Fréttablaðið - 07.03.2008, Blaðsíða 72
36 7. mars 2008 FÖSTUDAGUR
Á morgun og sunnudag er
efnt til Þórbergssmiðju í
Háskóla Íslands þar sem
margt er í boði aðdáendum
og áhugamönnum um ritævi
þessa sérstaka íslenska
ritsnillings en skammt er
í að 120 ár – stórt hundrað
ára – verði liðin frá fæðingu
hans á Hala í Suðursveit
þar sem Þórbergur Þórðar-
son fæddist 12. mars árið
1888. Bókmenntafræðistofnun
og Hugvísindastofnun standa að
hátíðinni í samvinnu við Mími,
félag stúdenta í íslenskum fræð-
um, Forlagið, sem gefur út verk
Þórbergs, og hóp stofnana og
fyrirtækja.
Þórbergur Þórðarson er ótvírætt
meðal merkustu rithöfunda 20.
aldar. Hann var þó ekki aðeins rit-
höfundur heldur sannkallaður
fjölfræðingur. Hann fékkst við
skrímslafræði, esperantó, orða-
söfnun, örnefnasöfnun og þjóð-
sagnasöfnun, stundaði líkamsrækt
af austrænum og vestrænum upp-
runa undir berum himni og sjó-
böð, ýmiss konar mælingar á ver-
öldinni, svo ekki sé minnst á að
hann samdi lög við ljóð sín. Þór-
bergur var líka afar pólitískur, var
til dæmis fyrstur Íslendinga til að
skrifa gegn fasismanum í Evrópu
og var dæmdur fyrir ummæli sín
um Adolf Hitler.
Á síðustu árum hefur áhugi á ævi
og verkum Þórbergs farið vaxandi.
Má þar nefna að Þórbergssetur var
opnað í Suðursveit árið 2006 og
tvær bækur sem fjalla um skáldið
komu út 2006 og 2007, eftir Halldór
Guðmundsson og Pétur Gunnars-
son og vöktu báðar athygli á ferli
hans og verkum. Forlagið gefur út
þrjár bækur eftir Þórberg á árinu
og þess er ekki langt að bíða að
útgáfa á verkum hans í Þýskalandi
verði að veruleika en greint hefur
verið frá samningum þar að lút-
andi. Þá mun Bókmenntafræði-
stofnun gefa út greinasafn um Þór-
berg í kjölfar Þórbergssmiðju.
Árið 2005 var fjölmenn málstofa
um Þórberg haldin í íslenskuskor
Háskólans. Fyrirlesarar voru ríf-
lega þrjátíu – m.a. leikarar, tón-
skáld, myndlistarmenn, rithöfund-
ar og fræðimenn – og fjölluðu frá
ólíkum sjónarhornum um ævi
skáldsins og samtíð, áhugamál
þess og ritverk, svo og gildi verka
þess fyrr og nú. Fyrirhuguð hátíð
er byggð á þessum grunni, jafnt til
að mæta áhuga fólks á Þórbergi og
efla hann. Þórbergssmiðju er
ætlað að vera fræðimönnum,
skólafólki, börnum og öllum
almenningi til upplýsingar jafnt
sem ánægju. Margir hafa lagt
hönd á plóginn til að gera hana að
veruleika: Ágúst Einarsson,
Ásbjörn Ólafsson, Forsætisráðu-
neyti, Háskólasjóður, Landsvirkj-
un, Menntamálaráðuneyti, Mjólk-
ursamsalan, Morgunblaðið,
Orkuveitan og Reykjavíkurborg.
Dagskráin hefst á morgun kl. 10
með Müllers-æfingum og setn-
ingu, en sérstaklega er séð fyrir
dagskrá og umönnun fyrir börn á
hátíðinni. Starfað er í tveimur
málstofum fyrir hádegi á morgun
þar sem Fjölnir Torfason, Helgi
Máni Sigurðsson, brautryðjandi í
rannsóknum á verkum Þorbergs,
og Helga Jóna Ásbjarnardóttir
halda erindi í einum sal frá kl.
10.30, en klukkustund síðar verð-
ur seinni málstofan þar sem Pétur
Gunnarsson, Soffía Auður Birgis-
dóttir og Halldór Guðmundsson
halda erindi en öll hafa þau fylgt í
fótspor Helga Mána. Eftir hádeg-
ishlé er boðið upp á söng og göng-
ur, leikþáttur er fluttur og
ung skáld lesa úr verkum sínum.
Nýjar málstofur verða í eftirmið-
dag frá 15.10. Þá tala Ástráður
Eysteinsson, Stefán Máni og Viðar
Þorsteinsson, og kl. 15.10 tala
Benedikt Hjartarson og Kristján
Eiríksson.
Á sunnudag hefjast erindi í mál-
stofum kl. 11.30: Þorbjörg Arnórs-
dóttir, Guðmundur Andri Thors-
son og Dagný Kristjánsdóttir
halda þá sín erindi. Á sama tíma er
önnur málstofa opin þar sem Bragi
Ólafsson, Alfdís Þorleifsdóttir,
Auður og Sólveig Einarsdætur
flytja sín erindi. 13.25 spilar
Baggalútur og í kjölfar þess ræða
Matthías Johannessen og Vilborg
Dagbjartsdóttir um Þórberg. Í eft-
irmiðdag kl. 15.30 verða tvær mál-
stofur: Þórunn Hrefna Sigurjóns-
dóttir og Pétur Pétursson fara
með tölur í annrri en í hinni er
rætt um orðasöfnun, hrollvekju-
smíðar og skrímslarannsóknir:
Guðrún Kvaran, Gunnlaugur Ing-
ólfsson, Sigrún Margret Guð-
mundsdóttir og Þorvaldur Frið-
riksson tala þar. pbb@frettabladid.is
Þingað um Þórberg
BÓKMENNTIR Þórbergur Þórðarson á þeim árum þegar ungu skáldin stillltu sér upp í
þungum þönkum. MYND/LJÓSMYNDARI ÓKUNNUR/FORLAGIÐ
Sjöttu og síðustu tónleikarnir í
hádegistónleikaröðinni Von103
fara fram í dag. Á þeim munu
þær Sesselja Kristjánsdóttir
mezzósópran, Auður Hafsteins-
dóttir fiðluleikari og Nína Mar-
grét Grímsdóttir, píanóleikari og
listrænn stjórnandi tónleikarað-
arinnar, flytja tónlist eftir Maur-
ice Ravel.
Á efnisskránni er sönglaga-
flokkurinn Chants populaires frá
árinu 1910 og Sónata fyrir fiðlu
og píanó samin á árunum 1923-
1927.
Ravel lagði með nýstárlegri
tónsmíðatækni sinni grunn að
fráhvarfi tónskálda frá rómant-
ísku stefnunni, tónsmíðar hans
eru byggðar úr sjálfstæðum ein-
ingum sem strengdar eru saman
óháð hlutverki þeirra í hefð-
bundnu samhengi dúr- og moll-
kerfisins. Þessi nálgun Ravel
hafði víðtæk áhrif á tónsmiði 20.
aldarinnar allt frá Stravinsky til
Ligeti og Riley. Í sönglagaflokkn-
um Chants populaires sameinast
þjóðlagahefð Ítalíu, Frakklands,
Spánar og Ísrael einstæðum stíl
Ravel á meðan Sónatan fyrir fiðlu
og píanó, hin þekktari af tveimur
slíkum sem hann samdi, leitar
fanga í djass- og blús-tónlist. Þeir
sem ekki þekkja tónlist þessa
merka tónskálds fá því hér tilval-
ið tækifæri til þess að kynnast
henni og lyfta sér upp í hádeginu
í leiðinni.
Tónleikagestir þurfa ekki að
verða af hádegisverði þar sem að
Te & kaffi stendur fyrir veitinga-
sölu í tengslum við tónleikana.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 og fara
fram í salnum Von, Efstaleiti 7. Miða-
verð er 2.000 kr., en 1.000 kr. fyrir
námsmenn, öryrkja og eldri borgara.
- vþ
Þrjár konur
leika tónlist Ravels
TÓNLIST UM MIÐJAN DAG Þær Sesselja,
Auður og Nína Margrét leika tónlist eftir
Ravel í hádeginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Danshöfundurinn Yuri Burlaka,
sem einkum er þekktur í dansheim-
inum fyrir endurgerðir á klassísk-
um ballettsýningum frá 19. öld,
hefur verið útnefndur -nýr list-
rænn stjórnandi Bolshoi-ballettsins
í Moskvu.
Burlaka tekur við starfinu 1. jan-
úar næstkomandi af Alexei Rat-
mansky sem hefur gegnt starfinu
frá árinu 2004. Stjórn Bolshoi-leik-
hússins þótti sýna nokkra dirfsku á
sínum tíma við ráðningu hins unga
og framsækna Ratmanskys, en það
kom fljótlega í ljós að ráðningin
var mikið heillaspor þar sem nálg-
un hans þótti blása nýju lífi í starf-
semina.
Ratmansky tilkynnti formlega í
febrúar síðastliðnum að hann hefði
ekki í hyggju að framlengja samn-
ing sinn við danshópinn. Nokkuð
kom á óvart að Burlaka yrði fyrir
valinu sem arftaki hans þar sem
áherslur hans í starfi hafa alla jafna
verið nokkuð hefðbundnar.
Anatoly Iksanov, stjórnandi Bols-
hoi-leikhússins sem hýsir danshóp-
inn, sagðist þó gera ráð fyrir að
Burlaka myndi halda áfram því
starfi sem Ratmansky hefur lagt
grunninn að. - vþ
Burlaka tekur við Bolshoi
BOLSHOI-LEIKHÚSIÐ Í MOSKVU Hýsir
einn þekktasta ballett-hóp í heimi.
www.forlagid.is
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16.
Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Stefnumót við safnara III
Sýnendur: Eymundur Matthíasson • Gunnar Örn Tynes • Joel
Thurman • Magnús Birkir Skarphéðinsson • Pétur H. Jónsson
• Sighvatur Ómar Kristinsson • Sigurlaug Gísladóttir • Sönke
Holtz og hljómsveitin Hey Calypsó! • Viðar H. Gíslason • Úlfur
Eldjárn
Kvæðamannafélagið Iðunn
Verið velkomin á aðalfund félagsins í kvöld kl. 20
Kynnið ykkur starfsemi félagsins á
www.rimur.is
Sjö landa sýn
María Loftsdóttir, alþýðulistakona, sýnir vatnslitas-
temmningar frá Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Íslandi,
Japan, Perú og Skotlandi.
Listakonan tekur á móti gestum um helgina!
Hið breiða holt
Ljósmyndasýning þar sem unglingar
eiga stefnumót við afa sína eða ömmur!
Sýningarstjóri: Berglind Jóna Hlynsdóttir.
Vissir þú...
...að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir
ráðstefnur, námskeið, fundi og veislur?
Salir og fundarherbergi fyrir 8 - 120 manns.
Sjá nánari upplýsingar: www.gerduberg.is, s. 575 7700.