímarnir okkar
3. Mínus – The Great Northern Whalekill
4. Jakobínarína – The First Crusade
5. Benny Crespo’s Gang – Benny
Crespo’s Gang
Brynjar Már Valdimarsson – FM957
1. Páll Óskar – Allt fyrir ástina
2. Hjálmar – Ferðasót
3. Gus Gus – Forever
4. Sprengjuhöllin – Tímarnir okkar
5. Mugison – Mugiboogie
Dr. Gunni - this.is/drgunni
1. Sprengjuhöllin – Tímarnir okkar
2. Megas – Frágangur/Hold er mold
3. Hellvar – Bat out of Hellvar
4. Seabear – The Ghost
that Carried Us Away
5. Hjaltalín – Sleepdrunk Seasons
Egill Harðarson – egillhardar.com
1. Sigur Rós – Hvarf/Heim
2. Mugison – Mugiboogie
3. B.Sig – Good Morning Mr. Evening
4. Jakobínarína – The First Crusade
5. Hjaltalín – Sleepdrunk Seasons
Eldar Ástþórsson – Iceland Airwaves
1. Mugison – Mugiboogie
2. Seabear – The Ghost that
Carried Us Away
3. Gus Gus – Forever
4. múm – Go Go Smear the Poison Ivy
5. Hjaltalín – Sleepdrunk Seasons
Freyr Bjarnason – Fréttablaðið
1. Megas - Frágangur
2. Megas - Hold er mold
3. Mugison - Mugiboogie
4. Björk - Volta
5. Sprengjuhöllin - Tímarnir okkar
Frosti Logason – X-ið 977
1. Jakobínarína - The First Crusade
2. Mugison - Mugiboogie
3. Vera - The Awakening
4. Sign - The Hope
5. Benny Crespo’s Gang - Benny
Crespo’s Gang
Höskuldur Daði Magnússon
– Fréttablaðið
1. Hjaltalín – Sleepdrunk Seasons
2. Megas – Frágangur/Hold er mold
3. Sprengjuhöllin – Tímarnir okkar
4. Mugison – Mugiboogie
5. Jan Mayen – So Much
Better Than Your Normal Life
Jens Kr. Guðmundsson - jensgud.
blog.is
1. I Adapt – Chainlike Burden
2. Mínus – The Great Northern Whalekill
3. Mugison – Mugiboogie
4. Sigur Rós – Hvarf/Heim
5. Megas – Frágangur
Matthías Magnússon – X-ið 977
1. Mugison – Mugiboogie
2. Benny Crespo’s Gang – Benny Crespo’s Gang
3. Hjaltalín – Sleepdrunk Seasons
4. Jakobínarína – The First Crusade
5. Jan Mayen – So Much Better Than Your Normal Life
Ólafur Páll Gunnarsson – Rás 2
1. Mugison – Mugiboogie
2. Ólöf Arnalds – Við og við
3. Sigur Rós – Hvarf/Heim
4. Megas – Frágangur
5. Hjálmar – Ferðasót
Ragnhildur Magnúsdóttir – Bylgjan
1. Hjálmar – Ferðasót
2. Páll Óskar – Allt fyrir ástina
3. Ellen – Einhversstaðar,
einhverntímann... aftur
4. Mugison – Mugiboogie
5. Sprengjuhöllin – Tímarnir okkar
Steinþór Helgi Arnsteinsson
– Fréttablaðið
1. Sprengjuhöllin – Tímarnir okkar
2. Hjaltalín – Sleepdrunk Seasons
3. Ólöf Arnalds – Við og við
4. Björk – Volta
5. Mugison – Mugiboogie
Sveinn Birkir Björnsson – Grapevine
1. Benny Crespo’s Gang – Benny
Crespo’s Gang
2. I Adapt – Chainlike Burden
3. Skátar – Ghosts of the Bollocks to Come
4. Sign – The Hope
5. GusGus – Forever
Trausti Júlíusson – Fréttablaðið
1. Megas – Frágangur
2. Mugison – Mugiboogie
3. Hjaltalín – Sleepdrunk Seasons
4. Björk – Volta
5. Sprengjuhöllin – Tímarnir okkar
1. Mugison
– Mugiboogie
46 stig
2. Sprengju-
höllin
– Tímarnir
okkar
26 stig
3. Hjaltalín
– Sleep-
drunk Seasons
23 stig
4. Megas
– Frágangur
21 stig
5. Benny
Crespo’s Gang
– Benny
Crespo’s Gang
16 stig
6. Megas
– Hold er mold
14 stig
7. Gus Gus
– Forever 12 stig
8. Páll Óskar
– Allt fyrir
ástina 12 stig
9. Jakobínarína
– The First
Crusade 11 stig
10. Hjálmar
– Ferðasót
10 stig
> BESTU PLÖTUR SÍÐUSTU ÁRA
2006: Reykjavík! - Glacial Landscapes,
Religion, Oppression & Alcohol
2005: Sigur Rós - Takk...
2004: Mugison - Mugimama (is this Monkey Music?)
2003: Mínus – Halldór Laxness
2002: Sigur Rós - ()
2001: XXX Rottweilerhundar - XXX Rottweilerhundar
2000: Botnleðja - Douglas Dakota
1999: Sigur Rós - Ágætis byrjun
1998: Botnleðja - Magnyl
skv. sams konar könnunum í
Fréttablaðinu, DV og Fókus
„Já, er Múkkurinn bara að taka
þetta? Djöfull er ég ánægður.
Þetta er glæsilegt,“ sagði Örn
Elías Guðmundsson, Mugison,
þegar Fréttablaðið óskaði
honum til hamingju með að
eiga plötu ársins 2007. „Ég veit
ekki hvort þetta er einhver
hundaheppni eða hvort fólk er
að gera mér aumingjagreiða,“
sagði Örn þegar honum var
bent á að síðasta stúdíóplata
hans hefði sömuleiðis verið
plata ársins. Mugimama sigr-
aði einmitt með miklum yfir-
burðum í sams konar kjöri árið
2004.
Örn Elías segir að þessi
viður kenning sé sérstaklega
ánægjuleg þar sem hann hafi
lagt mikla vinnu í plötuna
Mugiboogie. Þar sem hún sé
nokkuð frábrugðin síðustu
plötu hafi hann ekki verið viss
um að allir myndu taka henni
vel: „Ég bjóst ekkert sérstak-
lega við því að tónlistargagn-
rýnendur yrðu áfram með mér
í liði. En þeir eru greinilega í
góðum fíling áfram, ég var
skíthræddur,“ segir hann.
„Þetta er auðvitað mikið til
strákunum sem spila með mér
að þakka. Þeir eiga mikinn
heiður skilinn.“
Almenningur hefur sömu-
leiðis tekið plötunni vel því
yfir fimm þúsund eintök eru
þegar seld. „Ég er búinn að
föndra hátt í níu þúsund plötur,
við tókum 500 stykki í gær-
kvöldi sem eru að fara í dreif-
ingu núna. Þar sem ég er að
gefa út sjálfur þarf maður líka
að vera miklu graðari í kynn-
ingunum. Ég er orðinn hálf-
gerður Einar Bárðarson, ég
gæti gefið út bók á næsta ári.
Öll hin trixin í bókinni, hljómar
það ekki vel?“
Næsta ár verður annasamt
hjá Mugison. Hann heldur
áfram að fylgja eftir velgengni
plötunnar, meðal annars með
tónleikaferð í Evrópu í apríl og
maí. Örn segist vona að hann
finni einhvern tíma til að taka
upp nýtt efni en ólíklegt verði
þó að teljast að ný plata líti
dagsins ljós á næsta ári. „Ann-
ars vil ég hvetja alla til að
mæta á tónleikana mína á
Organ í kvöld. Það verða allir
strákarnir með mér og þetta
verður magnað.“ - hdm
Hrærður yfir viðtökunum
Á BESTU PLÖTU ÁRSINS Plata
Mugisons var valin besta plata
ársins af sérfræðingum Frétta-
blaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SENDU SMS JA ACF
Á NÚMERIÐ 1900 OG
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru Bíómiðar fyrir tvo, DVD
myndir, varningur tengdur myndinni
og margt fleira!
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
JÓLAMYNDIN Í ÁR!
STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.