Fréttablaðið - 21.12.2007, Page 66
BLS. 10 | sirkus | 21. DESEMBER 2007
Þrír dagar í jól og
eftir nokkur
jólahlaðborð í desember,
smákökuát og malt- og
appelsínsötur lítur út fyrir
að jóladressið springi utan
af þér áður en fyrsta
rjúpubitanum verður
kyngt. Sirkus tók
saman helstu „hrað-
megrunarráðin“.
NÚ ERU SÍÐUSTU FORVÖÐ AÐ KOMAST Í KJÓLINN FYRIR JÓLIN
ÞRIGGJA DAGA MEGRUN
GRÆNT TE Ef bólgnir puttar,
þrútnir leggir og útbelgdur
magi eru að hrjá þig þá
geta 20 bollar af grænu tei
á dag gert kraftaverk.
Forðastu þó að innbyrða
slíka skammta áður en þú
ferð í verslunarleiðangur
því öruggast er að vera
nálægt klósettinu þegar
teið byrjar að virka. Ráðlagt
er að drekka teið ekki á
fastandi maga þar sem slík
inntaka getur valdið svima,
skjálfta og ógleði. Ekki má
heldur drekka teið rétt fyrir
svefn, því græna teið er
afar örvandi en gæti þó
reynst vel þeim sem eiga
eftir að gera allt fyrir jólin
og þarfnast aukaorku.
Algengustu aukaverkanir:
Tíð þvaglát og örari
melting.
SVELT Vatnsdrykkja og gamla
góða sveltið svíkur engan. Ef vel
tekst til færðu nokkur skamm-
unninn mínus-kíló í jólagjöf.
Yfirlið, ógleði, máttleysi og
laslegt yfirbragð eru nokkrar af
fáum aukaverkunum sem geta
skotið upp kolli sínum í kjölfar
sveltisins. Því er sveltið dýrkeypt
lausn fyrir þá sem vilja verða
háir og grannir fyrir jólin.
RÓFUR OG SELLERÍ Í ÖLL MÁL Rófur og
sellerí innhalda fáar kaloríur en það er
ekki það eina, líkaminn brennir fleiri
kaloríum við það að melta græmetið.
Færri kaloríur = færri kíló. Fáðu þér gott
ílát sem þú kemur í handtöskuna og
jólunum er borgið. Helstu
aukakvillar eru áunnið óþol
fyrir rófum og selleríi
fyrir lífstíð og
óþægindi í meltingar-
færum.
HVÍTVÍNSKÚRINN Frægur kúr í Bandaríkj-
unum, hvítvín í öll mál. Upplagt fyrir 101
borgara sem eru í grennd við bari og
kaffihús allan sólarhringinn. Algengar
aukaverkanir: Minnisleysi, áfengislykt af
andardrætti, ótæpileg málgleði og
hreinskilni sem getur oft á tíðum ekki
komið sér vel. Akstur vélknúinna
ökutækja stranglega bannaður.
ATKINS Hæpið að þessi kúr geri sig á nokkrum dögum en það má alltaf
reyna. Sósur og kjöt í öll mál en kartöflum og brauði sleppt. Munur að
geta leyft sér egg og beikon í morgunmat og svínasteik með rjómasósu í
kvöldmat og verið samt í megrun. Aukaverkanir: Mikil hægðatregða,
slappleiki, slæm andremma og óeðlileg líkamslykt, auk þess sem hætta
á kransæðastíflu og hjartasjúkdómum eykst til muna.
FÓTGANGANDI Í INNKAUPIN Skildu bílinn
eftir heima, arkaðu í búðirnar í
jólagjafaleit, sparaðu bensín og eyddu
kílóunum. Stórkostleg brennsla. Hafa
ber í huga að hælaskórnir er best
geymdir heima og það er lykilatriði að
búa sig vel. Sjaldgæfar aukaverkanir:
Líkur á beinbrotum í hálkunni aukast.
Kuldaexem í andliti og harðsperrur geta
sömuleiðis gert vart við sig.
JÓLAÞRIFIN Þrif geta verið mjókkandi.
Misstu þig í jólaþrifunum og hver veit
nema jólabónusinn í ár verði mjórra mitti
og stinnari rass. Aukaverkanir: Þreyta
og ofnæmi fyrir þrifum.
MATAREITRUN Sláðu tvær flugur í einu höggi, taktu til í
ísskápnum og útbúðu rétt úr matvörum sem eru komnar
langt fram yfir síðasta söludag og hver veit nema
heppnin verði með þér og þú fáir matareitrun í skóinn.
Matvörur sem koma sterkar inn: Kjúklingur og majónes.
Helstu fylgikvillar: Meltingaróþægindi, ógleði, lystarleysi
og máttleysi. Ef skemmdar matvörur eru ekki til í
ísskápnum þá er alltaf hægt að hringja í ættingja og vini
og athuga hvort einhver lumi ekki á magapest,
jólagjöfinni í ár.
GERÐU LAUFABRAUÐ Það eitt að fletja út
deigið tekur sinn toll af bingófitunni og
gufan sem myndast við steikinguna
hleypir út uppsöfnuðum svita. Góð leið
fyrir þá sem vilja gera eitthvað fyrir jólin
og líkamann. Fylgikvillar: Harðsperrur
og þreyta.
REYKJAVIK STORE
LAUGAVEGUR 86-94, S: 511-2007