Fréttablaðið - 07.03.2008, Blaðsíða 65
FÖSTUDAGUR 7. mars 2008 29
Umsjón: nánar á visir.is
Bandaríski öldungurinn Warren Buffett
er ríkasti maður heims, samkvæmt nýj-
asta lista bandaríska viðskiptatímarits-
ins Forbes yfir auðugustu einstaklinga í
heimi. Bill Gates, stjórnarformaður og
annar stofnenda bandaríska tölvurisans
Microsoft, sem hefur verið í toppsætinu
í heil þrettán ár, fellur í þriðja sæti. Í
öðru sæti situr mexíkóski auðjöfurinn
Carlos Slim Helu.
Eignir Buffetts, sem stýrir fjárfest-
ingarfélaginu Berkshire Hathaway,
nema 62 milljörðum Bandaríkjadala,
jafnvirði 4.114 milljarða íslenskra
króna. Þetta er tíu milljörðum dala
meira en fyrir ári.
Björgólfur Thor Björgólfsson,
stjórnar formaður Straums og Actavis,
er í 307. sæti á lista bandaríska við-
skiptatímaritsins Forbes yfir ríkustu
einstaklinga í heimi. Tímaritið metur
eignir hans á 3,5 milljarða dala, jafn-
virði 232 milljarða króna, sem er óbreytt
staða á milli ára. Í fyrra sat hann í 249.
sæti listans. Faðir hans, Björgólfur
Guðmundsson, stjórnarformaður
Landsbankans, er í 1.014. sæti á sama
lista og lækkar hann um 211 sæti. Eignir
hans eru metnar á 1,1 milljarð dala, sem
er 100 milljónum minna en í fyrra.
Feðgarnir eru einu Íslendingarnir á
listanum. - jab
AUÐUGIR FEÐGAR Björgólfur Guðmundsson
og sonur hans og nafni eru á lista yfir ríkustu
menn heims. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Einu Íslendingarnir á lista Forbes
TOPP TÍU LISTINN*
Nafn Búsetuland Auður í ma.kr.
Warren Buffett Bandaríkin 4.125
Carlos Slim Helu Mexíkó 3.992
Bill Gates Bandaríkin 3.859
Lakshmi Mittal Bretland 2.994
Mukesh Ambani Indland 2.861
Anil Ambani Indland 2.794
Ingvar Kamprad Svíþjóð 2.062
KP Singh Indland 1.996
Oleg Deripaska Rússland 1.863
Karl Albrecht Þýskaland 1.796
* Heimild: Forbes
Bankastjórnir seðlabanka í Bret-
landi og á evrusvæðinu ákváðu í
gær að halda stýrivöxtum óbreytt-
um. Ákvörðunin er í takt við vænt-
ingar.
Stýrivextir í
Bretlandi voru
lækkaðir um
25 punkta í
síðasta mán-
uði og standa
nú í 5,25 pró-
sentum. Þeir
standa hins
vegar í fjórum
prósentum á
evrusvæðinu og hefur Jean-
Claude Trichet seðlabankastjóri
þráfaldlega sagt að ekki verði
hreyft við vöxtunum fyrr en verð-
bólga gefi eftir.
Sérfræðingar benda á að há
gengisskráning evru, sem stendur
í hæstu hæðum, geti bitnað á fyrir-
tækjum í útflutningi, ekki síst ef
hrakspár um efnahagssamdrátt
gangi eftir. - jab
Óbreyttir vextir
JEAN-CLAUDE TRICHET
Lánshæfishorfum Íbúðalánasjóðs
var breytt í neikvæðar úr stöðug-
um hjá alþjóðlega matsfyrirtæk-
inu Moody‘s um leið og það sama
var gert varðandi lánshæfi ríkis-
ins á miðvikudag.
Matsfyrirtækið sendi frá sér
sérstaka tilkynningu þar að lút-
andi, þar sem um leið var áréttað
að horfur í lánshæfi íslensku bank-
anna væru áfram stöðugar, þrátt
fyrir breytinguna sem að ríkinu
sneri.
Á markaði hafa engin sérstök
viðbrögð verið við nýju mati
Moody‘s. Þannig varð til að mynda
ekki breyting á skuldatryggingar-
álagi bankanna eftir síðustu breyt-
ingar. Samkvæmt heimildum
blaðsins þykir Moody‘s í fjármála-
heiminum hafa sett niður með
hringlandahætti í lánshæfismati
síðasta árið og hefur álit fyrirtækis-
ins af þeim sökum ekki sömu vigt
og áður. - óká
Sýn Moody‘s á
bankana óbreytt
Verðmiðinn á hráolíu fór upp í
tæpa 106 dali á tunnu í gær og
hefur svartagullið aldrei verið
dýrara.
Samtök olíu-
útflutnings-
ríkja (OPEC)
ákváðu á fundi
sínum í Vín í
gær að auka
ekki olíufram-
leiðslu land-
anna. Abdallah
Salem el-
Badri, mál-
svari samtakanna, segir framboð
og eftirspurn í jafnvægi. Þó muni
samtökin boða til neyðarfundar
gerist þess þörf.
Á sama tíma drógust olíubirgðir
saman á milli vikna í Bandaríkjun-
um og gengi Bandaríkjadals fór í
lægstu lægðir gagnvart evru en
það keyrir alla jafna olíuverðið
upp. - jab
Olíudropinn
aldrei dýrari
TALSMAÐUR OPEC
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 273
4.808 +0,85% Velta: 3.687milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 8,00 +0,00% ... Bakkavör
40,00 -1,24% ... Eimskipafélagið 29,10 +0,00% ... Exista 11,84
-0,92% ... FL Group 9,03 -1,42% ... Glitnir 16,80 -1,18% ... Icelandair
24,90 +0,00% ... Kaupþing 726,00 -1,23% ... Landsbankinn 26,60
+0,38% ... Marel 88,00 -0,57% ... SPRON 5,21 -1,51% ... Straumur-
Burðarás 11,00 -1,52% ... Teymi 4,99 -0,99% ... Össur 90,60 -0,44%
MESTA HÆKKUN
FØROYA BANK +3,65%
ATL. PETROLEUM +0,67%
ALFESCA +0,45%
MESTA LÆKKUN
ICELANDIC GROUP -2,87%
ATLANTIC AIRWAYS -2,49%
STRAUMUR-B.ÁS 1,52%