Fréttablaðið - 07.03.2008, Blaðsíða 52
10 • FÖSTUDAGUR 7. MARS 2008
þú kemst ekki í gegnum vikuna ...
Verslunin Boutigue Bella fékk flotta and-
litslyfingu þegar hún flutti sig yfir göt-
una og er nú komin á Skólavörðustíg 8.
Við flutninginn var verslunin stækk-
uð allverulega, eða úr 20 fermetrum
í rúmlega 100 fermetra. Við stækk-
unina tóku eigendur Boutigue Bellu
inn fullt af nýjum merkjum. Eitt af
því er Lavender-lína Veru Wang en
hún er einn þekktasti fatahönn-
uður í heimi og hafa stjörnurnar
í Hollywood keppst við að klæð-
ast kjólum frá henni þegar þær
ganga í það heilaga. Hildur Aðal -
steinsdóttir, ein af eigendum
verslunarinnar, segir að þær
hafi ekki staðist freistinguna
þegar þær hnutu um Veru.
„Okkur fannst vanta
fína sparikjóla í
verslanir í Reykja-
vík og því ákváð-
um við að leggja
okkar af mörk-
um. Konur eru
sífellt að fara í
fín boð, brúð-
kaup og aðrar
veislur og
þær vilja
vera fínar,“
segir Hild-
ur en það
er fátt sem
slær kjóla
Veru Wang
út. Eins og
gefur að
skilja eru kjólar Veru
Wang ekki gefins en Lavender-línan er þó
mun ódýrari þótt ekki skorti gæðin. Íslensk-
ar konur verða þó að bíða fram á haust til að
næla sér í Veru á Skólavörðustígnum því línan kemur
ekki í hús fyrr en þá. Vera Wang er þó ekki eina merk-
ið því þær selja fatnað frá Poul et Joe sister, Eva &
Blaudi, Style Butler, Uli Schneider og Marccain svo
eitthvað sé nefnt.
Hún segir að vor- og sumartísk-
an muni einkennast af kór-
albleikum, bláum og gulum
litum og að hver kona verði
að eignast ballerínuskó og
svolítið af perlufestum.
Hildur rekur verslunina
ásamt móður sinni, Stein-
unni Margréti Tómas-
dóttur, og móðursyst-
ur sinni, Þórunni Elínu
Tómasdóttur. Þegar
hún er spurð að því
hvort þær hafi sama
smekkinn segir hún
svo ekki vera. „Við
höfum mjög ólíkan
smekk, ég er miklu lita-
glaðari en mamma og
Þórunn en þær koma
með þetta klassíska element
inn í búðina.“ Hildur segir að
mamma hennar sé mikil pjatt-
rófa og hafi í gegnum tíðina
fylgst vel með tískunni og því
hafi hún þetta eiginlega í blóðinu, elski
föt og finnist gaman að versla. „Það má
eiginlega segja að við séum allar fata-
óðar,“ segir Hildur og hlær.
martamaria@365.is
t íska
ferskleiki dagsins í dag
VeraWang
á leið til Íslands
Í vorlínunni frá GUCCI eru stórar og veg-
legar leðurtöskur með lakkáferð áber-
andi. Sænska móðurskipið H&M var
ekki lengi að tileinka sér GUCCI-taktana
og selja sams konar töskur, bara 200%
ódýrari. Gettu hvor er hvað …
GUCCI EÐA H&M?
...nema skella þér á skíði. Snjórinn
æpir á þig að fara upp í fjöll.
...nema byrja að skipuleggja pásk-
ana. Hvernig skreytingarnar eigi að
vera, hvernig páskaegg þú ætlar að
búa til handa fjölskyldunni og hvern-
ig þú ætlar að marinera páska-
lambið.
...nema átta þig á því að það er alger
tímasóun að umgangast leiðinlegt fólk.
...nema gera vorhrein-
gerningu. Þegar sólin
skín inn um rúðurnar
er ekki lengur hægt að
dempa ljósin, kveikja á
kertum og lifa í afneitun.
...nema setja kanil út í morgunsjeik-
inn, það eykur brennsluna og gefur
gott bragð. Nammi namm ...