Fréttablaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 97
FÖSTUDAGUR 21. desember 2007 57
Jessica Simpson er sögð vonast
til þess að koma leikkonuferlinum
á réttan kjöl með
leik í endurgerð
myndarinnar Pretty
Woman en það var
eins og flestir vita
Julia Roberts sem
lék aðalhlutverkið
á sínum tíma. „Hún
er viss um að þessi
mynd muni slá í
gegn,“ lét heimildar-
maður hafa eftir sér
í samtali við OK! á
dögunum. „Pabbi
hennar hefur verið
að segja öllum að
Jessica muni verða
hin næsta Julia.“
Söngkonan Christina Aguilera,
sem er langt gengin
með sitt fyrsta barn,
er sögð hafa gengið
frá því að hún muni
fara í keisaraskurð 10.
janúar næstkomandi.
Þetta mun vera
tilkomið af því að
Christina vill forðast
þann sársauka
sem fylgir eðli-
legri fæðingu
í lengstu lög.
Ónafngreind-
ur vinur hennar
hefur sagt að
það gæti þó allt eins
komið til þess að dagsetningin
verði enn fyrr.
Meira af Christinu því
hún og eiginmaðurinn
Jordan Bratman hafa nú
þegar haldið eina veislu
tilvonandi erfingjanum
til heiðurs en ætla að
bæta annarri við. Sú
fyrri var haldin fyrr í
mánuðinum en seinni
veislan er einungis
ætluð fyrir lokaðan hóp
vina og fjölskyldu Christ-
inu. Hjónakornin eru
þegar búin að velja þrjú
nöfn sem þeim
finnst koma til
greina á frum-
burðinn; Jackson,
Jake og Max.
Í apríl síðastliðnum gengu þær
sögur fjöllunum hærra í Hollywood
að ungstirnið Lindsay Lohan
væri lesbía. Sögurnar hafa nú farið
á kreik á nýjan leik sökum þess
að Lindsay og stelpa
að nafni Courtenay
Semel eru óaðskiljan-
legar. Þær leiðast um
allt og fóru nýverið
í partí til leikkon-
unnar Jeanette
Longoria sem er
samkynhneigð.
Meira þurfti ekki til
en talsmaður Lindsay
neitar sögusögnunum
og segir stöllurnar bara
vinkonur. Courtenay er
dóttir Terry Semel en sá
er forstjóri Yahoo! og er
forríkur.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Franski körfuboltakappinn Tony
Parker hefur höfðað mál gegn
slúður síðunni X17online.com sem
hélt því fram að hann hefði haldið
fram hjá eiginkonu sinni, Evu Long-
oria, með frönsku fyrirsætunni
Alexöndru Paressant.
„Þetta gerðist aldrei. X17 hlýtur
að hafa vitað að þetta væri vitleysa
eða að minnsta kosti haft miklar
efasemdir um hversu trúanlegur
hinn meinti heimildarmaður var,“
segir í málsskjölunum.
Þar kemur einnig fram að X17
hafi aldrei haft samband við Parker,
Longoria eða fulltrúa þeirra áður en
fréttin fór í loftið og neituðu stjórn-
endur hennar jafnframt að taka
hana til baka þrátt fyrir að hafa
fengið að vita að hún væri ósönn.
Parker, sem spilar með San Antonio
Spurs í NBA-deildinni, fer fram á
um 2,5 milljarða króna í skaða-
bætur.
Í fréttinni, sem birtist í síðustu
viku, sagðist Paressant hafa átt í
tveggja mánaða ástarsambandi við
Parker. Hittust þau fyrst í brúð-
kaupi Parker og Longoria í sumar
eftir að fótboltakappinn Thierry
Henry kynnti þau hvort fyrir öðru. Í
málsskjölunum kemur fram að
aldrei hafi verið haft samband við
Henry vegna fréttarinnar og að Par-
essant hafi ekki komið í brúðkaupið.
Einnig segir þar að Parker hafi
aldrei hitt Paressant.
Parker og Longoria vísuðu frétt-
inni á bug í síðustu viku og sögðu
hjónabandið standa traustum fótum.
„Ég elska konuna mína,“ sagði
Parker í yfirlýsingu sinni. „Hún er
það besta í mínu lífi og ég hef aldrei
verið hamingjusamari.“ Longoria,
sem leikur í Desperate Housewives,
var á sama máli. „Tony er hinn full-
komni eiginmaður.“
Höfðar mál gegn slúðursíðu
PARKER OG LONGORIA Hjónabandið
stendur traustum fótum og þau hafa
aldrei verið hamingjusamari.
Ekkja Ikes Turner, Jeanette,
segist vona að Tina Turner,
fyrrverandi eiginkona hans,
geti fyrirgefið honum.
Tónlistar maðurinn lést á
heimili sínu í Kaliforníu í
síðustu viku, þá 76 ára að aldri.
Tina og Ike voru gift í átján ár
en skildu árið 1978. Talsmaður
Tinu sagði í síðustu viku að þau
hefðu ekki talast við í marga
áratugi. Fram kemur í ævisögu
Tinu Turner að Ike beitti hana
líkamlegu ofbeldi á meðan á
sambandinu stóð, en hún hefur
ekki viljað tjá sig neitt um
fráfall tónlistarmannsins.
Ekkja Ikes, Jeanette Turner, vonast hins vegar til að Tina geti
fyrirgefið honum. „Ég veit að hún var særð. En það er til dálítið sem
kallast fyrirgefning, og ég veit að Ike fyrirgaf sjálfum sér, sem er
mjög erfitt að gera,“ segir Jeanette.
Vill fyrirgefningu
IKE OG TINA TURNER Ekkja Ikes Turner vill
að Tina Turner fyrirgefi honum ofbeldið sem
hann beitti hana á meðan þau voru gift. Þau
skildu árið 1976.
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
7
Mjúkur pakki
Opið til 22:00 Þorláksmessa 12:00-18:00 www.IKEA.is
1.490,-
KLAPPAR FLODHÄST
mjúkdýr L65 cm 1.490,-
BARNSLIG FLODHÄST
mjúkdýr L75 cm 790,-
BARNSLIG KROKODIL
mjúkdýr L75 cm 790,-
KLAPPAR KROKODIL
mjúkdýr 895,-
KLAPPAR SKALBAGGE
mjúkdýr 895,-
KORALL HAJ mjúkdýr
L62 cm 495,-
MINNEN DRAKE
mjúkdýr L190 cm 995,-
1.790,-
KLAPPAR ELEFANT
mjúkdýr L60 cm
895,-
KLAPPAR BÄVER mjúkdýr
895,-
KLAPPAR RÄV
mjúkdýr 2 stk.1.290,-
KLAPPAR ISBJÖRN
mjúkdýr L60 cm
695,-
KLAPPAR PANDA
mjúkdýr L32 cm