Fréttablaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 21.12.2007, Blaðsíða 80
40 21. desember 2007 FÖSTUDAGUR UMRÆÐAN Varnarsvæðið á Miðnesheiði Mikið hefur verið fjallað um sölu eigna íslenska ríkisins í hinni fyrrum herstöð BNA, sem ríkið tók yfir í skiptum fyrir mengun á herstöðvarsvæðinu. En samkvæmt grein númer 8 í leynisamningi sem saminn var samhliða varnarsamningunum 1951 og leynd var lyft af í byrj- un árs 2007, bar Bandaríkunum að hreinsa alla mengun sem og spilliefni sem þeir skildu eftir sig. En íslenska ríkið tók á sig þessa hreinsun og fékk fyrir það eignir á svæðinu í staðinn. Ég held að ríkið hefði getað fengið eignirnar hvort sem var, því Kaninn var ekki í aðstöðu til að selja öðrum sín mannvirki þar sem íslenska ríkið átti land- ið sem stöðin var á, og hafði látið í té án gjalds í 55 ár. Nú bregður svo við að salan á þessum húsum er orðin að stóru pólitísku hneyksli. Allar reglur og hefðir um sölu eigna ríkisins, og þá fólksins í landinu eru þverbrotn- ar og líka reglur ESS. Að sjálf- sögðu átti að bjóða þetta út og fá sem mest út úr sölunni, en nei Sjálfstæðisflokkurinn setur sínar eigin reglur. Fjármálaráð- herra og hans aðstoðarmaður standa á bak við sölu á þessum mannvirkjum til vina og vanda- manna, og fleiri gullkálfa, og hlutur bæjarstjórans í Reykja- nesbæ er ekki til að hrópa húrra fyrir. Ég hélt að HS málið væri nóg fyrir bæjastjórann í Reykjanesbæ, en svo virðist ekki vera. Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki að kasta rýrð á störf Þró- unarfélagsins á vallar- svæðinu, sú hugmynd að skapa grunn að sam- félagi og koma ýmsum mannvirkjum á svæð- inu í notkun var góð hugmynd. En vinnubrögðin við útboð sölu á þessum mannvirkj- um er úr takt við hefðir um sölu eigna íslenska ríkisins, og stenst þar að auki ekki lög. VG hafa gagnrýnt þetta mál, þeir virðast vera eini flokkurinn sem þorir að segja sannleikann og þeir einu sem láta hag fólksins í landinu sig varða. Er ég segi fólksins í landinu, á ég við íslenska alþýðu, verkafólk, ein- stæðar mæður, eldri borgara, öryrkja, námsfólk, og fleiri minnihluta hópa í þjóðfélaginu. Ég á ekki við hinn hópinn, sem veður í peningum, kvótakarla og nýríkt hyski sem hagnast hefur á braski og einkavæðingu eigna, sem áður voru í eigu ríkisins og fært hafa þeim gífurleg auðæfi. Ef atburðir eins og salan á eignum íslenska ríkisins á vell- inum, sem mun færa ráðherra- bróður og fleiri gullkálfum milljarða gróða er nokkur ár eru að baki, hefðu skeð t.d í Bretlandi, þar sem lýðræði er virkt, hefði ráðherra og margir aðrir sem komu að þessum subbulegu vinnubrögðum, þurft að segja af sér strax. En gætum að því að Bretar hafa ræktað lýðræðið í aldir og flutt það með sér þar sem þeir hafa ráðið. Í Bretlandi er vagga lýðræðins og þar axla stjórnmálamenn sína ábyrgð. Íslendingar eru heybrækur sem láta bjóða sér hvað sem er. Hér á landi segir enginn af sér, og almenningur virðist láta sér það í léttu rúmi liggja, allavega kjósa þeir kvalara sína aftur. Réttara væri kannski að segja, þá sem rændu þá. Fyrrum fjósamenn íhaldsins í tólf ár, Framsóknarflokkurinn, fékk sína refsingu í síðustu kosningum. Margt kom þar til, má þar nefna stuðning við Íraks- stríðið, fjölmiðlafrumvarp, öryrkja- og eldri borgara ránið, þegar Hæstiréttur dæmdi þess- um hópum í hag og fleira. Kratar fengu sína ráðningu 1971, sama verður með Samfylkinguna ef hún stjórnar lengi með íhaldinu. Ég held að sú stjórn sem nú er, verði ekki mosavaxin, byrjunin lofar ekki góðu. Höfundur er bílstjóri. SKARPHÉÐINN SCHEVING EINARSSON Sala eigna ríkisins á vellinum Þjónusta í uppnámi UMRÆÐAN Ágreiningur talmeinafræðinga og TR Fyrir réttu ári sættu sex talmeina-fræðingar hjá Talþjálfun Reykjavík- ur rannsókn Eftirlits Tryggingastofnun- ar ríkisins. Var þetta gert í kjölfar tveggja nafnlausra ábendinga um misferli ótilgreinds talmeinafræðings eða talmeinafræðinga á þessari stofu. Ávirðingarnar voru þær að ekki hefði verið unnið í 40 mínútur með tiltekinn skjólstæðing, heldur aðeins í 30 mínút- ur. Reyndar er ekkert slíkt ákvæði um tímalengd í samningi Félags talkennara og talmeinafræð- inga við samninganefnd Tryggingastofnunar ríkisins. Það fannst því ekkert sem ámælisvert gat talist hjá talmeinafræðingunum á þessari stofu og hófst þá lúsaleitin. Það skyldi eitthvað finnast! Fádæma lítilsvirðing Á meðan á þessari aðför stóð var öllum talmeina- fræðingunum á stofunni greidd laun með fyrirvara, um hálfs árs skeið. Eftir ómælda fyrirhöfn Eftirlitsins fannst þó eitt atriði sem mátti áminna fyrir: Einhverjir foreldrar skjól- stæðinga höfðu til hagræðingar kvittað fyrirfram fyrir þjálfunartíma, mánuð í senn. Þetta hefði ekki uppgötvast nema vegna þess að viðkomandi talmeinafræðingar voru svo heiðarlegir að þeir strikuðu yfir kvittun sem ekki átti að þeirra dómi að standa, vegna þess að skjólstæðingar mættu ekki í tíma. Fyrir þetta áminnti Eftirlit TR talmeinafræðinga hjá Talþjálfun Reykjavíkur. Áminninguna fengu þær í júní í ár. Hún var síðan látin niður falla gegn því að Talþjálfun Reykja- víkur drægi til baka stjórnsýslukæru sem send hafði verið heilbrigðisráðherra. Kæran fjallaði um brot á andmælarétti, meðalhófsreglu og jafnræðisreglu. Allan þann tíma sem þessi rannsókn Eftirlits TR stóð var komið fram við talmeinafræðingana hjá Talþjálfun Reykjavíkur af fádæma lítilsvirð- ingu. Ómældu fé skattborgara var eytt í þessa óþörfu aðgerð, því að ef farið hefði verið eftir samningi sem í gildi er milli Félags talkennara og talmeinafræðinga og málinu vísað til samstarfs- nefndar aðila, þá hefði mátt leysa þetta mál á einum dagparti. En fyrir því var ekki vilji hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þar á bæ virðast menn telja sæmandi að fara fram með offorsi gegn þeim stéttum sem vinna fyrir þá af heilindum og samviskusemi og veita þá þjónustu sem Trygg- ingastofnun er skylt að taka þátt í að greiða. Einkum er talið hentugt að láta kvennastéttir finna til tevatnsins. Nornaveiðar TR Talmeinafræðingar hjá Talþjálfun Reykjavíkur kærðu sig ekki um að verða fyrir endurteknum nornaveiðum af þessu tagi af hálfu Eftirlits TR og sögðu sig því frá samningi þeim sem í gildi er milli Félags talkennara og talmeinafræð- inga og Tryggingastofnunar. Slíkt hið sama gerðu flestir sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar á landinu, þannig að þjónusta við skjólstæðingahópa á borð við börn með þroskafrávik, alvarleg fram- burðarfrávik og málhamlanir, heyrnar- skerta einstaklinga, sjúklinga með málstol eða raddvandamál, svo örfá dæmi séu nefnd, var í uppnámi. Félag talkennara og talmeinafræðinga óskaði eftir að fá birtar þær verklagsreglur sem Eftirlit TR ætti að vinna eftir, en var synjað um það. Þegar þeir talmeinafræðingar sem höfðu sagt sig frá samningi voru orðnir fleiri en þeir sem eftir voru, þá var farið að huga að reglugerðar- smíð hjá Heilbrigðisráðuneytinu. Þann 12. desem- ber sl. tók reglugerðin gildi, fimm síðna plagg sem inniheldur svo mörg óvissuatriði að þess eru vonandi fá dæmi. Hún inniheldur samninginn í heild sinni sem talmeinafræðingar hafa sagt sig frá og gott betur en það, því að ýmsum aukaverk- efnum er bætt við, bæði á talmeinafræðinga og skjólstæðinga eða foreldra þeirra. Meðal nýmæla í reglugerðinni er að þar er tilgreint að þjálfunar- tími skjólstæðings inni með talmeinafræðingi skuli vera 40 mínútur að lengd. Þeir skjólstæð- ingar sem ekki þola svo langan tíma munu ekki fá greiddan styrk frá Tryggingastofnun. Faglegt mat talmeinafræðings er að engu haft og styrkur sá sem skjólstæðingar fá vegna þjálfunar er jafnframt lækkaður umtalsvert. Tveir kostir Við talmeinafræðingar eigum nú um tvo kosti að velja: Eigum við að beygja kné vor og taka til við að vinna eftir reglugerð heilbrigðisráðherra sem er enn meira íþyngjandi en gildandi samningur og láta þar með alla hlutaðeigandi vita að engu skipti hvernig komið er fram við okkur? Eða eigum við að halda okkar striki, vinna faglega í þágu skjól- stæðinga okkar án þess að sinna þeim auknu skrifræðisverkefnum sem reglugerðin leggur okkur á herðar? Ég treysti því að foreldrasamtök muni vinna í því að fá þessi mistök og rangindi leiðrétt og koma því til leiðar að þeir sem þurfa á talþjálfun að halda muni eftir sem áður fá þá þjónustu á faglegum forsendum og á viðráðanlegu verði. Einnig hvet ég alla þá sem málið varðar til að kynna sér reglugerðina vandlega þegar hún verður birt. Höfundur er sjálfstætt starfandi talmeinafræðingur á Talstöðinni, Kópavogi. GRÉTA E. PÁLSDÓTTIR Allan þann tíma sem þessi rannsókn Eftirlits TR stóð var komið fram við talmeinafræðing- ana hjá Talþjálfun Reykjavíkur af fádæma lítilsvirðingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.