Fréttablaðið - 07.03.2008, Blaðsíða 70
34 7. mars 2008 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Áttu
hund?
Við gætum
hreinsað út
úr því.
Hvað
eigum við
að gera við
rúgbrauðið
í dag,
Stanislaw?
ÚBBS,
HVAÐ?!
Ekkert!Úbbs,
hvað?Úbbs!
Ég er með svo
svakalegt ofnæmi fyrir
hundaháAATJSÚ!
Hund og hund!
Ég á dálítið sem
líkist því!
Hvað
annað?
Sumir endur-
nýja áklæðin,
við minnkum
dýralífið
Hvernig getur
Ólafur búist
við því að þú
verndir húsið
gegn innbrots-
þjófum?
Þetta er skrýtið.
Sjáðu til, Mjási, ætlunin er að
ég gelti heilan helling og þá
hlaupa þeir í burtu! Hundaand-
fýla er frekar
hræðileg.
Auðvitað!
Þið eruð svo
sæt saman!
Barnið mitt er
gellusegull!
En þegar Lóa er með mér
láta þær mig ekki vera.
Venjulega taka konur
alls ekki eftir mér.
Borð fyrir
200!
Æ, æ...
Utanríkisráðuneytið
Umsóknir frjálsra félagasamtaka um framlög
vegna neyðar- og mannúðaraðstoðar
Utanríkisráðuneytið tekur við umsóknum frá frjálsum
félagasamtökum um styrki vegna langvinns neyðar-
ástands tvisvar á ári. Umsóknarfrestur vegna fyrri
úthlutunar er til 15. mars og vegna síðari úthlutunar
15. september, en tekið er við umsóknum vegna
skyndilegra hamfara allt árið um kring.
Úthlutun verður í samræmi við verklagsreglur sem
gefnar voru út í byrjun þessa árs. Einungis er tekið
við umsóknum sem skilað er inn á þar til gerðum
eyðublöðum. Hægt er að nálgast bæði verklagsreglur-
nar og umsóknareyðublöðin á vefsíðu utanríkis-
ráðuneytisins http://www.utanrikisraduneyti.is/utan-
rikismal/throunarsamvinna/
Nánari upplýsingar veita Heiðrún Pálsdóttir og Elín
Rósa Sigurðardóttir á skrifstofu þróunarmála í utan-
ríkisráðuneytinu
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Síðustu sjö árum
hef ég að töluverð-
um hluta eytt í upp-
eldi sonar míns, sem
hefur að mínu mati
bara gengið vel og
verið skemmtilegt.
Strákurinn er eldklár og fljótur að
læra, sem þýðir að hann gerir
sjaldnast sömu mistökin tvisvar.
Það eina sem ég get því sagt að hafi
verið virkilega erfitt að kenna
honum er að stundum tekur tíma að
læra ákveðna hluti og að æfingin
skapar meistarann.
Þar sem pjakkurinn er vanur því
að tileinka sér flest mjög hratt og
auðveldlega fer það óstjórnlega í
taugarnar á honum þegar hann nær
ekki tökum á einhverju strax, og
það er afgreitt sem leiðinlegt.
Stundum er það meira að segja
leiðin legt þó að hann ráði alveg við
það, bara af því að hann er ekki
bestur, og því hafa fótboltaskórnir
til dæmis verið lagðir á hilluna í
óákveðinn tíma. Áhyggjur mínar
vegna þessa voru þó lengi vel ekki
stórvægilegar, þar sem ég gerði ráð
fyrir að áður en uppeldishlutverki
mínu yrði lokið yrði þolinmæði hans
orðin meiri og fullkomnunaráráttan
minni, en nú er ég farin að efast.
Í haust ákvað ég nefnilega að
drífa mig í myndlistarskóla en mig
hefur lengi langað til þess. Ég sótti
myndlistarskóla samhliða mennta-
skóla þegar ég var yngri en hætti
einhverra hluta vegna og mundi
aldrei almennilega af hverju.
Fyrst fannst mér alveg rosalega
gaman í skólanum. Í samanburði
við aðra byrjendur fannst mér ég
bara standa mig ágætlega og virki-
lega gott að takast á við þetta aftur.
Þegar líða fór á veturinn og ég
fór að sækja námskeið með mér
mun reyndara fólki hætti mér hins
vegar að finnast jafn gaman. Þar
sem ég var ekki best hvarflaði
meira að segja að mér að hætta
bara og snúa mér að öðru og allt í
einu mundi ég af hverju ég hafði
hætt á sínum tíma. Þegar ég áttaði
mig á því hvað var að gerast sá ég
að kannski yrði ég bara að ala sjálfa
mig aðeins upp líka, þar sem það er
eiginlega lágmark að ég standi sjálf
undir þeim kröfum sem ég geri til
barnsins.
STUÐ MILL STRÍÐA Uppeldinu aldrei lokið
EMILÍA ÖRLYGSDÓTTIR VILL VERA BEST Í ÖLLU